Tækni
73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 85 ›
Ofurleiðni er næsta skrefið Hraðlestir sem snerta ekki jörðina, ofurrafgeymar og enn öflugri og kröftugri tölvur eru skammt undan. Efni sem nefnast háhita ofurleiðarar munu gera allt þetta að veruleika í framtíðinni. Viðskipti innlent 5.3.2007 22:02
BBC og YouTube í eina sæng BBC og YouTube hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að YouTube býður nú myndskeið frá þremur sjónvarpsrásum BBC. Þá verður hægt að sjá viðtöl BBC við „fræga fólkið“, fréttir og eitthvað skemmtiefni. BBC mun að líkindum sjálft sjá um að hýsa myndskeiðin, en þeim verður veitt á síðu YouTube eins og öðrum myndskeiðum sem þar má sjá. Viðskipti erlent 3.3.2007 15:43
Lenovo innkallar rafhlöður Kínverski tölvuframleiðandinn Lenovo hefur ákveðið að innkalla um 205.000 rafhlöður sem fylgja IBM Thinkpad-fartölvum fyrirtækisins. Japanska tæknifyrirtækið Sanyo framleiddi rafhlöðurnar fyrir fyrirtækið. Innköllunin kemur til viðbótar þeirri rúmlega hálfri milljón rafhlaða undir merkjum Sony sem fyrirtækið innkallaði í fyrra. Viðskipti erlent 2.3.2007 10:00
Tölvuþrjótar skrefi á undan Ný tegund glæpamanna ryður sér til rúms. Þeir gera skipulagðar, fágaðar og arðbærar árásir á netnotendur. Þeir nota tegund hugbúnaðar sem kallast „malware" eða spilliforrit. Þannig plata þeir fólk til gefa sér upplýsingar eða stela þeim án þess að tekið sé eftir. Viðskipti erlent 1.3.2007 15:37
Microsoft læra af Google Það var velgengni Google sem opnaði augu Microsoft fyrir þeim gríðarlegu fjármunum sem eru í húfi þegar kemur að auglýsingum á internetinu. Þetta sagði einn helsti hugbúnaðarhönnuður Microsoft á ráðstefnu í dag. Microsoft ætlar sér stóraukna markaðshlutdeild á vefnum á næstu árum en hingað til hefur meginþorri tekna fyrirtækisins komið í gegnum sölu á Windows-stýrikerfinu og skrifstofuhugbúnaði á borð við Word og Ecxel. Viðskipti erlent 28.2.2007 16:13
Fresta útkomu Apple-TV Raftækja- og tölvurisinn Apple hefur ákveðið að fresta útkomu nýs Apple-TV tengiboxs fyrir sjónvörp þar til um miðjan mars. Talsmaður fyrirtækisins segir ástæðuna vera að pökkun hafi tekið lengri tíma en áætlað var og því þurfi að fresta útkomu Apple-TV um nokkra daga. Viðskipti erlent 27.2.2007 07:32
BitTorrent ætla að selja löglegt efni Veffyrirtækið BitTorrent sem löngum hefur verið talið einn helsti óvinur Hollywood fyrir að hafa fundið upp torrent-skráaskiptastaðalinn hefur nú slegist í lið með kvikmyndaiðnaðinum og ætlar að fara að selja kvikmyndir og sjónvarpsþætti á vefsíðu sinni og dreifa þeim með torrent-tækninni. Einnig er ætlunin að selja tónlist og tölvuleiki á síðu BitTorrent. Viðskipti erlent 26.2.2007 09:05
IBM styðja ekki Linux frá Oracle IBM-tölvuframleiðandinn segist ekki tilbúinn að tryggja að tölvur þeirra geti keyrt nýja útgáfu Linux-stýrikerfisins frá Oracle. Þetta þýðir að ef upp koma vandamál með keyrslu á nýja Linux á tölvum IBM er það vandamál Oracle, ekki IBM sagði talsmaður IBM í gær. Viðskipti erlent 24.2.2007 17:03
Borgaði Apple fyrir iPhone nafnið? Nú eru uppi kenningar um að Apple hafi borgað Cisco milljónir dala fyrir afnot af iPhone nafninu. Fyrirtækin hafa rifust um nafnið í nokkrar vikur þar til í dag að þau náðu samkomulagi um að Apple mætti nota nafnið. Cisco hefur notað iPhone sem vörumerki á internet símaþjónustu í nær sjö ár. Viðskipti erlent 22.2.2007 20:50
Canon kynnir nýjar gerðir myndavéla Canon kynntu í dag til sögunnar fimm nýjar gerðir af stafrænum myndavélum fyrir almenning. Þá kynntu þeir einnig nýja gerð af stafrænni vél fyrir atvinnumenn, 10.1 megapixla 1D Mark III D-SLR. Viðskipti erlent 22.2.2007 16:14
