Ástin á götunni
276 277 278 279 280 281 282 283 284 … 334 ›
Nýtt og betra gras.is Fótboltavefurinn Gras.is hefur opnað nýjan vef eftir miklar breytingar. Vefurinn hefur verið endurbættur frá grunni og nýjungum bætt við. Sem dæmi eru boltavaktin og draumadeildin komin á gras.is í samstarfi við Vísi. Sport 15.8.2006 09:38
Eiður Smári ekki með gegn Spánverjum Landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið gefið frí í vináttuleiknum gegn Spánverjum annað kvöld, en þessi ákvörðun var tekin í samráði við lækna og þjálfara landsliðsins. Eiður Smári er nú á fullu með liði sínu Barcelona sem leggur lokahönd á undirbúining sinn fyrir komandi leiktíð. Sport 14.8.2006 12:56
Átta leikir í 10 marka mun eða meira Mikið hefur verið rætt að undanförnu um þá stöðu sem upp er komin í kvennafótboltanum hér á Íslandi. Nokkurrar óánægju gætir meðal stuðningsmanna, áhugamanna og jafnvel þjálfara liða í deildinni með mótafyrirkomulag Íslandsmótsins vegna þeirrar þróunar sem íþróttin hefur tekið. Sport 3.8.2006 21:57
FH úr leik í meistaradeildinni FH tapaði í kvöld 2-0 fyrir Pólska liðinu Legia Varsjá og samanlagt 3-0 í tveimur viðureignum. Pólverjarnir léku mun betur og sigur þeirra var aldrei í hættu. Sport 2.8.2006 21:06
Hættur sem framkvæmdarstjóri og þjálfari annars flokks Sigurður Helgason er hættur sem framkvæmdarstjóri KR sport en hann hefur gegnt því starfi síðan árið 2001. Hann hættir jafnframt sem þjálfari annars flokks KR. Að sögn Jónasar Kristinssonar, formans KR sports, óskaði Sigurður eftir því að vera leystur frá störfum og stjórnin varð við þeirri ósk. Þetta hafi verið gert í sátt beggja aðila. Sport 1.8.2006 18:07
Þróttur leikur gegn KR 1. deildarlið Þróttar tekur á móti KR og Víkingar mæta Keflavík í undanúrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu en dregið var í undanúrslit VISA-bikars karla og kvenna á Hótel Loftleiðum í hádeginu. Í VISA-bikar kvenna mætast Breiðablik og Fjölnir og Valur og Stjarnan. Sport 1.8.2006 12:51
Valur og KR sigruðu Valsmenn rúlluðu yfir Eyjamenn 5-0 á laugardalsvellinum í kvöld. Garðar Jóhannsson skoraði þrennu og Matthías Guðmundsson skoraði tvö mörk. KR lagði Fylki að velli 2-1 í Árbænum þar sem Björgólfur Takefusa skorað bæði mörk KR-inga en Albert Ingason minkaði muninn undir leikslok fyrir Fylkir. Sport 31.7.2006 21:23
Bologna fylgist með Veigari Páli Veigar Páll er markahæstur í norsku deildinni og þakkar það ekki síst breyttu mataræði. Mörg erlend lið eru sögð vera að fylgjast með framgangi Veigars Páls, meðal annars Tottenham, Charlton og Bologna. Sport 31.7.2006 21:08
Framkvæmdir á áætlum Framkvæmdir á laugardalsvelli eru á áætlun og selt verður í 10.000 sæti fyrir vináttuleikinn við Spánverja, Þriðjudaginn 15. ágúst. Þakið er þó ekki tilbúið og aðstaða veitinga og fjölmiðla verður ekki klárt fyrr enn um áramót. Sport 31.7.2006 20:51
Skipt um dómara í miðjum leik Jóhannes Valgeirsson gat ekki haldið áfram dómgæslu í leiknum vegna þeirra meiðsla sem hann varð fyrir í Grindavík fyrir skömmu. Garðar Örn Hinriksson hefur tekið við flautunni en hann dæmdi leik ÍA og FH í gær. Staðan í leiknum er 1-0 fyrir KR, Björgólfur Takefusa skoraði úr vítaspyrnu á 51. mínútu. Sport 31.7.2006 20:22
Dennis Siim aftur til FH Íslandsmeistarar FH í knattspyrnu hafa á ný fengið til sín danska miðjumanninn Dennis Siim. Hann á að fylla í skarð Davíðs Þórs Viðarssonar sem leikur ekki meira með liðinu á árinu vegna meiðsla. Sport 29.7.2006 20:28
