Sambandsdeild Evrópu

Fréttamynd

Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu

Rúnar Alex Rúnarsson stóð í marki FC Kaupmannahafnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli, 0-0, gegn Inter Turku í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu í Finnlandi í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Mætti með seðla­búntin inn í klefa í sigur­vímu

Formaður albanska knattspyrnufélagsins Dinamo City mætti með seðlabúnt í tösku beint inn í búningsklefa leikmanna og gladdist með þeim eftir að liðið komst í umspil Sambandsdeildar Evrópu. Hann lofaði leikmönnum enn meiri peningum komist liðið í gegnum umspilið.

Fótbolti
Fréttamynd

„Á­nægður með það hvernig strákarnir héldu á­fram að trúa“

Víkingar höfðu betur gegn Thun í Víkinni í dag og fögnuðu súrum 3-2 sigri eftir góða frammistöðu. Það reyndist þó ekki nóg til að vinna upp forskot svissnesku meistaranna úr FC Thun frá fyrri leiknum en Thun vann einvígið 5-3 samanlagt og tryggði sér með því sæti í umspili Evrópudeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val

Valsmönnum hafa borist fínar fregnir fyrir einvígi liðsins gegn Nordsjælland í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Danska félagið hefur selt Caleb Yirenkyi til Coventry City fyrir metverð.

Fótbolti
Fréttamynd

„Leiðin­legt að þetta sé búið“

Vestri gerði sitt fyrsta jafntefli í Evrópukeppni í sögu félagsins þegar liðið mætti RFS frá Lettlandi í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta karla á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. Leiknum lauk 1-1 og RFS vann einvígið samanlagt 2-5.

Fótbolti
Fréttamynd

Smá munur á Qarabag og Lengjudeildinni

Þórður Gunnar Hafþórsson skoraði fyrsta mark Vestra í Evrópukeppni á heimavelli, eða eiginlegum heimavelli, í sögunni þegar Vestfjarðaliðið gerði 1-1 jafntefli við RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli í Laugardal í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Kol­beinn og fé­lagar komust á­fram þrátt fyrir tvö vítaklúður

Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði IFK Göteborg þegar liðið vann viðureign sína gegn FCI Levadia frá Eistlandi í framlengdum leik í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Sænska liðið brenndi af tveimur vítaspyrnum í venjulegum leiktíma en náði að skora tvö mörk í framlengingu til að tryggja sigurinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Vestri – RFS 1-1 (2-5) | Evrópuævintýri Vestra á enda

Vestri er úr leik í Sambandsdeild karla í fótbolta eftir að gert jafntefli við lettneska liðið RFS, 1-1, í öðrum leik liðanna í 2. umferð undankeppni keppninnar á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. RFS vann einvígið samanlagt 5-2 eftir 4-1 sigur í fyrri leiknum í Lettlandi og fer áfram í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Fótbolti