Lög og regla
41 42 43 44 45 46 47 48 49 … 120 ›
Ráðinn bani með eggvopni Tvítugri stúlku var ráðinn bani með eggvopni á svæði varnarliðsins seint í gærkvöld. Rúmlega tvítugur maður er í haldi herlögreglunnar grunaður um verknaðinn. Innlent 13.10.2005 19:41
Tryggvi lét Baug borga skatta sína Tryggvi Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs hf., kemur oftast við sögu í þeim kafla ákærunnar gegn forsvarsmönnum og endurskoðendum Baugs sem snýr að fjárdrætti. Innlent 13.10.2005 19:41
Ekki góð vörn að benda á aðra Það þykir ekki góð vörn í dómsmáli, að aðrir kunni að hafa sloppið með svipuð brot eða verri. Það gefur heldur ekki rétta mynd af íslensku viðskiptalífi að segja að hægt sé að gera alla stjórnendur fyrirtækja að glæpamönnum ef nógu grannt er skoðað. Þetta segir sérfræðingur í félagarétti. Innlent 13.10.2005 19:41
Fjórir færðir í fangageymslur Danskir dagar í Stykkishólmi um helgina fóru að mestu leyti vel fram, að sögn lögreglu. Talsverð ölvun var þó í bænum og þurfti lögregla að hafa afskipti af nokkrum mönnum vegna óláta. Innlent 13.10.2005 19:41
Baugsfeðgar ásaka stjórnvöld Baugsfeðgar, þeir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir, segja augljóst að stjórnvöld séu á bak við það sem þeir kalla aðför að fyrirtæki þeirra. Þar hafi Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Jón Steinar Gunnlaugsson, núverandi hæstaréttardómari, verið fremstir í flokki. Innlent 13.10.2005 19:40
Ákærurnar flóknar og efnismiklar Ákærurnar í Baugsmálinu voru birtar í dag, mörgum vikum eftir að lofað hafði verið að láta fjölmiðlum þær í té. Lögmenn sem fréttastofa ræddi við vildu ekki leggja mat á málið út frá ákærunni einni og sögðu það bæði flókið og erfitt. Innlent 13.10.2005 19:41
Viðbrögð Baugsfeðga við ákærum Baugsfeðgarnir, þeir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir telja með ólíkindum að einn reikningur, sem lögreglan vissi ekki hvort væri debit eða kredit, skyldi vera tilefni hinnar miklu rannsóknar á fyrirtækinu. Þeir bera Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, þungum sökum. Innlent 13.10.2005 19:41
Handtekinn í lögreglubúningi Talið er að um sjötíu manns hafi safnast saman á Austurvelli eftir hádegi í gær til þess að mótmæla Kárahnjúkavirkjun og álveri við Reyðarfjörð. Fóru mótmælin friðsamlega fram að sögn lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:41
Fær ekki bætur vegna íþróttaslyss Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Tryggingastofnun af bótakröfu stúlku sem fékk flugu í augað á unglingalandsliðsæfingu í badminton árið 1997 með þeim afleiðingum að augnbotninn rifnaði. Hún hefur í dag takmarkaða sjón á auganu. Innlent 13.10.2005 19:41
Trúi að dómstólar muni horfa á gögnin Óvild forsætisráðherra skapaði það andrúm sem drifið hefur áfram rannsókn og ákærur í Baugsmálinu, að mati Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Hann segist alltaf hafa borið hag fyrirtækisins fyrir brjósti og að Baugur hafi alltaf haft betur í viðskiptum við sig og Gaum, sem er félag í eigu fjölskyldunnar. Innlent 13.10.2005 19:41
Einn svakalegasti dagur lífs míns Jóhannes Jónsson kenndur við Bónus situr nú á sakamannabekk og á jafnvel yfir höfði sér fangelsisdóm verði hann fundinn sekur um fjárdrátt. Jóhannes sver af sér sakir og kallar málatilbúnaðinn apaspil. Hann kveðst bjartsýnn og finnur ómældan stuðning við málstað sinn og fjölskyldu sinnar. Innlent 13.10.2005 19:40
