Þýski boltinn
112 113 114 115 116 ›
Hargreaves fer hvergi Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá þýsku meisturunum Bayern Munchen, hefur ákveðið að hafna tilboði Middlesbrough um að ganga til liðs við félagið í sumar. Hargreaves hefur verið hjá þýska liðinu síðan hann var unglingur og þjálfari Bayern segir ástæður þess að hann fari ekki gefa augaleið. Sport 13.10.2005 19:32
Hargreaves hafnar Boro Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sem leikið hefur með Bayern Munchen síðustu ár, hefur hafnað samningstilboði frá enska úrvaldsdeildarliðinu Middlesbrough og segist ætla að berjast fyrir sæti sínu í byrjunarliði Bayern. Sport 13.10.2005 19:32
Kuranyi yfirgefur Stuttgart Þýski landsliðssóknarmaðurinn Kevin Kuranyi er að yfirgefa Suttgart þar sem hann hefur verið síðan 1997 en hann er á leið til Schalke í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu. Kuranyi kveðst í viðtali í þýska blaðinu Bild am Sonntag í dag hafa skrifað undir 5 ára samning við félagið. Sport 13.10.2005 19:21
Sammer rekinn frá Stuttgart Matthias Sammer var rekinn sem þjálfari Stuttgart eftir aðeins eitt ár í starfi. Þetta var tilkynnt í morgun en Stuttgart varð í 5. sæti og rétt missti af sæti í Meistaradeild Evrópu. Sport 13.10.2005 19:18
Tvöfalt hjá Bayern München Bayern München vann í gærkvöld þýska bikarinn í knattspyrnu í 12. sinn þegar liðið sigraði Schalke með tveimur mörkum gegn einu á Ólympíuleikvanginum í Berlín. Þetta er í fimmta sinn sem Bayern München vinnur tvöfallt í Þýskalandi, en liðið vann meistaratitilinn í Þýskalandi á dögunum. Sport 13.10.2005 19:17
Van der Vaart til Hamburg Hamburger SV hefur keypt hollenska miðjumanninn Rafael van der Vaart frá Ajax fyrir 5.5 milljónir evra. Hinn 22-ára gamli van der Vaart skrifaði undir fimm ára samning. Sport 13.10.2005 19:16
Van der Vaart til Hamburgar Óvænt tíðindi urðu í kvöld þegar hollenski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Rafael van der Vaart yfirgaf Ajax og gekk í raðir þýska Bundesliguliðsins Hamburg SPV fyrir 4 milljónir punda, eða 480 milljónir ÍSK. Sport 13.10.2005 19:16
Írani til Bayern Munchen? Íranski landsliðsframherjinn Ali Karimi, sem var valinn leikmaður Asíu á síðasta ári, er á leið til þýsku meistarana í Bayern Munchen samkvæmt talsmanni félagsins. Þessi 26 ára gamli leikmaður, sem ber gælunafnið ,,Maradona Asíu" spilar með Al-Ahli og hefur skorað 32 mörk í 87 landsleikjum. Sport 13.10.2005 19:09
Bayern meistari í Þýsklandi Bayern München varð í gær þýskur meistari í knattspyrnu í 19. sinn þegar liðið burstaði Kaiserslautern 4-0. Í Belgíu töpuðu Arnar Grétarsson, Arnar Viðarsson og Rúnar Kristinsson og félagar í Lokeren fyrir Gent 0-1 en Lokeren er í 9. sæti deildarinnar. Þá var Indriði Sigurðsson í liði Genk sem gerði jafntefli, 2-2, við Ostende, en Genk er í 4. sæti deildarinnar. Sport 13.10.2005 19:08
Dómari í ævilangt keppnisbann Þýski knattspyrnudómarinn Robert Hoyser hefur verið dæmdur í ævilangt keppnisbann, eftir að hafa orðið uppvís að því að þyggja mútur í nokkrum knattspyrnuleikjum, en hann er talinn hafa þegið í kring um 67.000 evrur fyrir að hagræða úrslitum leikjanna með dómgæslu sinni. Sport 13.10.2005 19:08