Indriði Sigurðsson til liðs við KR Indriði Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við KR eftir því sem krreykjavik.is greinir frá. Indriði sem leikið hefur með belgíska liðinu Genk er laus allra mála gerði opinn áhugamannasamning við KR og er því heimilt að fara frá félaginu, bjóðist honum atvinnumannasamingur erlendis. KR vonast til að Indriði verði gjaldgengur á mánudag þegar KR mætir Fylki í 12. umferð Landsbankadeildarinnar. Sport 29.7.2006 16:42
Breiðablik lagði Víking Einn leikur fór fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik vann góðan sigur á Víkingi í Kópavogi 1-0. Það var markahrókurinn Marel Baldvinsson sem skoraði sigurmarkið strax á 8. mínútu leiksins. Blikar, sem hafa verið í fallbaráttu framan af sumri, erum með sigrinum skyndilega komnir í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig eftir 12 leiki. Víkingur er í sjötta sætinu með 15 stig. Sport 27.7.2006 21:17
Valur úr leik Valur er úr leik í forkeppni Evrópukeppni félagsliða eftir að liðið gerði markalaust jafntefli á heimavelli við danska liðið Bröndby í kvöld. Danska liðið vann fyrri leikinn 3-1 og er því komið áfram í keppninni. Sport 27.7.2006 20:48
Skagamenn úr leik þrátt fyrir sigur Skagamenn eru úr leik í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu þrátt fyrir 2-1 sigur á danska liðinu Randers á heimavelli sínum á Skipaskaga í kvöld. Hjörtur Hjartarson kom ÍA yfir í fyrri hálfleik, en Danirnir jöfnuðu skömmu síðar. Það var svo Bjarni Guðjónsson sem tryggði ÍA sigurinn með marki úr víti þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Sport 27.7.2006 19:51
Jafnt í hálfleik hjá Val og Bröndby Ekkert mark hefur litið dagsins ljós í leik Vals og Bröndby í forkeppni Evrópukeppni félagsliða þegar flautað hefur verið til leikhlés. Valsmenn hafa verið sterkari aðilinn á vellinum en hafa þó ekki skapað sér mörg marktækifæri. Danska liðið vann fyrri leikinn 3-1 og því er erfitt verkefni framundan hjá Hlíðarendapiltum. Sport 27.7.2006 19:34
Jafnt í hálfleik á Skaganum Staðan í leik Skagamanna og danska liðsins Randers í forkeppni evrópukeppni félagsliða er enn jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Hjörtur Hjartarson skoraði mark ÍA á 27. mínútu. Gestirnir hafa verið sterkari í fyrri hálfleiknum og fátt í stöðunni sem bendir til þess að heimamenn komst áfram í keppninni. Sport 27.7.2006 18:58
Tvö mörk komin á Skaganum Staðan í leik Skagamanna og danska liðsins Randers er orðin 1-1 eftir hálftíma leik. Hjörtur Hjartarson kom heimamönnum yfir á 28. mínútu, en gestirnir jöfnuðu aðeins tveimur mínútum síðar. Danska liðið vann fyrri leikinn 1-0 ytra. Sport 27.7.2006 18:30
Treysti strákunum til að klára þetta Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, varð fyrir því óláni að slíta hásin í leiknum við Legia Varsjá í forkeppni meistaradeildarinnar í gær og segist ekki geta spilað fótbolta fyrr en í fyrsta lagi eftir sex mánuði. Davíð fer í aðgerð í dag. Sport 27.7.2006 13:23
Vill ekki tjá sig Guðmundur Viðar Mete, leikmaður Keflavíkur, er ekki tilbúinn að svara þeim alvarlegu ásökunum sem Hjörtur Hjartarson, leikmaður ÍA, bar hann í Kastljósinu á þriðjudag. Hjörtur Hjartarson viðurkenndi í þættinum að hafa kallað Guðmund "Tyrkjadjöful" en sagði jafnframt að Guðmundur væri ekki saklaus enda hefði hann ögrað sér, hótað sér lífláti sem og líkamsmeiðingum. Hjörtur segir Guðmund einnig hafa látið ófögur orð falla um móður sína. Sport 26.7.2006 16:26
Fékk gæsahúð þegar ég heyrði afmælissönginn Margrét Lára Viðarsdóttir hélt upp á tvítugsafmælið sitt með stæl í gærkvöldi þegar hún skoraði hvorki meira né minna en sjö mörk þegar Valur burstaði Fylki í Landsbankadeild kvenna. Hópur stuðningsmanna Valsliðsins söng afmælissönginn fyrir hana eftir leikinn, en Margrét skorar tæp þrjú mörk að meðaltali í leik í sumar sem er tölfræði sem hvaða handboltamaður gæti verið stoltur af. Sport 26.7.2006 15:43
