Ástin á götunni
271 272 273 274 275 276 277 278 279 … 334 ›
Mæta liði frá Litla-Hrauni í kvöld Knattspyrnuliðið KF Nörd fær sitt erfiðasta verkefni til þessa í kvöld þegar liðið mætir knattspyrnuúrvali fanga á Litla-Hrauni í vikulegum raunveruleikaþætti á Sýn. Þátturinn hefst klukkan 21:15 og forvitnilegt verður að sjá hvernig Njörðunum vegnar gegn glæpamönnunum innan girðingar. Íslenski boltinn 28.9.2006 17:17
Ísland hefur yfir í hálfleik Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur 2-0 forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign sinni við Portúgala ytra í lokaleik sínum í riðlinum í undankeppni HM 2007. Katrín Jónsdóttir kom íslenska liðinu í 1-0 eftir aðeins 9 mínútur og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði annað markið eftir 22 mínútur. Íslenski boltinn 28.9.2006 16:54
ÍA vill halda Arnari og Bjarka Stjórn meistaraflokks ÍA hefur farið þess á leit við þá Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni að þeir verði áfram í röðum félagsins eftir að ljóst varð að Guðjón Þórðarson tæki við starfi þeirra sem þjálfari félagsins í Landsbankadeildinni. Þetta kemur fram á vefnum Skessuhorni í dag. Íslenski boltinn 28.9.2006 15:04
Ásgeir Elíasson að taka við ÍR Ásgeir Elíasson verður að öllu óbreyttu tilkynntur sem næsti þjálfari 2. deildarliðs ÍR á morgun. Heimildir NFS herma að stutt sé í að samningar náist milli Ásgeirs og Breiðhyltinga, en Ásgeir var látinn fara frá Fram á dögunum og við starfi hans þar tók Ólafur Þórðarson. Íslenski boltinn 28.9.2006 13:46
Guðjón Þórðarson tekur við liði ÍA Guðjón Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍA um að taka við þjálfun liðsins í Landsbankadeildinni. Það hefur lengi legið í loftinu að Guðjón sneri aftur á fornar slóðir, en Fréttablaðið birti fyrst fréttir þessa efnis í fyrir um tveimur vikum. Íslenski boltinn 28.9.2006 13:25
Björgólfur bestur í síðustu umferðunum Framherjinn Björgólfur Takefusa hjá KR var í dag útnefndur besti leikmaður 13.-18 umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Teitur Þórðarson hjá KR var kjörinn besti þjálfarinn og Garðar Örn Hinriksson var kjörinn besti dómarinn. Þá þóttu stuðningsmenn Víkings þeir bestu í síðustu umferðunum og Skagamenn áttu flesta leikmenn í úrvali umferðanna. Íslenski boltinn 26.9.2006 15:52
Mannabreytingar hjá ÍA Ný rekstrarstjórn hefur tekið við ÍA en fráfarandi stjórn hefur óskað eftir því að vera leyst undan störfum. Félagið sendi frá sér fréttatilkynningu þessa efnis nú fyrir skömmu. Íslenski boltinn 26.9.2006 13:15
Árangurinn var óásættanlegur Hreinn Hringsson, fyrirliði knattspyrnuliðs KA, er mjög óánægður með spilamennsku liðsins í sumar og segir árangurinn á tímabilinu vera óásættanlegan. Þetta segir hann í viðtali við heimasíðu KA. „Sumarið fótboltalega séð var engan veginn nógu gott og árangur sumarsins þar af leiðandi slakur og óásættanlegur,“ segir Hreinn meðal annars en bætir því við að væntingarnar til liðsins hafi ef til vill verið of miklar, enda hafi miklar breytingar verið gerðar á liðinu frá því í fyrra. Íslenski boltinn 24.9.2006 19:26
Víkingar jafna og FH-ingar skora Viktor Bjarki átti gott skot í stöng en Rodney G. Perry fylgdi vel á eftir og skoraði af stuttu færi eftir góða sókn Víkinga. FH-ingar eru komnir í 1-0 gegn Grindavík og útlitið því heldur betur orðið dökkt fyrir Grindavík. Íslenski boltinn 23.9.2006 15:24
Valur 2-1 KR Fyrrverandi leikmaður KR-inga Garðar Jóhannsson hefur skorað gegn sínum gömlu félögum í KR. Hann fékk boltann á markteig og gat hreinlega ekki annað en skorað. Rétt áður voru KR-ingar æfir eftir að Egill Már Markússon sýndi Kjartani Sturlusyni aðeins gult spjald eftir að hafa brotið á Grétari Hjartarsyni þegar hann var sloppinn í gegn. Grétar fékk sendingu inn fyrir og var á undan Kjartani í boltann sem síðan felldi hann. Brotið var utan teigs og Grétar var ekki á leið í átt að marki en ljóst er að einhverjir dómarar hefðu vikið Kjartani af velli. Íslenski boltinn 23.9.2006 15:11
