Erlend sakamál

Fréttamynd

Manninum sleppt úr haldi

Manninum sem handtekinn var í gær grunaður um tengsl við morðið á bresku stjórnmálakonunni Ann Widdecombe hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. 

Erlent
Fréttamynd

Robinson hafi lýst eftir­sjá

Fyrrverandi herbergisfélagi Tyler Robinson, sem sakaður er um að hafa myrt Charlie Kirk, sagði í dag að hann hefði lýst eftirsjá daginn eftir morðið. Robinson hefði ætlað að gefa sig fram við lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Le Pen stað­festir forsetaframboð

Marine Le Pen hyggst bjóða sig fram til forseta Frakklands á næsta ári. Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en hún ætli að áfrýja til hæstaréttar Frakklands.

Erlent
Fréttamynd

Daily Mail hafði betur gegn Harry

Harry Bretaprins og Elton John töpuðu í hópmálsókn sem þeir höfðuðu gegn eiganda fjölmiðilsins Daily Mail. Þeir, ásamt fjórum öðrum, sökuðu fjölmiðilinn um að hlera einkasímtöl og afla upplýsinga um líf þeirra með blekkingum.

Erlent
Fréttamynd

Ó­víst með fram­boð Le Pen eftir tví­ræðan dóm

Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Marine Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en mildaði verulega bann sem hún hlaut við því að bjóða sig fram. Hún getur tæknilega boðið sig fram til forseta á næsta ári en óljóst er hvort hún geri það eftir niðurstöðuna.

Erlent
Fréttamynd

Fimm sagðir látnir í skot­á­rás nærri Ham­borg

Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana og sært fleiri við æskulýðsmiðstöð í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að tveir séu í haldi, þar á meðal sá sem er grunaður um að hafa skotið fólkið.

Erlent
Fréttamynd

Ók inn í hús og varð konu á sjö­tugs­aldri að bana

Tvítugur karlmaður er ákærður fyrir manndráp af gáleysi fyrir að aka bíl sínum á miklum hraða á íbúðarhús nærri Árósum með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri lést. Áreksturinn varð eftir að ökumaðurinn reyndi að flýja lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni

Í skilaboðum frá meintum mannræningjum Nancy Guthrie, móður bandarísku sjónvarpskonunnar Savannah Guthrie, er fullyrt að Nancy sé látin. Hún hafi látist fyrir slysni og biðjast mannræningjarnir þar afsökunar.

Erlent
Fréttamynd

Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag

Rex Heuermann, sem hefur hlotið viðurnefnið Gilgo Beach-morðinginn, verður leiddur fyrir dómara í dag. Búist er við því að hljóti þrjá samfellda lífstíðardóma. Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona Heuermann, verður ekki viðstödd dómsuppkvaðninguna, segir lögmaður hennar. 

Erlent
Fréttamynd

Sonur krón­prinsessunnar á­frýjar dómi

Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, ætlar að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi sem hann hlaut í morgun fyrir nauðganir og fleiri afbrot. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum.

Erlent
Fréttamynd

Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár

Sænska ríkisstjórnin hefur dregið til baka frumvarp sem hefði lækkað sakhæfisaldur niður í þrettán ár þar sem verulegar líkur voru á að það yrði fellt á þingi. Í staðinn ætlar hún að leggja fram nýtt frumvarp um að lækka aldurinn í fjórtán ár í sumar.

Erlent
Fréttamynd

Marius sleppur ekki eftir allt saman

Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað.

Erlent
Fréttamynd

Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum

Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní.

Tónlist
Fréttamynd

Bretar setja ofan í við Vance vegna undir­róðurs

Varaforsætisráðherra Bretlands segist hafa gert J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, ljóst að það hafi verið rangt af honum að kenna innflytjendum um dráp á ungum manni þar. Bandaríkjastjórn hefur notað drápið sem skotfæri í undirróður gegn innflytjendastefnu Evrópuríkja.

Erlent
Fréttamynd

James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar

Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Maður sem tók tíu í gíslingu í Kali­forníu skotinn til bana

Maður sem tók tíu skólastarfsmenn í gíslingu í Kaliforníu í gær var skotinn til bana af lögregluþjónum. Eftir tæplega sextán klukkustunda umsátur um bygginguna þar sem maðurinn hélt fólkinu réðust starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) til atlögu og felldu hann.

Erlent
Fréttamynd

Deila í dómsal um hvort réttar­höldin verði opin

Ákveðið verður í dag, mánudag, hvort að upphaf réttarhaldanna gegn manninum sem grunaður er um að hafa myrt Charlie Kirk verði opið almenningi og fjölmiðlum. Verjendur mannsins, sem heitir Tyler Robinson, vilja að réttarhöldin verði lokuð og hafa einnig krafist þess að mikið af sönnunargögnum í málinu verði ekki opinberuð á þeim grunni að þau gætu haft áhrif á mögulega kviðdómendur.

Erlent