Bayern með níu stiga forystu Bayern Munchen náði í gær níu stiga forystu í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Bochum, 3-1. Á sama tíma töpuðu helstu keppinautar þeirra í Schalke fyrir Herthu Berlín. Berlínarmenn unnu 4-1. Sport 13.10.2005 19:06
Bayern í úrslit bikarkeppninnar Bayern München sigraði Armenia Bielefeld 2-0 í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í gærkvöldi og mætir Schalke í úrslitum 28. maí. Bayern München hefur ellefu sinnum orðið þýskur bikarmeistari, oftar en nokkurt annað félag. Sport 13.10.2005 19:05
Shalke sigraði í vítaspyrnukeppni Schalke sigraði Werder Bremen í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í gær eftir staðan var jöfn, 2-2, að lokinnni framlengingu. Frank Rost, markvörður Schalke, varði þrjár spyrnur Brimarborgara og skoraði svo úr síðustu spyrnunni sjálfur og tryggði sigur Schalke. Sport 13.10.2005 19:05
Advocaat farinn Fyrrverandi landsliðsþjálfari Hollendinga í knattspyrnu, Dick Advocaat, hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari þýska Bundesliguliðsins Borussia Mönchengladbach eftir aðeins 18 leiki við stjórnvölinn. Horst Köppel þjálfari U23 liðs Mönchengladbach hefur tekið við aðalliðinu sem er aðeins einu stigi frá fallsævði í deildinni. Sport 13.10.2005 19:04
Schalke og Bayern unnu bæði Toppliðin í þýska boltanum, Schalke og Bayern Munchen, sigruðu bæði leiki sína í þýsku Bundesliga í dag. Sport 13.10.2005 18:59
Oliver Kahn vill ná þrennunni Oliver Kahn, landsliðsmarkvörður Þjóðverja, er sannfærður um að lið sitt, Bayern Munchen, muni vinna þrjá titla á tímabilinu. Sport 13.10.2005 18:58
Donovan aftur í MLS? Landon Donovan, Bandaríkjamaðurinn hjá þýska knattspyrnuliðinu Bayer Leverkusen, mun ekki leika áfram með þýska liðinu og mun líklega fara aftur Bandarísku atvinnumannadeildina eftir tvo og hálfan mánuð í þýskalandi. Sport 13.10.2005 18:58
Bayern á höttunum eftir Huth Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur staðfest að liðið ætli að ná sér í Robert Huth, varnarmann enska liðsins Chelsea. Sport 13.10.2005 18:56
Rosicky til Tottenham? Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur hefur áhuga á að fá tékkneska leikstjórnandann Tomas Rosicky frá Dortmund, en það staðfesti talsmaður Dortmund, Michael Zorc, í dag. Mikill hugur er í stjórnarmönnum Tottenham og eru menn þar á bæ tilbúnir að ganga ansi langt til að koma liðinu aftur á meðal þeirra bestu. Sport 13.10.2005 18:56
Schalke á toppinn í Þýskalandi Schalke vann Bayern München 1-0 í uppgjöri efstu liðanna í þýsku knattspyrnunni í gærkvöldi. Brasilíumaðurinn Lincoln skoraði eina markið. Schalke er með 53 stig en Bayern 50 stig þegar 25 umferðum er lokið. Sport 13.10.2005 18:54
Samuel Kuffour til Arsenal? Knattspyrnumaðurinn Samuel Kuffour er harðákveðinn að segja skilið við Bayern München í þýsku deildinni þegar samningur hans rennur út í sumar. Sport 13.10.2005 18:52
Bayern og Schalke unnu bæði Baráttan harðnar á toppi þýsku bundesligunnar í knattspyrnu. Bayern Munchen vann Werder Bremen 1-0 á heimavelli með marki Michael Ballack á 7. mínútu og Schalke vann öruggan 0-2 útisigur á Bochum með mörkum Brasilíumannanna Ailton og Lincoln. Liðin fylgja því hvort öðru eins og skugginn á toppi deildarinnar og eru bæði með 50 stig. Sport 13.10.2005 18:52