Krotaði á styttu Jóns Sigurðssonar Útlendingurinn sem handtekinn var í Reykjavík í nótt vegna veggjakrots í miðbænum, krotaði m.a. á gamla Landssímahúsið og á styttu Jón Sigurðssonar á Austurvelli. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar er hann í hópi mótmælenda sem Útlendingastofnun íhugar að vísa úr landi vegna mótmælaaðgerða við Kárahnjúka. Innlent 13.10.2005 19:40
Handtekinn fyrir veggjakrot Mótmælandi var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í gær grunaður um veggjakrot á styttuna af Jóni Sigurðssyni, Alþingishúsið, Ráðhúsið og fleiri byggingar í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Manninum var leyft að fara að loknum yfirheyrslum síðdegis í gær. Innlent 13.10.2005 19:40
Festist undir bíl í árekstri Bifhjól og bíll lentu í árekstri á Laugavegi á móts við hús númer 166 um klukkan ellefu í morgun. Ökumaður bifhjólsins festist undir bílnum og þurfti að tjakka bílinn upp til að ná honum undan. Hann var fluttur á slysadeild, en ekki liggur fyrir hversu alvarlega hann er slasaður. Innlent 13.10.2005 19:40
Spreiuðu slagorð á Alþingishúsið Virkjanamótmælendur létu til skarar skríða í miðborg Reykjavíkur í nótt. Alþingishúsið og styttan af Jóni Sigurðssyni var meðal þess sem varð fyrir barðinu á spreibrúsum mótmælendanna. Innlent 13.10.2005 19:40
Tekið á móti útgerðum með hörku Það verður tekið á móti með hörku, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður vegna yfirlýsinga útgerðarmanna um að höfða mál gegn ríkinu vegna byggðakvótans og línuívilnunar. Þá er sjávarútvegsráðherra hvergi banginn. Innlent 13.10.2005 19:40
Reyndu að læðast burt með fartölvu Þrír piltar innan við tvítugt laumuðust inn í íbúðarhús í austurborginni undir miðnætti og stálu þar fartölvu. Heimilisfólkið, sem var á efri hæð hússins, varð ekki vart við piltana fyrr en það sá þá laumast á burt með fartölvuna. Lögregla fann piltana í grenndinni með tölvuna í fórum sínum og gista þeir nú fangageymslur. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir áður komist í kast við lögin. Innlent 13.10.2005 19:40
Æfðu viðbrögð við eldsvoða Mörgum vegfarendum um Kamba og nágrenni Hveragerðis var brugðið í gærkvöld þegar mikinn reyk lagði frá húsi í bænum. Þegar nær dró kom í ljós að húsið stóð í björtu báli. Engin vá var þó fyrir dyrum því slökkviliðið í Hveragerði hafði fengið húsið til æfinga enda var hætt að nota það og til stóð að rífa það. Innlent 13.10.2005 19:40
Reyndist hafa rekist á rekald Ástæða þess að leki kom að hraðfiskibátnum Eyjólfi Ólafssyni GK þegar hann var á siglingu á Aðalvík á Ströndum í fyrrinótt er að báturinn rakst á eitthvert rekald í sjónum og við það brotnaði byrðingurinn og sjór flæddi inn. Þetta kemur fram í máli sjómannanna tveggja sem um borð voru. Björgunarskip frá Ísafirði dró bátinn til Bolungarvíkur í gær þar sem hann var tekinn á land. Innlent 13.10.2005 19:40
Lögregla veitti bifhjólum eftirför Fjórum bifhjólum var veitt eftirför lögreglu frá Sæbraut og þaðan austur Suðurlandsbraut í kringum miðnætti í fyrrakvöld. Að sögn lögreglu mældust ökumenn bifhjólanna á um 120 kílómetra hraða á Sæbraut við Höfðatún þar sem hámarkshraði er sextíu. Innlent 13.10.2005 19:40
Axlarbrotnaði og marðist í slysi Maður á mótorhjóli sem lenti í árekstri við bifreið til móts við Laugaveg 164 laust fyrir hádegi axlarbrotnaði og marðist á höfði. Bifreiðinni var ekið í veg fyrir mótorhjólið og lenti maðurinn undir henni. Hann var fluttur á sjúkrahús. Innlent 13.10.2005 19:40
Handtekinn fyrir veggjakrot Útlendingur var handtekinn í Reykjavík í nótt vegna veggjakrots í miðbænum, en samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar er hann í hópi mótmælenda sem Útlendingastofnun íhugar að vísa úr landi vegna mótmælaaðgerða við Kárahnjúka. Maðurinn hefur verið í haldi lögreglunnar frá því í nótt og að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns vinnur lögreglan í Reykjavík að rannsókn málsins. Innlent 13.10.2005 19:40
Gefur lítið fyrir Baugsákærur Breska blaðið <em>The Guardian</em> gefur lítið fyrir ákærurnar á hendur Baugi í ítarlegri grein sem birt er á viðskiptasíðu blaðsins í dag. <em>The Guardian</em> hefur látið þýða málsskjölin fyrir sig og látið sérfræðinga sína rannsaka það. Þeir virðast komast að þeirri niðurstöðu að allt vafstrið í kringum Baug sé stormur í vatnsglasi. Ekkert tillit sé tekið til þess hversu hratt Baugur hafi vaxið né önnur fyrirtæki í svipuðum rekstri erlendis. Innlent 13.10.2005 19:40
Litið sé fram hjá heildarmyndinni Breska blaðið <em>The Guardian</em> segir að í ákæru ríkissaksóknara á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og öðrum forstöðumönnum Baugs sé litið fram hjá heildarmyndinni. Hægt sé að gefa eðlilegar skýringar á því sem ákært er fyrir. Innlent 13.10.2005 19:40
Segir Baugsmál storm í vatnsglasi Dökk mynd er dregin upp af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og öðrum forsvarsmönnum Baugs í ákærum ríkissaksóknara, að mati breska dagblaðsins <em>The Guardian</em>. Blaðið, sem eitt fjölmiðla hefur fengið að sjá ákærurnar, telur málarekstur ríkisins á hendur sexmenningunum þó ekkert annað en storm í vatnsglasi. Innlent 13.10.2005 19:40
Ekkert hlustað á sakborninga Sakborningum í Baugsmálinu, einkum Jóni Ásgeir Jóhannessyni, Jóhannesi Jónssyni og Tryggva Jónssyni, er gefið að sök fjárdráttur og umboðssvik auk þess sem þeir eru taldir brotlegir við lög um hlutafélög, bókhald, tolla og skatta. Fréttablaðið birtir ákærurnar í Baugsmálinu ásamt viðtölum við Jón Ásgeir og Jóhannes í dag. Innlent 13.10.2005 19:40
Íhuga málsókn vegna byggðakvóta Landsamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, íhugar nú að höfða mál á hendur sjávarútvegsráðherra og ríkinu vegna byggðakvóta og annarra sértækra aðgerða við úthlutun kvóta. LÍÚ telur að aðgerðir sjávarútvegsráðherra jafngildi eignaupptöku og standist ekki ákvæði stjórnarskrár um eignarrétt. Innlent 13.10.2005 19:40
Enn á gjörgæsludeild eftir slys Konan sem slasaðist alvarlega í árekstri á þjóðveginum við Hallormsstaðarskóg við Egilsstaði á þriðjudaginn er enn á gjörgæsludeild og er líðan hennar eftir atvikum. Tveir samferðamenn hennar voru úrskurðaðir látnir við komuna á sjúkrahús. Innlent 13.10.2005 19:40
Gripnir með fíkniefni í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi handtók fjóra menn um tvítugt í nótt eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra. Mennirnir voru stöðvaðir við reglubundið eftirlit en við leit í bíl þeirra fundust um 50 grömm af hassi auk nokkurra e-taflna og annarra kannabisefna. Einn mannanna gekkst við að eiga efnin og viðurkenndi að hafa ætlað að koma þeim í sölu. Mönnunum var öllum sleppt að loknum yfirheyrslum. Innlent 13.10.2005 19:40
Leita manns á Þingvöllum Þyrla Landhelgisgæslunnar fór af stað rétt fyrir klukkan tvö til að aðstoða lögregluna á Selfossi og björgunarsveitir þar við að leita manns sem ekkert hefur spurst til síðan í gærkvöld. Maðurinn sást síðast á ferli við Þingvelli í gær samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar en lögreglan á Selfossi neitar að gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Innlent 13.10.2005 19:40