Ástin á götunni

Fréttamynd

Carrick frá í tvær vikur

Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Tottenham verður frá keppni í um það bil tvær vikur eftir að hafa snúið sig á ökkla í leik liðsins við Grimsby í deildarbikarnum í gærkvöldi, en það er leikur sem hann vill eflaust gleyma sem fyrst eins og aðrir leikmenn liðsins.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Barcelona og Valencia

Barcelona og Valencia gerðu jafntefli í stórslag kvöldsins í spænska boltanum, þar sem markverðir liðanna voru í aðalhlutverki. Það voru gestirnir í Valencia sem náðu forystu í leiknum 2-1 eftir skelfileg mistök markvarðar Barcelona, en heimamenn náðu að nýta sér mistök markvarðar Valencia skömmu síðar og jöfnuðu metin.

Sport
Fréttamynd

Jol skammaði leikmenn sína

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, fór ekki fögrum orðum um leik sinna manna í tapinu gegn Grimsby í gærkvöldi, en Tottenham er dottið út úr bikarkeppninni fyrir liði sem er þremur deildum neðar á Englandi.

Sport
Fréttamynd

Enn dramatík í enska bikarnum

Dramatíkin hélt áfram í enska bikarnum í kvöld, en Manchester City varð nýjasta liðið til að hljóta grimm örlög og falla úr keppni, þegar liðið tapaði fyrir Doncaster í vítakeppni. Heiðar Helguson skoraði eitt marka Fulham sem marði Lincoln 5-4.

Sport
Fréttamynd

Ísland úti í kuldanum

Alþjóða knattspyrnusambandið og Knattspyrnusamband Evrópu samþykktu í gær að Skandinavíudeildin í knattspyrnu, eða Royal League, sem er samstarfsverkefni knattspyrnusambanda Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar, fái keppnisleyfi næstu fimm árin. Íslendingum hefur ekki verið boðið að vera með frekar en Finnum.

Sport
Fréttamynd

Neyðarfundur vegna stöðu deildar

Neyðarfundur hefur verið boðaður hjá forráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu vegna minnkandi aðsóknar, lítils skemmtanagildis, minni spennu og hækkandi miðaverðs. Stjórnarformenn liða í úrvalsdeildinni hittast í nóvember næstkomandi. Í ítarlegri úttekt <em>BBC</em> kemur m.a. fram að of margar beinar útsendingar í sjónvarpi, hækkun miðaverðs og varfærni í leikskipulagi liða sé hugsanleg ástæða minnkandi aðsóknar.

Sport
Fréttamynd

Fjórir leikir í Þýskalandi

Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hamburger komst í annað sæti deildarinnar með góðum útisigri á Stuttgart. Leverkusen sigraði Cologne 2-1, Hertha sigraði Duisburg 3-2 og Nurnberg og Schalke skildu jöfn 1-1. Þá vann Mainz sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar það lagði Kaiserslautern 2-0 á útivelli.

Sport
Fréttamynd

Keane ætlar í þjálfun

Roy Keane hefur rætt við forráðamenn Manchester United um að verða þjálfari hjá liðinu eftir að hann leggur skóna á hilluna. Keane, sem fótbrotnaði í leik gegn Liverpool fyrir skömmu, hefur tekið námskeið í þjálfun á undanförnum árum og mun bæta enn frekar við sig á næstunni meðan hann jafnar sig af meiðslunum.

Sport
Fréttamynd

Campo frá í tvo mánuði

Úrvaldseildarlið Bolton varð í dag fyrir því áfalli að spænski miðjumaðurinn Ivan Campo fótbrotnaði á æfingu og talið er víst að hann verði frá keppni í tvo mánuði fyrir vikið.

Sport
Fréttamynd

Beckham sló mótherja sinn

Sergio Sanches, leikmaður Espanyol á Spáni, sagði að David Beckham hefði slegið sig í göngunum þegar leikmenn gengu af velli eftir tap Real Madrid gegn Espanyol í spænsku deildinni um helgina.

Sport
Fréttamynd

Andri til reynslu hjá Öster

Vestmannaeyingurinn Andri Ólafsson heldur nú í vikunni til Svíþjóðar þar sem hann mun vera til reynslu hjá 1. deildarfélaginu Östers IF. Andri hefur verið einn af fastamönnum ÍBV í sumar en hann hefur leikið fimmtán leiki og skorað í þeim þrjú mörk. Forráðamenn Öster hafa fylgst með Andra í nokkurn tíma og hafa nú boðið honum að æfa með félaginu um skeið.

Sport
Fréttamynd

Góð tíðindi fyrir Boro

Steve McClaren, stjóri Middlesbrough fagnar því um þessar mundir að fimm leikmenn liðsins sem hafa verið meiddir eru að snúa til baka og verða væntanlega í leikmannahóp liðsins um helgina þegar það mætir Sunderland.

Sport
Fréttamynd

Ragnar og Helgi til Noregs

Norsku liðin Viking og Odd Grenland hafa boðið Fylkismanninum Helga Val Daníelssyni reynslusamning en þau vilja ólm fá hann í sínar raðir. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns Helga Vals, er ætlunin að hann fari til Noregs á næstunni.

Sport
Fréttamynd

Dramatík í enska deildarbikarnum

Það er jafnan mikið um dramatík og óvænt úrslit í enska deildarbikarnum og keppnin stóð fyllilega undir væntingum í þeim efnum í kvöld. Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs féll úr leik þegar það tapaði 1-0 fyrir fjórðudeildarliði Grimsby og Aston Villa rótburstaði Wycombe 8-3, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 3-1.