Margrét Lára skoraði sjö mörk á afmælisdaginn Valskonur halda uppteknum hætti í toppbaráttunni í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu og í kvöld valtaði liðið yfir Fylki 14-0 á Valbjarnarvelli. Margrét Lára Viðarsdóttir hélt upp á tvítugsafmælið sitt með því að skora 7 mörk í leiknum. Þrír aðrir leikir fóru fram í deildinni í kvöld. Sport 25.7.2006 22:13
Þáttur um Essomótið á Sýn í kvöld Í kvöld klukkan 20:10 verður á dagskrá Sýnar sérstakur heimildarþáttur í umsjón Þorsteins Gunnarssonar íþróttafréttamanns um Essomótið í knattspyrnu sem fram fór í 20. sinn á dögunum. Mótið var venju samkvæmt haldið á Akureyri og verður stemmingunni á vellinum sem og í kring um mótið gerð góð skil í þætti kvöldsins. Sport 25.7.2006 17:40
Bjarnólfur í tveggja leikja bann Nokkrir leikmenn úr efstu deild karla í knattspyrnu voru dæmdir í leikbann í dag þegar aganefnd KSÍ kom saman og fundaði. Bjarnólfur Lárusson, leikmaður KR, var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að vera rekinn af velli gegn fyrrum félögum sínum í ÍBV í Visa-bikarnum í gær. Sport 25.7.2006 17:31
Birkir Már framlengir við Val Knattspyrnudeild Vals hefur framlengt samning sinn við varnarmanninn Birkir Má Sævarsson til ársins 2010. Birkir er uppalinn Valsmaður og hefur spilað ágætlega með liðinu í sumar. Þá var Birkir fyrir nokkru valinn í íslenska U21 árs landsliðshópinn. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. Sport 25.7.2006 16:50
KR-ingar í undanúrslit KR-ingar eru komnir í undanúrslitin í Visa-bikarnum eftir sigur á ÍBV í vítakeppni í Frostaskjóli í kvöld. Bjarni Aðalsteinsson kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik, en Björgólfur Takefusa jafnaði fyrir KR í þeim síðari. Staðan var jöfn 1-1 að lokinni framlengingu og það var markvörðurinn Kristján Finnbogason sem var hetja sinna manna og tryggði þeim 4-2 sigur. Sport 24.7.2006 22:07
Þáttur um Esso-mótið á Sýn annað kvöld Annað kvöld verður á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar sérstakur þáttur helgaður Esso-mótinu í knattspyrnu sem fram fór á Akureyri á dögunum, en þetta var í 20. sinn sem mótið er haldið. Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður var á svæðinu og tók fjölda viðtala við keppendur og áhorfendur á mótinu. Þátturinn hefst klukkan 20:10 annað kvöld. Sport 24.7.2006 13:46
Keflvíkingar lögðu Skagamenn í frábærum leik Keflavík, Víkingur og Þróttur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Visa-bikars karla í knattspyrnu. Keflvíkingar lögðu Skagamenn 4-3 í frábærum leik á Skaganum, Víkingur lagði Val 2-1 á útivelli og Þróttarar gerðu góða ferð norður á Akureyri og burstuðu KA 5-1. Á morgun mætast svo KR og ÍBV um síðasta sætið í undanúrslitunum. Sport 23.7.2006 21:30
Jafnt á öllum vígstöðvum í hálfleik Nú hefur verið flautað til leikhlés í leikjunum þremur sem fram fara í 8-liða úrslitum Visa-bikarsins í knattspyrnu og er staðan jöfn 1-1 í þeim öllum. Valsmenn taka á móti Víkingum á Laugardalsvelli, ÍA tekur á móti Keflvíkingum á Skaganum og þá mætast KA og Þróttur fyrir norðan. Sport 23.7.2006 20:39
Ísland í fjórða sæti á NM Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri tapaði í dag 1-0 fyrir Svíum í leik um þriðja sætið á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu. Íslenska liðið hafnaði því í fjórða sæti á mótinu. Bandaríkin og Þýskaland mætast í úrslitaleik mótsins og er hann þegar hafinn. Sport 22.7.2006 14:14