Lög og regla
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 120 ›
Sendir fannst undir kvöld Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum og Landhelgisgæslu við Sandgerði í gær vegna sendinga neyðarsendis á svæðinu. Að sögn Landhelgisgæslu hófust sendingarnar klukkan 11:17 í morgun og fór strax nokkur viðbúnaður í gang. Innlent 17.10.2005 23:45
Rotaðist í Norðurárdal Ökumaður bíls sem fór út af veginum og valt í Norðurárdal síðdegis í gær var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landsspítala-háskólasjúkrahúss í Fossvogi í Reykjavík. Maðurinn sem var einn í bílnum hafði orðið fyrir nokkru höfuðhöggi og rotast. Innlent 17.10.2005 23:45
Frávísun dregin til baka Ragnar Hall dró til baka kröfu um að framhaldsákæra á hendur Sveini R. Eyjólfssyni, Eyjólfi Sveinssyni og átta öðrum sem hafa verið ákærðir fyrir að standa ekki skil á sköttum og launatengdum gjöldum í fyrirtækjarekstri tengdum Frjálsri fjölmiðlun verði vísað frá. Innlent 17.10.2005 23:43
Dó áfengisdauða í höndum lögreglu Ungur ökumaður, sem lögreglan á Akranesi stöðvaði vegna ölvunaraksturs í fyrrinótt, var svo drukkinn að hann dó áfengisdauða í höndum lögreglunnar sem varð að halda á honum eins og kornabarni inn í fangageymslurnar þar sem hann svaf úr sér vímuna framundir hádegi í gær. Innlent 17.10.2005 23:43
30% ökumanna yfir hámarkshraða Lögreglan í Reykjavík var með sérstakar hraðamælingar í Grafarvogi í síðustu viku. Mælt var við skólana í hverfinu og í götum þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Nær 30 prósent þeirra ökumanna sem voru mældir reyndust vera yfir hámarkshraða og mega þeir ökumenn eiga von á sektum. Innlent 17.10.2005 23:43
Hraðakstur á Faxabraut Nokkur erill var hjá lögreglu á Akranesi aðfaranótt sunnudags en fyrr um kvöldið fór fram knattspyrnuhátíð ÍA sem lauk með balli með Stuðmönnum og Jónsa í svörtum fötum, að sögn lögreglu. Innlent 14.10.2005 06:43
Einn ók niður ljósastaura Ölvaður ökumaður ók niður tvo ljósastaura á Reykjanesbraut við bensínstöð Orku um klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Að sögn lögreglu í Kópavogi slapp maðurinn ómeiddur en bíllinn er talinn ónýtur. Innlent 14.10.2005 06:43
Annríki hjá lögreglu í Hafnarfirði Mikið var um að vera í Hafnarfirði í nótt og hafði lögregla í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt skemmtanahald voru tveir dansleikir. Annar þeirra var í Kaplakrika þar sem voru um 1500 manns. Eitthvað var um pústra í tengslum við ölvun í bænum þótt engin hafi meiðst alvarlega. Tveir sitja inni eftir nóttina. Innlent 14.10.2005 06:43
Hús rýmd vegna sprenginga Gera átti litlar prufusprengingar í Gleiðarhjalla ofan Ísafjarðar í gær til að undirbúa aðgerðir í dag og á morgun til varnar grjóthruni sem náð gæti ofan í byggð. Að sögn lögreglu á Ísafirði verða hús á Urðarvegi rýmd í dag og á morgun frá níu að morgni og fram til klukkan þrjú síðdegis. Innlent 14.10.2005 06:43
Enn hrynur grjót í Óshlíð Lögreglunni í Bolungarvík barst í gærmorgun tilkynning um að grjóthnullungar hefðu fallið á veginn í Óshlíð í grennd við þann stað þar sem stór sprunga er efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Nokkuð grjóthrun hefur verið þarna að undanförnu. Stórir steinar höfðu fallið á veginn utan við varnarnetið yst á hlíðinni. Innlent 14.10.2005 06:43
