

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna meintrar stunguárásar sem er sögð hafa verið framin utandyra við Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur í júní 2021.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður um hnífstunguárás í miðborg Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði.
Árið 2020 urðu 23 fyrir líkamstjóni vegna eggvopnsárása, sem er 109 prósentum meira en árin á undan. Á árunum 2017-2019 urðu á bilinu sjö til ellefu fyrir líkamstjóni vegna slíkra árása.
Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið karlmann með hnífi í kviðinn á aðfaranótt síðasta sunnudags. Farið verður fram á vikulangt gæsluvarðhald til viðbótar yfir manninum og verður hann leiddur fyrir dómara síðar í dag.
Karlmaður á tvítugsaldri sem var stunginn með hnífi í kviðinn á aðfaranótt sunnudags er á batavegi. Honum hefur verið haldið sofandi á gjörgæslu Landspítala frá því á sunnudag en hann var talinn í lífshættu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur myndefni úr eftirlitsmyndavélum í miðborg Reykjavíkur til skoðunar í tengslum við rannsókn á hnífsstunguárás fyrir utan Fjallkonuna aðfaranótt sunnudag.
Maðurinn sem ráðist var á með eggvopni á aðfaranótt sunnudags er ekki talinn í bráðri lífshættu lengur. Honum er þó haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítala. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.
Karlmaður um tvítugt, sem ráðist var á með hnífi í miðbæ Reykjavíkur á aðfaranótt sunnudags, er enn á sjúkrahúsi. Ástand hans var talið lífshættulegt í gær en lögregla hefur ekki viljað gefa upplýsingar um stöðu hans í dag, það sem af er degi. Von er á tilkynningu eftir hádegið vegna málsins.
Karlmaður sem grunaður er um að hafa stungið mann með hnífi fyrir utan veitingastaðinn Fjallkonuna í miðbæ Reykjavíkur í nótt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Vopn sem notað var þegar karlmaður um tvítugt var stunginn í miðbænum í nótt er ekki fundið. Maðurinn liggur þungt haldinn á Landspítalanum en lögreglan handtók meintan árásarmann í heimahúsi í Kópavogi undir morgun.
Einn er í lífshættu eftir hnífstunguárás í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Einstaklingurinn er á gjörgæslu eftir að hafa verið stunginn í kviðinn en sá grunaði var handtekinn í morgun og er nú í haldi lögreglu. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.