Ástin á götunni
280 281 282 283 284 285 286 287 288 … 334 ›
Meistararnir halda sínu striki Íslandsmeistarar FH halda sínu striki á toppi Landsbankadeildarinnar og í kvöld sigraði Hafnarfjarðarliðið Fylki í Árbænum 2-1. Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrsta mark FH úr víti og Ármann Smári Björnsson bætti við öðru marki með glæsilegum skalla. Christian Christiansen minnkaði muninn fyrir Fylki, en Árbæingar komust ekki lengra í kvöld þrátt fyrir ágæta spilamennsku. Sport 28.5.2006 21:58
Keflavík burstaði KR Keflvíkingar unnu auðveldan 3-0 sigur á KR-ingum í Keflavík í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Magnús Þorsteinsson, Daniel Servino og Símun Samuelsen skoruðu mörk suðurnesjaliðsins. Þá unnu nýliðar Víkings annan sigur sinn í röð þegar þeir skelltu Eyjamönnum 1-0 á útivelli með marki Viktors Bjarka Arnarssonar eftir aðeins þriggja mínútna leik. Sport 28.5.2006 21:15
FH yfir í Árbænum Íslandsmeistarar FH hafa yfir 2-1 gegn Fylki í hálfleik í viðureign liðanna í Landsbankadeildinni. Það var markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson sem kom gestunum yfir á fyrstu mínútu leiksins með marki úr vítaspyrnu og Ármann Smári Björnsson skoraði með glæsilegum skalla á 24. mínútu. Christian Christiansen minnkaði muninn fyrir heimamenn á 30. mínútu eftir skelfileg mistök Daða Lárussonar í marki FH. Sport 28.5.2006 20:45
Keflavík hefur yfir gegn KR Nú er komin hálfleikur í leikjunum tveimur sem hófust klukkan 19:15 í Landsbankadeild karla í kvöld. Keflvíkingar hafa yfir 1-0 gegn KR í Keflavík, þar sem Magnús Þorsteinsson skoraði mark heimamanna eftir aðeins 2 mínútur og nýliðar Víkings hafa yfir 1-0 gegn ÍBV í Eyjum, þar sem Viktor Bjarki Arnarsson skoraði á 3. mínútu. Leikur Fylkis og FH er nýhafinn og er í beinni á Sýn. Sport 28.5.2006 17:51
Haukar lögðu Þór Tveir leikir fóru fram í 1.deild karla í knattspyrnu í dag. Haukar lögðu Þór 1-0 að Ásvöllum í uppgjöri botnliðanna og þá gerðu Leiknir og Víkingur Ólafsvík 3-3 jafntefli í Breiðholtinu. Fram og Fjölnir deila með sér toppsætinu í deildinni að loknum þremur umferðum. Sport 27.5.2006 19:45
FH lagði ÍA Íslandsmeistarar FH lögðu Skagamenn 2-1 í lokaleik dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu á heimavelli sínum í Kaplakrika. Sigurvin Ólafsson kom FH yfir í fyrri hálfleik, en Bjarni Guðjónsson jafnaði metin fyrir ÍA úr vítaspyrnu á 52. mínútu. Það var svo varamaðurinn Atli Guðnason sem tryggði heimamönnum sigurinn á 75. mínútu. Skagamenn eru því enn án stiga í deildinni, en Íslandsmeistararnir eru með fullt hús eftir þrjár umferðir. Sport 25.5.2006 21:51
Góður sigur Valsmanna í Eyjum Valsmenn unnu í dag sinn fyrsta sigur í Landsbankadeildinni þetta sumarið þegar þeir lögðu Eyjamenn örugglega 3-0 í Vestmannaeyjum. Matthías Guðmundsson kom Val á bragðið með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og Garðar Gunnlaugsson bætti svo við tveimur mörkum í síðari hálfleiknum. Sport 25.5.2006 21:23
Skagamenn búnir að jafna Bjarni Guðjónsson var rétt í þessu að jafna leikinn fyrir ÍA gegn FH í 1-1 í Kaplakrika. Markið kom úr vítaspyrnu á 52. mínútu og skömmu síðar björguðu Skagamenn skoti FH á marklínu í annað sinn í leiknum, sem sýndur er beint á Sýn. Sport 25.5.2006 21:10
Íslandsmeistararnir yfir í hálfleik Íslandsmeistarar FH hafa yfir 1-0 í hálfleik gegn Skagamönnum í stórleik kvöldsins í Landsbankadeildinni. Það var Sigurvin Ólafsson sem skoraði markið sem skilur liðin að með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 40. mínútu. Sport 25.5.2006 20:49
Valsmenn komnir í 2-0 í Eyjum Valsmenn eru búnir að bæta við öðru marki sínu í Vestmannaeyjum og var þar að verki Garðar Gunnlaugsson strax í upphafi síðari hálfleiksins. Það er því útlit fyrir að Valur sé að krækja í sín fyrstu stig á Íslandsmótinu í sumar. Staðan í leik FH og ÍA í Hafnarfirði er enn 0-0, en sá leikur er sýndur í beinni á Sýn. Sport 25.5.2006 20:23