Risarnir saman á sviði Steve Jobs forstjóri Apple og Bill Gates forstjóri Microsoft munu stíga saman á svið í vor á tækniráðstefnu sem haldin verður á vegum Wall Street Journal í Kaliforníu. Jobs og Gates hafa verið aðalleikarar á tölvuöld í meira en þrjátíu ár. Þeir munu saman fjalla um stafræna byltingu undanfarinna ára og framtíð tækninnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jobs og Gates stíga saman á svið en það gerðu þeir síðast á samskonar ráðstefnu fyrir tveimur árum. Viðskipti erlent 21.2.2007 17:43
Afrita auðveldlega af Blue Ray og HD-DVD Það er orðið alþekkt að eftir því sem framleiðendur DVD og geisladiska búa til betri afritunarvarnir finna tölvuþrjótar leiðir til að komast í kringum þær. Nú er þegar kominn í umferð lykill sem fer framhjá afritunarvörnum á bæði Blue-Ray og HD-DVD diskum, öllum. Áður þurfti sérstakan lykil fyrir hvern einstakan Blue-Ray eða HD-DVD disk. Viðskipti erlent 14.2.2007 12:06
Google dæmdir fyrir höfundarréttarbrot Google-fyrirtækið hefur verið dæmt fyrir brot á höfundarréttarlögum fyrir að hafa birt greinar og fyrirsagnir belgískra dagblaða án leyfis. Dómurinn gæti orðið til fordæmis um hvernig leitarvélar tengja á höfundarréttarvarið efni og fréttir á vefnum. Google ætla að áfrýja og segja þjónustu sína Google News algjörlega löglega. Belgíski dómarinn var þeim ekki sammála og sagði fyrirtækið endurvinna og birta efni án leyfis og slíkt væri höfundarréttarbrot. Viðskipti erlent 14.2.2007 08:47
Heimabíóhljómur úr einum hátalara Yamaha YSP-1100 er einn hátalari sem skilar raunhæfum heimabíóhljómi. Tækið endurvarpar hljóði af veggjum og gefur þannig þá tálheyrn að hljóðið komi aftan frá. Viðskipti erlent 12.2.2007 14:12
Kaupa tölvur vegna Vista Sprenging hefur orðið í sölu á nýjum heimilistölvum eftir að Windows Vista kom út. Samkvæmt sölutölum í Bandaríkjunum jókst salan um heil 173% á milli vikna eftir að stýrikerfið nýja kom út í lok janúar. Viðskipti erlent 10.2.2007 15:19
YouTube að ganga af netinu dauðu? Vefsíður á borð við YouTube gætu gengið af internetinu dauðu. Internetfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa ráðist í gríðarlegar fjárfestingar til að anna því stóraukna gagnamagni sem flæðir um internetið eftir að myndbandasíður á netinu öðluðust stórauknar vinsældir. Viðskipti erlent 10.2.2007 14:53
Geta lesið hugsanir Vísindamenn hafa þróað tækni sem getur séð fyrir hvað fólk ætlar sér að gera. Tækið greinir virkni heilans og fylgist með breytingum sem í honum verða eftir því hvað fólk hugsar um. Þannig er hægt að kortleggja aðgerðir í heilanum og því hægt að spá fyrir um hvað fólk er að hugsa. Aðferðin virkar nú í um 70% tilfella. Erlent 9.2.2007 21:52
Eltu vekjaraklukkuna Nú er komin lausn fyrir þá sem aldrei vakna við vekjaraklukkuna á morgnanna. Þetta er vekjaraklukka sem ekki aðeins skapar svakalegan hávaða heldur rúllar hún af stað um leið og hún hringir. Sá sem sefur á sínu græna eyra þarf því að vakna og elta vekjaraklukkuna uppi til að slökkva á henni. Má þá gera ráð fyrir að flestir séu vaknaðir. Viðskipti erlent 8.2.2007 20:03
Dæmdir fyrir ólöglegt verðsamráð á vinnsluminni Samsung hefur samþykkt að greiða 90 milljónir dala í stað þess að sæta dómi í umfangsmiklu máli um ólöglegt verðsamráð á vinnsluminniskubbum í tölvur. Sektir sem fyrirtæki hafa greitt vegna málsins nálgast nú milljarð bandaríkjadala. Viðskipti erlent 8.2.2007 19:44
iPod-spilarar bannaðir á akbrautum New York Íbúar New York borgar sem ganga um með iPod þurfa nú að passa sig að taka af sér heyrnartólin áður en þeir ganga yfir götu, annars eiga þeir yfir höfði sér 100 dollara sekt. Viðskipti erlent 7.2.2007 21:25
DVD spilara í sólskyggnið Nú hafa græjufíklar fengið sniðuga viðbót til að gera bílinn sinn enn nýtískulegri. Þessi græja er í raun DVD-spilari með 7 tommu LCD-skjá sem sýnir gríðarlega skýra mynd innbyggður í sólskyggni bíls. Viðskipti erlent 5.2.2007 15:29