Spáð í spilin Eins og staðan er nú í hálfleik eru Grindvíkingar í fallsæti með ÍBV en það þarf ekki mikið til að það breytist. Sigri Grindvíkingar FH og ekkert annað breytist þá falla Víkingar. Ef Víkingar hins vegar gera jafntefli við ÍA og Grindavík vinnur FH og annað breytist ekki þá falla Fylkismenn. Breiðablik og ÍA eru með bestu stöðuna í hálfleik. Íslenski boltinn 23.9.2006 14:51
Staðan í leikjunum Nú er kominn hálfleikur í leikjum dagsins í lokaumferð Landsbankadeildarinnar. Leikirnir eru allir fjörugir og mörg mörk hafa verið skoruð. Hjá Val og KR er staðan 1-1, Breiðablik er 2-0 yfir gegn Keflavík, ÍBV er 2-0 yfir gegn Fylki, ÍA er 1-0 yfir gegn Víkingi og hjá Grindvík og FH er markalaust. Íslenski boltinn 23.9.2006 14:44
Skagamenn skora Skagamenn eru komnir í 1-0 í Víkinni gegn Víkingum það var Bjarki Gunnlaugsson sem skoraði. Eyjamenn eru líka komnir yfir gegn Fylki þar var það Bjarni Rúnar Einarsson sem skoraði. Grindvíkingar sækja án afláts og mikið mæðir á vörn FH. Íslenski boltinn 23.9.2006 14:27
Lokaumferðin í Landsbankadeildinni á morgun Það verður mikið um dýrðir á Sýn um helgina þar sem úrslit ráðast í lokaumferð Landsbankadeildar karla. Fimm lið geta enn fallið úr deildinni og þá verður slagur Vals og KR um annað sætið á Laugardalsvellinum. Einnig verður nóg um að vera í spænska boltanum, þar sem Eiður Smári og félagar í Barcelona mæta Valencia í stórleik helgarinnar. Íslenski boltinn 22.9.2006 13:54
Guðmundur áfram hjá Val Knattspyrnudeild Vals hefur tilkynnt það á heimasíðu sinni að félagið hafi náð samkomulagið við Guðmund Benediktsson um að spila í það minnsta eitt ár til viðbótar með liðinu. Guðmundur hefur verið lykilmaður í Valsliðinu síðan hann gekk í raðir félagsins frá KR fyrir tímabilið í fyrra. Íslenski boltinn 21.9.2006 17:21
Samningur Ásgeirs ekki framlengdur Knattspyrnudeild Fram hefur tilkynnt að samningur Ásgeirs Elíassonar þjálfara verði ekki framlengdur og þykir þetta gefa þeim orðrómi byr undir báða vængi að félagið sé í viðræðum við Ólaf Þórðarson, fyrrum þjálfara ÍA. Fram vann sigur í 1. deildinni í sumar og vann sér sæti í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð. Íslenski boltinn 21.9.2006 14:16
Hættur viðræðum við Þrótt Ólafur Þórðarson, fyrrum þjálfari Skagamanna, staðfesti í samtali við NFS í dag að hann væri hættur viðræðum við knattspyrnudeild Þróttar og gaf þá skýringu að félagið hefði ekki verið tilbúið að veita nauðsynlegan tíma til að vinna úr sínum málum áður en hann gæfi svör um framhaldið. NFS hefur heimildir fyrir því að Ólafur hafi verið í viðræðum við Fram, en Ólafur segist vera í viðræðum við tvö félög og neitar að nokkuð upp um hver þau eru. Íslenski boltinn 20.9.2006 15:41
Langt í land í máli ÍR og KA/Þórs Skrifstofa KSÍ hefur viðurkennt að hafa gert mistök með því að veita markverði kvennaliðs ÍR keppnisleyfi fyrir úrslitaleikina gegn Þór-KA um laust sæti í Landsbankadeild kvenna, því markvörðurinn var þar með að spila með sínu þriðja liði í sumar sem er bannað. Þetta kom fram í íþróttafréttum NFS í kvöld. Íslenski boltinn 19.9.2006 18:38
Þrír Blikar í banni í lokaumferðinni Þrír leikmanna Breiðabliks munu taka út leikbann í lokaumferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu um helgina samkvæmt úrskurði aganefndar KSÍ. Þetta eru þeir Nenad Zivanovic, Guðmann Þórisson og Olgeir Sigurgeirsson, en þeir fá allir eins leiks bann eftir að hafa krækt í 6 gul spjöld í deildinni. Íslenski boltinn 19.9.2006 17:03