Sport
Fréttamynd

Góð sala á Ísland-Svíþjóð

Það er mikil spenna á meðal sænskra knattspyrnáhugamanna fyrir leik liðsins við Íslendinga. Alls hafa 28 þúsund miðar verið seldir á leikinn sem er liður í undankeppni HM en hann fer fram á Råsunda leikvanginum í Stokkhólmi miðvikudaginn 12. október næstkomandi.

Sport
Fréttamynd

Kári og félagar í góðum málum

"Síðustu tveir leikir hafa verið algerir úrslitaleikir og unnust þeir báðir, fyrst 2-0 gegn Malmö og svo í kvöld," sagði Kári við Fréttablaðið í gær en hann var í byrjunarliðinu í báðum leikjum, rétt eins og í flestum leikjum tímabilsins með Gautaborg.

Sport
Fréttamynd

Aðsókn minnkar í úrvalsdeildinni

Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hafa nú boðað til sérstaks fundar til að ræða framtíð deildarkeppninnar, í ljósi þess að aðsókn hefur minnkað nokkuð það sem af er leiktíðinni frá því sem var í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Fjórir leikir í Þýskalandi

Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.Monchengladbach vann góðan sigur á Werder Bremen á heimavelli 2-1 og þá vann Bayern Munchen enn einu sinni, nú gegn Frankfurt á útivelli, 1-0 með marki frá varamanninum Paolo Guerrero.

Sport
Fréttamynd

Rafa fer ekki fet

Fregnir bárust af því í morgun að spænska stórveldið Real Madrid væri að íhuga að nálgast Rafael Benitez stjóra Liverpool, sem næsta knattspyrnustjóra liðsins, en spænska liðinu hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum.

Sport
Fréttamynd

Stórslagur í spænska í kvöld

Barcelona og Valencia mætast í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld eftir að hafa tapað óvænt fyrir Atletico Madrid í síðustu umferð. Víctor Valdéz, markvörður Barcelona og spænska landsliðsins, á von á erfiðum leik.

Sport
Fréttamynd

Mido fær ekki lengra bann

Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham verður leikfær með liði sínu í gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi, en hann klárar að taka út þriggja leikja bann sitt gegn Grimsby í bikarnum í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Enskir vilja Mourinho sem þjálfara

Sá orðrómur hefur farið fjöllunum hærra á Englandi undanfarnar vikur að portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourninho hjá Chelsea muni taka við enska landsliðinu í framtíðinni. Hann hefur nú gengið svo langt að enskir fjölmiðlar slógu því upp í gær að Portúgalinn væri tilbúinn að breyta um þjóðfang til að fá starfið.

Sport
Fréttamynd

Real íhugar að kæra

Forystumenn Real Madríd íhuga að kæra leikinn gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í fyrradag. Dómari leiksins, Julian Rodriguez Santiago, flautaði skömmu áður en Espanyol skoraði eina mark leiksins.

Sport
Fréttamynd

Bjarni horfir til Noregs

Bjarna Ólafi Eiríkssyni, varnarmanninum sterka í Val, stendur til boða að halda til Noregs og æfa með tveimur úrvalsdeildarfélögum, Vålerenga og Odd Grenland.

Sport
Fréttamynd

Capello með fæturna á jörðinni

Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að byrjun liðsins í deildarkeppninni á Ítalíu sé ekkert til að hrópa húrra fyrir þrátt fyrir fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar og hefur áhyggjur af leiknum við Udinese annað kvöld.

Sport
Fréttamynd

Portsmouth datt út úr bikarnum

Nú er leik Gillingham og Portsmouth lokið í enska bikarnum. Það var Gillingham sem hafði sigur eftir framlengdan leik 3-2, eftir að hafa lent undir 2-1 í byrjun síðari hálfleiks. Það féllu því tvö úrvalsdeildarlið úr bikarnum í kvöld, því eins og fram kom hér áðan, tapaði Tottenham fyriri Grimsby.

Sport
Fréttamynd

Grimsby - Tottenham beint á Sýn

Enska deildarbikarkeppnin í knattspyrnu hefst í kvöld. 21 leikur verður háður en viðureign Grimsby og Tottenham verður sýnd beint á Sýn klukkan 18.45.

Sport
Fréttamynd

Hafði tap á tilfinningunni

Guðjón Þórðarson og félagar í Notts County töpuðu sínum fyrsta leik í ensku annari deildinni um helgina þegar liðið lá 2-0 fyrir Shrewsbury. "Ég var með slæma tilfinningu fyrir þessum leik alveg frá því ég vaknaði á laugardagsmorguninn," sagði Guðjón í viðtali á heimasíðu félagsins.

Sport
Fréttamynd

Rússar hafa áhuga á Aston Villa

Forráðamenn Aston Villa hafa staðfest að viðræður séu í gangi við rússneska fjárfesta sem hafa í huga að kaupa félagið. Orðrómi sem kominn var á kreik að því fylgdi loforð um 75 milljónir punda til leikmannakaupa hefur þó verið vísað á bug og það tekið skýrt fram að viðræður séu aðeins á frumstigi.

Sport
Fréttamynd

Gústaf tekur við Haukum

Gústaf Adolf Björnsson er tekinn við þjálfun 1. deildarliðs Hauka í fótbolta. Gústaf Adolf var ráðinn á mánudagskvöld eftir að stjórn Hauka hafði nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi Izudin Daða Dervic sem þjálfaði Hauka síðustu tvö sumur.

Sport