Slökkvilið í tvö útköll í nótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvívegis út í nótt. Á þriðja tímanum var útkall í Vesturbæ þar sem nágrannar tilkynntu um reykskynjara í gangi. Þegar komið var á staðinn reyndist húsráðandi vera að útbúa sér eitthvað í gogginn. Hann fékk aðstoð við að reykræsta. Á sjötta tímanum logaði svo eldur í bifreið í Mosfellsbæ. Vel gekk að slökkva eldinn. Innlent 14.10.2005 06:43
Braut tönn í lögreglumanni Ungur maður sem sparkaði í andlit lögregluþjóns fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi aðfaranótt sunnudags var látinn laus að loknum yfirheyrslum um miðjan dag í gær. Við árásina brotnaði tönn í lögregluþjóninum. Innlent 14.10.2005 06:43
Einn blóðugur eftir slagsmál Aðfaranótt sunnudags barst lögreglu í Keflavík tilkynning um slagsmál í Sandgerði, en þau voru yfirstaðin þegar komið var á vettvang. Einn var á staðnum blóðugur í andliti og var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 14.10.2005 06:43
Eldamennska fór úr böndum Kveikt var í blaðagámi við Flókagötu í Reykjavík um miðjan dag í gær, en að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var fljótgert að slökkva í honum. Innlent 14.10.2005 06:43
Braut framtönn í lögreglumanni Maður braut framtönn í lögreglumanni í Kópavogi í nótt þegar verið var að handtaka hann. Maðurinn, sem hafði verið með ólæti fyrir utan skemmtistaðinn Players, barðist um á hæl og hnakka við handtökuna og sparkaði í andlit lögreglumannsins. Hann var fluttur í fangageymslur þar sem hann er látinn sofa úr sér vímuna. Innlent 14.10.2005 06:43
Ófremdarástand undir Óshyrnu Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman seinni partinn í dag til að ræða hættu af grjóthruni á veginn á Óshlíð undir stórri sprungu efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Jónas Guðmundsson sýslumaður, sem er formaður almannavarnanefndar Bolungarvíkur, segir illgerlegt að sprengja í fjallinu til að losa um hrun. Innlent 14.10.2005 06:43
Óræk sönnun ölvunaraksturs Ökumaður sem lögreglan á Akranesi stöðvaði aðfaranótt sunnudags, grunaðan um ölvun við akstur, dó áfengisdauða eftir blóðsýnatöku og reyndist lögreglu ómögulegt að vekja hann. Innlent 14.10.2005 06:43
Einn með leiðindi á réttaballi Einn gisti fangageymslu lögreglu á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, en sá hafði að sögn lögreglu verið með leiðindi á réttaballi einn manna. Maðurinn var með óspektir og drykkjulæti. Allir aðrir munu hafa skemmt sér vel. Innlent 14.10.2005 06:43
Áfram í varðhaldi vegna smygls Hæstiréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir litáískum karlmanni sem ákærður hefur verið fyrir að smygla til landsins tæplega fjórum kílóum af metamfetamíni með Norrænu í júní síðastliðnum. Innlent 14.10.2005 06:43
Yfirgripsmikil leit að Friðriki Stórtæk leit að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er síðan bátur fórst á Viðeyjarsundi fyrir viku síðan, er hafin. Búist er við að á annað hundrað manns taki þátt í leitinni í dag. Innlent 14.10.2005 06:43
Leit hefur ekki borið árangur Víðtæk leit af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er eftir að bátur fórst á Viðeyarsundi, hefur staðið yfir í allan dag en hefur enn ekki borið árangur. Gengnar hafa verið fjörur frá Gróttu fram yfir Hofsvík á Kjalarnesi. Kafarar frá Björgunarsveitunum, slökkviliði höfuðborgarsvæðisinns og Landhelgisgæsluni hafa kafað á Viðeyjarsundi en einnig hefur verið notast við sónarleitartæki og neðansjávarmyndavél. Innlent 14.10.2005 06:43