Vefverslanir nýta sér vinsældir YouTube Þeir sem markaðsetja vörur á netinu eru nú í síauknum mæli farnir að nýta sér fádæma vinsældir myndskeiða á netinu á síðum eins og YouTube. Netverslanirnar leggja nú metnað sinn í að gera fyndna „sketsa“ og setja þá á netið sem og að bjóða viðskiptavinum sínum aðstoð við hið sama. Hvort uppátækið beri tilætlaðan árangur til lengri tíma litið skal ósagt látið en víst að það er tilraunarinnar virði. Viðskipti erlent 5.2.2007 20:15
Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. Erlent 30.1.2007 17:43
Windows Vista komið út Sala hófst í dag um allan heim á Windows Vista, nýjasta stýrikerfinu frá Microsoft. Um fyrirtækjaútgáfu stýrikerfisins er að ræða en útgáfan fyrir einstaklinga og heimili kemur út í lok janúar á næsta ári. Stýrikerfið hefur verið í þróun í fimm ár eða síðan Windows XP kom á markað. Viðskipti erlent 30.11.2006 09:24
CCP gleypir þekktan bandarískan leikjaframleiðanda Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf., sem framleiðir og selur EVE Online, og bandaríska útgáfufélagið White Wolf Publishing, Inc. tilkynntu sameiningu fyrirtækjanna um helgina. Fyrirtækin halda starfsemi sinni áfram undir óbreyttum nöfnum, en bandaríska fyrirtækið verður rekið sem dótturfyrirtæki CCP. Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, verður forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækjanna. Í sameiginlegri tilkynningu félaganna segir að við sameininguna verði til stærsta fyirrtæki heims á sviði sýndarheima, eða Virtual Worlds, sem sé nýtt skemmtanaform, aðskilið frá hefðbundnum tölvuleikjum. Leikjavísir 13.11.2006 03:56
Samráð um verð á vinnsluminnum Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú hvort suður-kóreska hátækniframleiðandinn Samsung og bandaríska fyrirtækið Cypress Semiconductor hafi haft með sér samráð um verðlagningu á vinnsluminnum af gerðinni SRAM, sem þau seldu Sony á síðasta ári. Talsmenn Sony segja að fyrirtækið muni vinna með yfirvöldum að lausn málsins. Viðskipti erlent 31.10.2006 13:43
Internet Explorer 7 vafrarinn kominn á vefinn Uppfærsa á Internet Explorer netvafrara Microsoft tölvurisans er nú aðgengileg almenningi. Internet Explorer 7 er fyrsta uppfærsla á vafraranum í rúm 5 ár. Meðal nýjunga er sá möguleiki að opna fjölmarga undirglugga í sama aðal vefglugga, að leita beint á netinu og sérstakt kerfi sem á að koma í veg fyrir ýmsar innrásir tölvuþrjóta sem ásælast upplýsingar um bankareikninga og greiðslukort tölvunotenda. Hægt er að sækja vafrarann að kostnaðarlausu á netinu en fjölmargir fá sjálfkrafa uppfærslu í næsta mánuði noti þeir Windows XP stýrikerfið í tölvum sínum. Erlent 19.10.2006 21:04
Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. Erlent 9.10.2006 20:27
Bara Vodafone Og Vodafone heitir nú bara Vodafone. Nýr tímamótasamningur við alþjóðlega stórfyrirtækið Vodafone Group um nánara samstarf var kynntur í morgun. Vodafone á Íslandi er fyrsta sjálfstæða farsímafélagið sem fær að nota vörumerki Vodafone. Innlent 5.10.2006 11:59
Flytur fyrirlestur um framtíð alþjóðlegs flugs Dr. Assad Kotaite heldur fyrirlestur um Framtíð alþjóðlegs flugs í hátíðarsal Háskóla Íslands á morgun. Dr. Kotaite er fyrrverandi forseti fastaráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (International Civil Aviation Organiztion – ICAO) en hann er hér á Íslandi á vegum, samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar og Flugmálastjórnar Íslands. Ásamt því að halda fyrirlesturinn mun Dr. Kotaite einnig ávarpa þinggesti á Flugþingi sem haldið verður nk. miðvikudag 4. október á Hótel Nordica. Innlent 2.10.2006 18:46