Valur yfir í hálfleik gegn ÍBV Valsmenn hafa yfir 1-0 gegn ÍBV í Vestmannaeyjum þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í Landsbankadeild karla. Það var Matthías Guðmundsson sem skoraði markið á 18. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti sínu eftir fyrirgjöf Guðmundar Benediktssonar. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur og eflaust eiga eftir að koma fleiri mörk í Eyjum í síðari hálfleik. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi og þá er rétt að geta þess að leikur FH og ÍA er hafinn í beinni útsendingu á Sýn. Sport 25.5.2006 20:00
Fyrsti sigur Víkings í höfn Nýliðar Víkings unnu í dag sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild karla þegar þeir burstuðu Breiðablik 4-1 í uppgjöri nýliðanna í deildinni. Heimamenn höfðu tögl og haldir í leiknum gegn slökum Blikum. Sport 25.5.2006 17:48
Víkingar í stuði Víkingur hefur yfir 2-0 í hálfleik gegn Breiðablik í fyrsta leik dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hér er um að ræða viðureign nýliðanna í deildinni. Heimamenn komust yfir á 18. mínútu þegar Viktor Bjarki Arnarsson skoraði úr vítaspyrnu og hann lagði svo upp annað markið fyrir félaga sinn Hörð Bjarnason með glæsilegum hætti á 31. mínútu. Sport 25.5.2006 16:43
Cizmek byrjaður að æfa með KR Króatíski miðjumaðurinn Mario Cizmek mætti í dag á sína fyrstu æfingu með liði KR í dag, en sá er fyrrum u-21 árs landsliðsmaður. Þetta kemur fram á heimasíðu KR í dag. Vonast KR-ingar til þess að hann verði kominn með leikheimild fyrir næsta leik liðsins í Landsbankadeildinni, sem er gegn Keflvíkingum á sunnudag. Sport 24.5.2006 22:03
Jafntefli í Grindavík Grindvíkingar og Keflvíkingar gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í síðari leik kvöldsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Jóhann Þórhallsson kom heimamönnum á bragðið á 33. mínútu, en Guðmundur Steinarsson jafnaði metin úr víti skömmu síðar. Sport 24.5.2006 21:57
KR lagði Fylki KR lagði Fylki 1-0 á heimavelli sínum í Frostaskjóli í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Tryggvi Bjarnason sem skoraði markið sem skildi liðina að í kvöld, en bæði lið fengu nokkur tækifæri til að bæta við mörkum í kvöld. Leikurinn var í raun lítið fyrir augað í rokinu, en KR-ingar þiggja eflaust stigin þrjú með bros á vör. Sport 24.5.2006 21:14
Jafnt í hálfleik í Grindavík Nú er kominn hálfleikur í leik Grindavíkur og Keflvíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og staðan er jöfn 1-1. Jóhann Þórhallsson kom heimamönnum yfir á 33. mínútu, en hinn sólbrúni Guðmundur Steinarsson jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu. Grindvíkingar leika með sterkan vindinn í bakið í síðari hálfleiknum, en mjög hvasst er í Grindavík sem og annarsstaðar á suðvesturhorninu í kvöld. Sport 24.5.2006 20:49
Keflvíkingar fljótir að jafna Það tók Keflvíkinga ekki langan tíma að jafna metin í Grindavík, því aðeins fjórum mínútum eftir að heimamenn komust yfir í leiknum, hefur Guðmundur Steinarsson jafnað fyrir Keflavík úr vítaspyrnu - eftir klaufagang í vörn heimamanna. Sport 24.5.2006 20:37
Jóhann kemur Grindvíkingum yfir Jóhann Þórhallsson hefur komið Grindvíkingum í 1-0 gegn grönnum sínum úr Keflavík í sjónvarpsleiknum á Sýn. Mark Jóhanns kom á 33. mínútu og bætti Jóhann þar með fyrir að hafa klúðrað vítaspyrnu í upphafi hálfleiksins. Þetta er fjórða mark Jóhanns í deildinni Sport 24.5.2006 20:34
KR yfir í hálfleik KR-ingar hafa yfir 1-0 gegn Fylki í leik liðanna á KR-velli. Það var Tryggvi Bjarnason sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu, en eftir fjöruga byrjun, dró heldur úr leikmönnum beggja liða í rokinu í Frostaskjóli. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur er hafinn og er í beinni útsendingu á Sýn. Þar er staðan jöfn 0-0, en Grindvíkingar voru rétt í þessu að misnota vítaspyrnu á 10. mínútu leiksins. Sport 24.5.2006 20:07