Líkið af Friðriki Ásgeiri fundið Líkið af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni fannst seinni partinn í dag. Rétt fyrir klukkan sex náðu kafarar líkinu upp og var komið með hann að landi nú rétt fyrir fréttir. Innlent 14.10.2005 06:43
Sigldu bátnum af skerinu Eigandi skemmtibátsins sem fórst um síðustu helgi og eiginkona hans njóta stöðu sakborninga í rannsókn lögreglu á slysinu. Báturinn sat í fyrstu á skerinu, en var svo siglt af því og sökk á sundinu. Símasamband var við bátinn í rúman hálftíma. Innlent 14.10.2005 06:42
Pókeræði á Íslandi Pókeræði geisar nú meðal landsmanna og nóg er um tækifæri til að taka þátt í ólöglegum fjárhættuspilum segir Sveinbjörn Kr. Þorkelsson, ráðgjafi hjá SÁÁ. Hann segir spilaklúbba og spilavíti færð reglulega á milli staða svo lögreglan komist ekki á sporið. Íslendingar eyða miklu fé í fjárhættuspil, en árlega velta lögleg fjárhættuspil rúmlega milljarði króna og ólöglegu spilavítin bætast þar á ofan. Innlent 14.10.2005 06:42
26 umferðaróhöpp í Reykjavík í gær 26 umferðaróhöpp urðu í Reykjavík í gær þrátt fyrir að akstursskilyrði væru hin ákjósanlegustu. Þetta er langt umfram allt meðaltal og kann lögregla enga sérstaka skýringu á þessari óhappahrynu. Enginn meiddist alvarlega en eignatjón hleypur á milljónum króna. Innlent 14.10.2005 06:42
Dæmdir fyrir að skjóta á pilt Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag fyrir að skjóta að pilti úr lítilli loftbyssu í apríl. Mennirnir hlutu 8 og 5 mánaða fangelsi. Þeir létu fórnarlambið afklæðast á berangri á Vaðlaheiði og skutu á það alls sautján sinnum. fjórar kúlur voru fjarlægðar úr líkama hans. Innlent 14.10.2005 06:43
Lagði hald á tæki slippstöðvar Fjármögnunarfyrirtæki lagði í nótt hald á hluta af tækjabúnaði sem Slippstöðin á Akureyri hefur notað við Kárahnjúka. Lögfræðingur Slippstöðvarinnar vill ekki staðfesta að fyrirtækið hafi átt tækin. Slippstöðin hefur séð um vinnu við rör inni í göngunum til Fljótsdals, en vinna þar hefur legið niðri eftir að tækin voru fjarlægð. Innlent 14.10.2005 06:42
Fjöldi manns við leit í dag Stórleit verður framkvæmd í dag að líki 34 ára karlmanns sem fórst eftir að skemmtibátur ók á Skarfasker á Viðeyjarsundi aðfararnótt síðasta laugardags. Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að leitað verði á svæði sem nær allt frá Gróttu og upp á Akranes. Innlent 14.10.2005 06:42
Grunuð um að hafa neytt áfengis Lögregla segir rökstuddan grun um að hvort tveggja eigandi bátsins sem steytti á skeri á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags og kona hans hafi neytt áfengis um kvöldið áður en slysið varð. Bæði njóta þau réttarstöðu sakborninga við yfirheyrslur vegna rannsóknar málsins. Innlent 14.10.2005 06:42
Fékk brunnlok í sig í miðbænum Betur fór en á horfðist þegar strætisvagni var ekið á brunnlok á mótum Tjarnargötu og Skothúsvegar í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í morgun. Brunnlokið skaust upp og lenti á manni sem var á gangi í grenndinni. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík meiddist maðurinn þó ekki alvarlega og var hann með góða meðvitund þegar hann var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar. Innlent 14.10.2005 06:42