Kvöldfréttir Stöðvar 2
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 62 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ný og djúp sprunga opnaðist í Grindavík í dag en hættumat Veðurstofunnar var fært niður þar sem eldgosi er formlega lokið. Bláa lónið verður opnað á morgun. Innlent 19.1.2024 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landris heldur áfram undir Svartsengi og næsta gos gæti orðið innan mánaðar að mati sérfræðings á Veðurstofu Íslands. Vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík í dag var frestað vegna snjóþyngsla en unnið hefur verið að því að moka snjó í bænum í dag. Innlent 18.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Það er full ástæða til að stjórnvöld skoði sérstaka lagasetningu fyrir Grindavík vegna nýliðinna atburða að mati forstjóra Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Sífellt fleiri bætast í hóp þeirra sem telja að ekki verði hægt að búa í bænum á næstu misserum, árum eða jafnvel áratugum. Fréttir 17.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingar komu saman á íbúafundi í Laugardalshöll síðdegis í dag þar sem vísindamenn, almannavarnir og ráðherrar fóru yfir stöðu mála. Við verðum í beinni frá fundinum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og förum yfir málin sem brenna á fólki. Innlent 16.1.2024 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Verulega hefur dregið úr gosvirkni við Grindavík og hraun streymir aðeins úr einum gíg í sprungunni fjær bænum. Mikil gliðnun hefur þó orðið í Grindavík, nýjar sprungur hafa myndast og aðrar stækkað. Innlent 15.1.2024 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá Hraun frá gosi við Grindavík er komið inn í bæinn og standa tvö hús í ljósum logum. Víðir Reynisson, aðstoðarlögregluþjónn, segir verstu sviðsmyndina hafa raungerst en enn er möguleiki á að nýjar sprungur opnist inni í bænum. Innlent 14.1.2024 17:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkislögreglustjóri hefur fyrirskipað brottflutning allra úr Grindavík á grundvelli nýs áhættumats á svæðinu. Bannað verður að dvelja og starfa í bænum í þrjár vikur frá og með mánudeginum. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og ræðum við Víði Reynisson í beinni útsendingu. Innlent 13.1.2024 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leit að manni sem féll ofan í sprungu í Grindavík stendur enn sem hæst, næstum tveimur og hálfum sólarhring eftir að slysið varð. Við förum yfir stöðuna á leitinni í beinni útsendingu frá vettvangi. Innlent 12.1.2024 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leit að manni sem féll niður um sprungu í Grindavík heldur áfram við erfiðar aðstæður. Við ræðum bæði við aðgerðastjóra á slysstað og bæjarstjóra Grindavíkur í fréttatímanum og förum auk þess yfir stöðuna í beinni útsendingu frá vettvangi. Innlent 11.1.2024 17:58
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leit stendur enn yfir að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í dag. Aðstæður á vettvangi eru afar hættulegar fyrir björgunarfólk; sprungan er mjög djúp og jarðvegur ótryggur. Fréttir 10.1.2024 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hjól atvinnulífsins eru smám saman farin að snúast í Grindavík, þrátt fyrir yfirvofandi hættu á eldgosi nálægt bæjarmörkunum. Framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækis, sem opnaði í dag í fyrsta sinn frá rýmingu, segir tilfinningarnar blendnar Innlent 9.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarandstaðan er ekki samstíga um hvort leggja eigi fram vantrauststillögu á matvælaráðherra þegar Alþingi kemur saman á ný. Sumir eru á því á meðan aðrir telja þetta vandamál ríkisstjórnarinnar. Innlent 8.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með óbragð í munni. Innlent 7.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra telur ekki ástæðu fyrir matvælaráðherra til að segja af sér í ljósi álits Umboðsmanns alþingis um hvalveiðibann í sumar. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir afsögn Bjarna Benediktssonar hafa skapað fordæmi og Svandís eigi að víkja. Innlent 6.1.2024 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Matvælaráðherra telur ekki tilefni til að segja af sér þrátt fyrir álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að ákvörðun hennar um að stöðva hvalveiðar hafi verið í andstöðu við lög. Hún taki álitið alvarlega en er á því að endurskoða þurfi hvalveiðar. Innlent 5.1.2024 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Læknir á Landspítalanum segist aldrei hafa séð það svartara. Spítalinn er yfirfullur, sjúklingar víða á göngum og biðtími þeirra sem leita á bráðamóttöku getur verið allt að átta klukkustundir. Innlent 4.