Tryggvi kemur KR yfir Tryggvi Bjarnason var rétt í þessu að koma KR-ingum yfir gegn Fylki í vesturbænum. Gestirnir úr Árbænum höfðu verið heldur sterkari fram að þessu, en Tryggvi náði að koma KR yfir með skalla af stuttu færi eftir klafs í teig Fylkis. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur hefst klukkan 20 og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 24.5.2006 19:46
Stjarnan lagði KR Stjörnustúlkur lögðu KR 2-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Valur burstaði Þór/KA 6-0, Fylkir sigraði FH 3-0 á útivelli og Breiðablik sigraði Keflavík 3-1 á útivelli. Breiðablik og Valur hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir, en KR og FH eru á botninum án stiga. Sport 23.5.2006 21:19
Stjarnan yfir gegn KR Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Landsbankadeild kvenna. Stjörnustúlkur hafa yfir 1-0 gegn KR í rokinu á Stjörnuvelli, þar sem Helga Jóhannesdóttir skoraði mark heimamanna á 18. mínútu. Valur hefur yfir 4-0 í hálfleik gegn KA/Þór, Breiðablik leiðir 3-0 gegn Keflavík og markalaust er hjá FH og Fylki. Sport 23.5.2006 20:23
2 marka sigur FH í Laugardalnum Íslandsmeistarar FH unnu tveggja marka útisigur á Val, 0-2 á Laugardalsvelli í kvöld í lokaleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Valsmenn voru síst lakari aðilinn í leiknum en máttu sætta sig við að fá bæði mörkin á sig eftir aukaspyrnur Tryggva Guðmundssonar. Ármann Smári Björnsson og Freyr Bjarnason skoruðu mörk Íslandsmeistaranna sem eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Sport 21.5.2006 21:53
Ármann Smári kemur FH yfir gegn Val FH hefur náð forystu gegn Val á Laugardalsvelli, 0-1 í lokaleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Það var fyrrverandi Valsmaðurinn Ármann Smári Björnsson sem skoraði markið með skalla í þverslána og inn eftir aukaspyrnu Tryggva Guðmundssonar af vinstri kanti. Leiknum er lýst beint hér á Vísi. Sport 21.5.2006 20:35
Spangsberg byrjar inni á í stað Garðars Willum Þór Þórsson þjálfari Vals hefur tekið Garðar Gunnlaugsson og Baldur Aðalsteinsson úr byrjunarliði Vals sem tekur á móti FH í stórleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hófst kl. 20 og er í beinni útsendingu á Sýn. Við bendum á að Vísir er einnig með beina útsendingu frá leiknum... Sport 21.5.2006 20:18
Þróttur eitt á toppnum Þróttur Reykjavík er eitt á toppnum í 1. deild karla í knattspyrnu þegar tveimur umferðum er lokið en annarri umferð lauk með þremur leikjum nú undir kvöldið. Þróttarar lögðu Víking Ólafsvík á útivelli, 2-3, HK vann 4-1 sigur á KA á meðan Þór Akureyri gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna fyrir norðan. Sport 21.5.2006 18:14
Jafnt á Skaganum Nú stendur yfir leikur Skagamanna og KR-inga á Akranesi. Leikurinn hófst klukkan 16. Staðan er 1-1.. Guðmundur Gunnarsson kom KR yfir skömmu fyrir miðjan hálfleikinn en skömmu síðar jafnaði Arnar Gunnlaugsson metin úr vítaspyrnu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 20.5.2006 16:32
Glæsimark Grétars tryggði KR sigur Grétar Hjartarson skoraði sigurmark KR í 1-2 útisigri Vesturbæjarliðsins á ÍA í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Sport 21.5.2006 02:53
Keflvíkingar stálu sigrinum í lokin Keflvíkingar lögðu nýliða Víkings 2-1 á heimavelli sínum í Keflavík í kvöld og það var Stefán Örn Arnarson sem skoraði sigurmark liðsins í blálokin. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði fyrsta mark leiksins á 40. mínútu, en Davíð Þór Rúnarsson jafnaði fyrir Víking á þeirri 69. Víkingur hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni. Sport 19.5.2006 21:25