Kvöldfréttir

Fréttamynd

Grunur um upp­ljóstrun, hætta á að­gerða­leysi og eftir­för

Rod Coronado sem stýrir leiðangri skips Paul Watson samtakanna útilokar ekki að halda inn í íslenska landhelgi. Hann hafi fellt tár þegar hann sá starfsmenn Hvals leika sér með hvalshræ á dögunum. Forstjóri Hvals hf. sakar MAST um að hafa ljóstrað upp um staðsetningu hvalveiðiskipa og sett áhöfn þeirra í hættu. Við ræðum við forstjóra stofnunarinnar í beinni í kvöldfréttum.

Innlent
Fréttamynd

Eftir­spurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri

Lögregla hefur lagt hald á um tvö hundruð kíló af kókaíni það sem af er ári, á aðeins sex mánuðum. Það er næstum tvöfalt meira en allt síðasta ár. Í kvöldfréttum í gær sagði lögregla að samfélagið þyrfti að líta í eigin barm og ræða eftirspurnina, ekki aðeins innflutninginn. Í kvöld verður rætt við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækningasviðs SÁÁ, um afleiðingar kókaínneyslu.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­málaráðherra telur tæpt að for­senduákvæði kjara­samninga haldi

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Við ræðum við hann í kvöldfréttum en hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir að grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda. Þá mætir Halla Gunnarsdóttir formaður VR til okkar til að fara yfir þetta mál.

Innlent
Fréttamynd

Fær ekki lög­bundna þjónustu og ó­vissa um fram­tíð lista­verks

Maður sem hlaut mænuskaða eftir slys á mótórhjóli fyrir þremur árum síðan fær ekki þá NPA-þjónustu sem hann á rétt á þótt að hún hafi verið samþykkt fyrir átta mánuðum síðan. Hann hefur til að mynda ekki getað hitt dóttur sína í tvö ár og legið ítrekað í eigin þvagi klukkutímum saman vegna skorts á aðstoð.

Innlent
Fréttamynd

Pólitískur ólgusjór í Bret­landi, hval­veiðar og ban­væn hita­bylgja

Fátt virðist koma í veg fyrir að Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, verði næsti forsætisráðherra Bretlands, eftir afsögn Keirs Starmer.  Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor við Bifröst, mun aðstoða okkur við að gera pólitísku ólgunni í Bretlandi góð skil í beinni útsendingu.

Innlent
Fréttamynd

Eld­fim staða, sorg­legt á­huga­leysi og ráð­gáta

Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim.

Innlent
Fréttamynd

Konukot og börn í brottfararstöð í brenni­depli í kvöld­fréttum

Börn í brottfararstöð verða í brennidepli í kvöldfréttum Sýnar. Umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hefur ekki verið í átakafarvegi í þinginu en utan þings hafa ýmsir gagnrýnt harðlega að börn verði vistuð í stöðinni. Í kvöldfréttum mætast þau Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem munu eiga opið og hreinskiptið samtal um málið.

Innlent
Fréttamynd

Fólsku­leg á­rás og ó­vin­sæl sundtíska

Fjórtán ára stúlka hlaut talsverða áverka eftir að eldri stúlka lét spörkin dynja á henni í Hafnarfirði síðustu helgi. Í kvöldfréttum verður rætt við aðstoðaryfirlögregluþjón um málið en hann segir árásina hafa verið fólskulega.

Innlent
Fréttamynd

Rýnt í flókna stöðu Icelandair

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar annað kvöld. Fundurinn á að snúast um vinnufyrirkomulag flugmanna; vaktir, frídaga og svigrúm Icelandair til að skipuleggja flug. Fleiri mál hanga þó yfir viðræðunum, meðal annars fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY Europe á Möltu og þungur rekstur. Við rýnum í deiluna í kvöldfréttum auk þess sem ritstjóri Innherja mætir í myndver og ræðir stöðu félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Skortur á að­stoð, mót­mæli og högg­staður á ríkis­stjórn

Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því rannsókn verði hafin á eftirliti og geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og ræðum við framkvæmdastjóra Geðhjálpar sem segir að fangar fái ekki aðstoð við hæfi.

Innlent
Fréttamynd

Kjara­deilan vekur upp spurningar um fram­tíð Icelandair

Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

Nýr borgar­stjóri mætir í beina út­sendingu

Nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur í Viðey í dag. Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs í eitt ár og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar. Einar og Björg munu svo eiga stólaskipti.

Innlent
Fréttamynd

Nýr bæjar­stjóri, morð­hótanir og afar sam­rýmdar systur

Í kvöldfréttum verður rætt við nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar í beinni útsendingu. Íbúar hafa safnað undirskriftum gegn meirihlutanum og við berum ónægjuna undir hann. Þá fylgjumst við einnig með á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar og heyrum í Heiðu Björgu sem vonar að umræðan um borgarstjóra taki breytingum. Henni hafa borist morðhótanir á kjörtímabilinu.

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar fer yfir dramatíkina

Oddvitar Sjálfstæðisflokkanna í Reykjavík, Hafnarfirði og í Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Við förum yfir helstu tíðindi úr meirihlutaviðræðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Dramatík í Hafnar­firði

Mikið hefur gengið á í pólitíkinni í Hafnarfirði í dag og oddviti Framsóknar sem var með pálmann í höndunum eftir kosningar er í snúinni stöðu. Oddvitar annarra flokka vísa í trúnaðarbrot og taka fyrir samstarf með Framsókn. Við förum yfir málið í kvöldfréttum og fylgjumst með þegar borgarstjórnarhópur Sjálfstæðisflokksins fundaði í dag.

Innlent