Bayern yfir gegn Bremen Bayern Munchen hefur eins marks forystu í hálfleik gegn meisturum Werder Bremen í þýsku bundesligunni í knattspyrnu. Fyrirliði Bæjara, Michael Ballack, skoraði eina mark leiksins hingað til strax á 7. mínútu. Schalke, sem er í harðri baráttu við Bayern á toppi deildarinnar, hefur yfir gegn Bochum á útivelli, en liðin hafa bæði 47 stig á toppnum. Sport 13.10.2005 18:52
Bremen í undanúrslitin Bikarmeistararnir í Werder Bremen tryggðu sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með því að leggja að velli varalið Bayern Munchen í 8 liða úrslitunum. Bayern liðið átti sér draum um að ná alla leið í úrslitaleikinn þar sem möguleiki var fyrir hendi að mæta aðilliði félagsins en það verður þrátt fyrir það að teljast nokkuð góður og óvæntur árangur af varaliði að ná alla leið í 8 liða úrslitin. Sport 13.10.2005 18:50
Sjaldgæf staða í þýska bikarnum Sú fordæmalausa staða getur nú mögulega komið upp í þýsku bikarkeppninni í knattspyrnu að Bayern München og leiki til úrslita um titilinn en bæði lið eru inni í 8 liða úrslitum sem hefjast í kvöld. Varalið Bayern á þá heimaleik gegn ríkjandi bikarmeisturum Werder Bremen nú kl 18.30 en aðalliðið heimsækir Freiburg annað kvöld. Sport 13.10.2005 18:50
Hoyzer laus úr fangelsi Robert Hoyzer, líkast til frægasti fyrrverandi knattspyrnudómari heims eftir þátt hans í að ákveða úrslit leikja í þýska boltanum fyrir fram, var látinn laus úr fangelsi í dag eftir tveggja vikna dvöl. Hoyzer bíður eftir því að vera ákærður fyrir að hjálpa króatískum glæpahring að ákveða úrslit leikja. Sport 13.10.2005 18:49
Bæjarar að kjöldraga Dortmund Það gengur lítið upp hjá Borussia Dortmund þessa dagana. Hálfleikur er nú í leik liðsins gegn Bayern Munchen og eru heimamenn í Bayern búnir að skora hvorki meira né minna en fjögur mörk gegn engu hjá Dortmund. Roy Makaay hefur skorað tvö markanna og þeir Claudio Pizarro og Hasan Salihamidzic eitt mark hvor. Sport 13.10.2005 18:48
Bayern burstaði Dortmund Bayern Munchen náði í dag þriggja stiga forskoti í þýsku bundesligunni er liðið valtaði yfir lánlausa leikmenn Borussia Dortmund. Áður en yfir lauk höfðu Bæjarar skorað fimm mörk og kláruðu þeir í raun leikinn á fyrsta hálftímanum, en þá komu fjögur markanna. Hollendingurinn Roy Makaay fór á kostum í liði Bayern og skoraði þrennu. Sport 13.10.2005 18:48
Schneider áfram hjá Leverkusen Þýski landsliðsmaðurinn Bernd Schneider hjá Bayer Leverkusen hefur staðfest að hann muni skrifa undir nýjan samning við félagið. Hinn 31-árs gamli Schneider greindi frá því að hann hafi tekið þessa ákvörðun eftir að félagið hafi boðið honum nýjan samning til ársins 2009. Sport 13.10.2005 18:46
Allback í fjögurra leikja bann Sænski framherjinn Marcus Allback, sem leikur með Hansa Rostock í þýsku Bundesligunni, hefur verið dæmdur í fjögurra leikja keppnisbann af þýska knattspyrnusambandinu. Allback missti stjórn á skapi sínu í leik Hansa gegn Schalke á laugardag og sló til Dario Rodriguez, leikmanns Schalke. Sport 13.10.2005 18:46