Stefnan sett á 100.000 áhorfendur Knattspyrnusamband Íslands greinir frá því á vef sínum í dag að ekki sé ólíklegt að aðsóknarmetið í efstu deild karla í knattspyrnu verði slegið um næstu helgi þegar lokaumferð Landsbankadeildarinnar fer fram. Stefnan er sett á að fá 100 þúsund manns á völlinn í fyrsta sinn. Íslenski boltinn 18.9.2006 16:39
Breiðablik mætir Arsenal Kvennalið Breiðabliks tryggði sér í dag sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða þegar liðið lagði Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi 1-0 í lokaleik sínum í 16-liða úrslitunum í Finnlandi. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Blika skömmu fyrir leikslok og fær Kópavogsliðið nú það erfiða verkefni að mæta Englandsmeisturum Arsenal í 8-liða úrslitunum. Íslenski boltinn 17.9.2006 13:10
FH Íslandsmeistari - ÍBV fallið FH-ingar eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu þriðja árið í röð eftir öruggan 4-0 sigur á Víkingi á heimavelli sínum í Kaplakrika. Á sama tíma lögðu Skagamenn baráttuglaða Eyjamenn 4-2 á Skipaskaga og sendu ÍBV því niður um deild. Sport 16.9.2006 17:46
Markasúpa á Skaganum Nú er kominn hálfleikur í viðureignum dagsins í Landsbankadeildinni, en hér er um að ræða næst síðustu umferð mótsins. FH-ingar eru komnir langt með að tryggja sér þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð, en þeir hafa 2-0 forystu gegn Víkingi á heimavelli sínum og ráða algjörlega ferðinni. Fimm mörk litu dagsins ljós í fyrri hálfleiknum. Sport 16.9.2006 16:49
FH-ingar hafa náð forystu Íslandsmeistarar FH virðast staðráðnir í að misnota ekki enn eitt tækifærið til að tryggja sér þriðja titilinn í röð, en liðið hefur náð 1-0 forystu gegn Víkingi í Kaplakrika. Fjórir aðrir leikir standa nú yfir í næst síðustu umferð deildarinnar og hægt er að fylgjast náið með gangi mála á Boltavaktinni hér til hliðar á Vísi.is. Sport 16.9.2006 16:20
HK í Landsbankadeildina Kópavogsliðið HK tryggði sér í dag sæti í Landsbankadeildinni ásamt Fram á næstu leiktíð, þrátt fyrir að tapa 1-0 fyrir Safamýrarliðinu í lokaumferðinni í dag. Á sama tíma tapaði Fjölnir 1-0 fyrir KA fyrir norðan og því hélt HK öðru sætinu í deildinni. Sport 16.9.2006 16:14
Menn þora ekki að spila fótbolta Teitur Þórðarson segir það agjört lykilatriði fyrir framþróun íslenskrar knattspyrnu að fjölga liðum í efstu deild. Í samtali við Þorstein Gunnarsson á NFS í kvöld sagði Teitur að vegna þess hve fá lið séu í Landsbankadeildinni, sé hver leikur það mikilvægur að liðin þori einfaldlega ekki að spila fótbolta. Sport 15.9.2006 18:17
Willum framlengir við Val Willum Þór Þórsson hefur framlengt samning sinn við Valsmenn um tvö ár og verður því samningsbundinn félaginu næstu þrjú árin. Willum hefur náð ágætum árangri með Val síðan hann tók við liðinu og undir hans stjórn varð liðið bikarmeistari á síðustu leiktíð. Þetta kemur fram á vef Valsmanna í dag. Sport 15.9.2006 13:33
Lúðarnir fara upp á Skaga Vikulegur sjónvarpsþáttur um knattspyrnufélagið Nörd verður á dagskrá Sýnar klukkan 21:15 í kvöld, en þar munu hinir jákvæðu lúðar meðal annars halda upp á Skipaskaga, þar sem þeir munu etja kappi við lið heimamanna. Sport 14.9.2006 21:04
Blikastúlkur töpuðu fyrir Frankfurt Kvennalið Breiðabliks tapaði í dag 5-0 fyrir Evrópumeisturum Frankfurt í öðrum leik sínum í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Breiðablik spilar lokaleik sinn í 16-liða úrslitunum um helgina og með sigri í þeim leik getur liðið tryggt sér áframhaldandi þáttöku í keppninni. Sport 14.9.2006 18:09
Atli Eðvaldsson hættur hjá Þrótti Atli Eðvaldsson ætlar að hætta að þjálfa knattspyrnulið Þróttar í 1. deildinni eftir lokaleik liðsins gegn Stjörnunni á laugardag. Þetta kemur fram í fréttum NFS í kvöld, en Hans Steinar Bjarnason ræðir við Atla í íþróttafréttum klukkan 18:12 á NFS. Sport 14.9.2006 17:26