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjartsýni ríkir hjá hjá samninganefndum SA og ASÍ um yfirstandandi kjaraviðræður þar sem kallað er eftir þjóðarsátt. Hið opinbera og atvinnulífið þurfi að halda aftur af hækkunum svo hún náist. Formaður verkalýðsfélags segir að á 20 ára ferli hafi hann ekki séð annan eins samtakamátt. Innlent 3.1.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Unnið verður allan sólarhringinn við varnargarða við Grindavík en undirbúningur framkvæmdarinnar hófst í dag. Líkur á gosi gætu verið að aukast þar sem dregið hefur úr landrisi við Svartsengi en það gæti verið vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp. Innlent 2.1.2024 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti það í áramótaávarpi sínu í dag að hann muni ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu fyrir forsetakosningar í sumar. Margir landsmenn segjast munu sakna Guðna en aðrir segja ákvörðunina engu skipta. Innlent 1.1.2024 18:00
Hádegisfréttir Stöðvar 2 Áramótabrennur verða með hefðbundnum hætti víða á höfuðborgarsvæðinu í ár. Þó ekki í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem engar brennur verða. Íbúar segja margir hverjir svekkjandi að geta ekki kvatt gamla árið með brennu. Við ræðum við íbúa Kópavogs og Hafnarfjarðar í hádegisfréttum á Stöð 2. Innlent 31.12.2023 11:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður farið yfir nýjar niðurstöður könnunar Maskínu sem sýna að utanríkisráðherra er sá ráðherra sem flestir telja hafa staðið sig verst á kjörtímabilinu. Innlent 30.12.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra tilkynnti í dag uppbyggingu varnargarða fyrir norðan Grindavík, til að verja bæinn fyrir mögulegu hraunflæði. Í kvöldfréttunum skoðum við fyrirhugaða staðsetningu garðanna og ræðum við bæjarstjóra Grindavíkur, sem segir íbúa þakkláta. Innlent 29.12.2023 17:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við innviðaráðherra, sem telur skynsamlegt að byggja varnargarða norðan við Grindavíkurbæ. Framkvæmdin sé vissulega dýr en garðarnir komi til með að verja mun meiri verðmæti. Innlent 28.12.2023 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Land heldur áfram að rísa við Svartsengi á svipuðum hraða og fyrir eldgosið 18. desember. Líkur á eldgosi aukast með degi hverjum. Íbúar í Grindavík eru margir ósáttir við lítinn viðbúnað og telja að meira væri hægt að gera til að skrásetja innkomur í bæinn eftir að fregnir bárust af þjófnaði. Innlent 27.12.2023 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Við förum yfir færðina í fréttatímanum nú þegar margir snúa heim eftir jólahald síðustu daga. Björgunarsveitir þurftu að aðstoða ökumenn vegna ófærðar í dag. Akstursskilyrði eru slæm og gul viðvörun í gildi. Innlent 26.12.2023 17:50
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum var aflétt síðdegis í dag. Björgunarsveitarmaður á Flateyri segir snjóþyngslin ekki hafa aftrað jólahaldi, og fólk í bænum hið rólegasta yfir öllu saman. Innlent 25.12.2023 18:01
Hádegisfréttir Stöðvar 2 Óvissustig vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Norðurlandi og Vestfjörðum. Snjóflóð hafa fallið í grennd við bæi og helstu vegir eru ófærir eða lokaðir á Vestjörðum. Björgunarsveitarmaður á Flateyri segir alls ekkert ferðaveður á svæðinu. Hann kippir sér ekkert upp við að halda jólin innilokaður í bænum. Innlent 24.12.2023 11:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingur sem ætlar að halda jól í bænum segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að fara heim um jólin. Síðustu dagar hafi verið algjör rússíbanareið. Fjölskyldan verður ein fárra sem dvelur í Grindavík um hátíðarnar eftir að bærinn var opnaður að fullu í gær. Innlent 23.12.2023 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingar mega vera heima yfir jólin þrátt fyrir að enn sé talin töluverð hætta. Björgunarsveitir verða ekki í bænum og fólk sem ákveður að dvelja þar verður á eigin ábyrgð. Innlent 22.12.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eldgosinu við Sundhnúksgíga virðist lokið. Nýjar myndir frá gosstöðvunum sýna að enn er glóð í nýja hrauninu en virkni er alveg dottin niður. Bæjarstjóra Grindavíkur er létt yfir goslokum. Innlent 21.12.2023 18:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent