Viðskipti
74 75 76 77 78 79 80 81 82 … 223 ›
Actavis kaupir markaðsleyfi sýklalyfs Actavis hefur keypt markaðsleyfi sýklalyfsins Floxapen af lyfjafyrirtækinu GlaxoSmithKline (GSK) í Evrópu. Dreifing og sala á lyfinu hefst á næstu vikum. Viðskipti innlent 4.5.2007 13:33
Rætt um yfirtöku á Mosaic Fashions Baugur, stærsti hluthafinn í Mosaic Fashions, hefur staðfest að það eigi í viðræðum um yfirtöku á félaginu. Gangi yfirtakan eftir mun það stofna félagið Newco ásamt öðrum fjárfestum. Viðræður eru á byrjunarstigi en rætt er um tilboð upp á 17,5 krónur á hlut sem er um sjö prósentum yfir núverandi verði. Viðskipti innlent 4.5.2007 11:43
Viðskipti stöðvuð með bréf í Mosaic Fashions Viðskipti voru stöðvuð með bréf í bresku tískuvörukeðjunni Mosaic Fashions í Kauphöll Íslands í morgun en frétt mun vera væntanleg af félaginu. Breska dagblaðið Times greindi frá því í dag að Baugur hyggðist taka verslanakeðjuna af markaði. Viðskipti innlent 4.5.2007 10:00
Yfirtökutilboð gert í Reuters Gengi bréfa í Reuters, einni stærstu fréttastofu í heimi, hækkaði um 24 prósent við opnun markaða í Lundúnum í Bretlandi í dag eftir að stjórn fyrirtækisins greindi frá því að henni hefði borist óformlegt yfirtökutilboð í félagið. Ekki liggur fyrir frá hverjum tilboðið er. Viðskipti erlent 4.5.2007 09:40
Hráolíuverð óbreytt Lítil breytinga varð á heimsmarkaðsverði á hráolíu við lokun markaða í Asíu í dag. Fjárfestar töldu verðhækkanir í farvatninu í kjölfar þess að skæruliðar myrtu einn mann og rændu 21 einum starfsmanni erlends olíufélags í Nígeríu í gær. Skærur við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu eru tíðar og hafa dregið mjög úr olíuframleiðslu Afríkuríkisins. Viðskipti erlent 4.5.2007 09:05
Banna sölu á LaSalle frá ABN Amro Hollenskur dómsstóll hefur meinað hollenska bankanum ABN Amro að selja LaSalle-bankann, útibú ABN Amro í Bandaríkjunum. Til stóð að selja bankann til Bank of America fyrir 21 milljarð dala, jafnvirði 1.342 milljóna íslenskra króna, til að greiða fyrir yfirtöku breska bankans Barclays á ABN Amro. Viðskipti erlent 3.5.2007 15:19
Saga Capital fær fjárfestingarbankaleyfi Saga Capital Fjárfestingarbanki hlaut í liðinni viku fullt fjárfestingarbankaleyfi Fjármálaeftirlitsins. Lokuðu hlutafjárútboði, sem félagið efndi til í ársbyrjun, er nú lokið og er eigið fé Saga Capital nú 10 milljarðar króna. Bankinn hefur formlega starfsemi á morgun. Viðskipti innlent 3.5.2007 15:15
General Motors hagnast um fjóra milljarða Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors, annar umsvifamesti bílaframleiðandi í heimi á eftir Toyota, skilaði hagnaði upp á 62 milljónir dala, tæpa fjóra milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er samdráttur upp á 90 prósent samanborið við sama tíma í fyrra. Rick Wagoner, forstjóri bílarisans, segir afkomuna engu að síður á réttu róli. Viðskipti erlent 3.5.2007 14:03
Þriðja mesta verðbólgan á Íslandi Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,6 prósent á milli mánaða innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í mars. Þetta jafngildir því að verðbólga mælist 2,4 prósent á ársgrundvelli í mánuðinum sem er 0,3 prósentustiga lækkun frá sama tíma í fyrra. Verðbólga var óbreytt á evrusvæðinu á sama tíma. Ísland situr í þriðja sæti yfir þau lönd þar sem mesta verðbólgan mælist. Viðskipti innlent 3.5.2007 09:23
Vísitala neysluverð hækkaði um 5,3 prósent milli ára Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent frá apríl í fyrra til síðasta mánaðar, samkvæmt Hagstofu Íslands. Dregið hefur úr verðbólgu síðustu tvo mánuði, aðallega vegna lækkunar virðisaukaskatts og afnáms vörugjalda í byrjun marsmánaðar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2 prósent, að sögn Hagstofunnar. Viðskipti innlent 3.5.2007 09:00
Novator selur hlut sinn í BTC Fjárfestingafélagið Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur selt hlut sinn í búlgarska símafélaginu BTC. Straumur, Burðarás og Síminn, sem þá var ríkisfyrirtæki, tóku þátt í upphaflegu kaupunum en síðan hefur Novator stóraukið hlut sinn. Söluandvirði BTC nemur 160 milljörðum íslenskra króna og hefur fjárfesting íslensku fjárfestanna, sem tóku þátt í kaupunum fyrir tveimur og hálfu ári, fimmfaldast. Innlent 3.5.2007 08:01
Hagnaður Landsbankans 13,8 milljarðar Hagnaður Landsbankans var 13,8 milljarðar króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins. Hann var 14,3 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Bankastjórar segjast í fréttatilkynningu vera ánægðir með niðurstöðuna og segja hana endurspegla sterka stöðu Landsbankans. Viðskipti innlent 3.5.2007 07:57
Norrænir markaðir í sögulegu hámarki Norrænar hlutabréfavísitölur eru nú um stundir í sögulegu hámarki eftir góð uppgjör fyrirtækja á Norðurlöndunum á fyrsta ársfjórðungi. Greiningardeild Landsbankans segir engin merki um að hægjast muni á heimsmarkaði og gerir ráð fyrir áframhaldandi góðum árangri. Viðskipti innlent 2.5.2007 16:18
TM fær styrkleikamatið BBB hjá S&P Tryggingamiðstöðin hf. (TM) hefur fengið styrkleikamatið BBB hjá matsfyrirtækinu Standard & Poor’s (S&P). TM er fyrsta íslenska tryggingafélagið sem fær styrkleikamat hjá alþjóðlegu matsfyrirtæki. Í rökstuðningi segir að matið endurspegli fjárhagslegan styrk tryggingafélagsins og sterka samkeppnisstöðu. Viðskipti innlent 2.5.2007 15:43
Hráolíuverðið lækkar á heimsmarkaði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði nokkuð og fór undir 64 dali á tunnu á markaði í New York í dag eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því í vikulegri skýrslu sinni að olíuframleiðsla hefði aukist þar í landi í síðustu viku. Þrátt fyrir þetta minnkuðu eldsneytisbirgðir í Bandaríkjunum á milli vikna. Viðskipti erlent 2.5.2007 15:21
Metvelta í OMX-kauphöllinni Metvelta var í hlutabréfaviðskiptum hjá OMX-kauphallarsamstæðunni á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum í síðasta mánuði en meðalveltan nam 507,1 milljarði króna á dag. Veltumet var slegið 26. apríl síðastliðinn þegar viðskiptin námu 795,5 milljörðum króna og sló það fyrra metið sem var sett í lok febrúar. Viðskipti innlent 2.5.2007 13:48
Samdráttur hjá bandarískum bílasölum Sala á nýjum bílum dróst mikið saman í Bandaríkjunum í síðasta mánuði en salan hefur ekki verið minni í tæp tvö ár. Samdrátturin var mestur hjá bandaríska bílaframleiðandanum Ford en sala dróst saman um 12,9 prósent á milli ára. Hátt eldsneytisverð og verri skuldastaða almennings er helsta ástæða samdráttarins. Viðskipti erlent 2.5.2007 10:24
Samruni VBS og FSP samþykktur Samþykkt var á aðalfundum VBS fjárfestingarbanka hf. og FSP hf. (Fjárfestingafélag Sparisjóðanna) á mánudag að sameina félögin undir nafni VBS fjárfestingarbanka hf. Samruninn er með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlits. Eigið fé hins sameinaða félags nemur tæpum 6,1 milljarði króna. Viðskipti innlent 2.5.2007 10:35
Atvinnuleysi minnkar á evrusvæðinu Atvinnuleysi mældist 7,2 prósent á evrusvæðinu í marsmánuði. Þetta er 0,1 prósentustiga samdráttur á milli ára, samkvæmt nýlegum upplýsingum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Mesta atvinnuleysið innan Evrópusambandsins mældist í Póllandi, eða 11,4 prósent. Viðskipti erlent 2.5.2007 09:49
Barnamyndir skiluðu vel í kassann Bandaríska afþreyingafyrirtækið Dreamworks skilaði góðum hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Aukningin felst í góðri sölu á DVD-mynddiskum með barnamyndum á borð ðvið Over the Hedge og fleiri myndum. Steven Spielberg, Jeffrey Katzenberg og David Geffen stofnuðu fyrirtækið fyrir 13 árum. Viðskipti erlent 2.5.2007 09:20
Bjarni fékk 6,8 milljarða fyrir Glitnis-bréfin Glitnir hefur keypt öll bréf Bjarna Ármannssonar, fráfarandi forstjóra bankans fyrir 29 krónur á hlut. Kaupvirði nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. Á sama tíma fékk Lárus Welding, sem tekur við forstjórastólnum af Bjarna, kaupréttarsamning fyrir 150 milljón hlutum í bankanum á genginu 26,6 krónur á hlut, eða rétt tæpa 4 milljarða króna. Viðskipti innlent 2.5.2007 09:29
Tap Össurar 184 milljónir króna Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði 2,7 milljóna dala tapi á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það jafngildir 184 milljóna króna tapi á tímabilinu samanborið við tap upp á 571 þúsund dali, 36,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Tekjur voru í takt við væntingar greiningardeilda viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 2.5.2007 09:06
Hagnaður Danske bank eykst Danske bank skilaði hagnaði upp á tæpa 5,3 milljarða danskra króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 62,5 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu sem er 21 prósenti meiri hagnaður en bankinn skilaði á sama tíma í fyrra. Þá er afkoman nokkuð yfir væntingum greinenda í Danmörku. Viðskipti erlent 1.5.2007 10:15
Actavis sagt meðal bjóðenda Frestur til að skila inn bindandi tilboðum í samheitalyfjahluta þýska lyfjafyrirtækisins Merck rann út í gær. Erlendar fréttaveitur fullyrða að Actavis sé meðal fjögurra fyrirtækja sem skiluðu inn tilboðum. Forsvarsmenn Actavis kveðast ekki geta tjáð sig um viðræðurnar að svo stöddu. Þeir staðfesta hins vegar að enn sé áhugi fyrir hendi ef rétt verð gefst. Viðskipti innlent 1.5.2007 09:26
Evra aldrei jafnhá gagnvart jeninu Gengi evru er í fyrsta sinn komið í methæðir gagnvart japanska jeninu á helstu fjármálamörkuðum. Gengi evrunnar hækkaði talsvert á markaði í síðustu í kjölfar vangavelta fjárfesta að evrópski seðlabankinn muni hækka stýrivexti á næstu mánuðum og fór hæst í 163,31 jen á móti hverri evru. Viðskipti innlent 1.5.2007 09:15
Tap deCode nemur tæpum 1,5 milljörðum króna deCode skilaði 22,6 milljóna dala taprekstri á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 1.458 milljónum íslenskra króna. Til samanburðar nam tap fyrirtæksins 20,3 milljónum dala, 1.309 milljónum króna, á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 30.4.2007 21:33
Treysta öðrum en íslenskum fyrirtækjum Íslenskir áhrifavaldar bera mest traust til sænskra, þýskra og kanadískra alþjóðafyrirtækja. Íslensk fyrirtæki lenda í fjórða til fimmta sæti yfir þau fyrirtæki sem mesta traustsins njóta. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar Capacent Gallup og AP almannatengsla á trausti íslenskra „áhrifavalda“. Viðskipti innlent 30.4.2007 19:17
Lárus tekur við forstjórastóli í Glitni Lárus Welding hefur verið ráðinn forstjóri Glitnis. Hann tekur við starfinu af Bjarna Ármannssyni sem hefur gegnt starfi forstjóra í 10 ár. Lárus Welding hefur verið framkvæmdastjóri Landsbanka Íslands í Lundúnum frá 2003 en hann hóf starfsferil sinn innan bankakerfisins á fyrirtækjasviði Fjárfestingarbanka atvinnulífsins árið 1999. Fjárfestingarbankinn rann saman við Íslandsbanka árið 2000 og heitir nú Glitnir. Viðskipti innlent 30.4.2007 16:36
Tíðindalaust á hluthafafundi Glitnis Tíðindalaust var á þéttsetnum hluthafafundi Glitnis sem lauk um klukkan hálf þrjú dag. Ný stjórn bankans tók við af fráfarandi stjórn og situr hún nú á sínum fyrsta fundi. Viðskipti innlent 30.4.2007 15:38
Glitnir spáir 4,3 prósenta verðbólgu Greiningardeild Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent á milli mánaða í maí. Gangi það eftir mun ársverðbólga lækka úr 5,3 prósentum í 4,3 prósent. Helstu ástæðurnar fyrir verðbólgulækkuninni eru minni verðhækkanir á húsnæði og í apríl auk þess semaðgerðir stjórnvalda á neysluverði hafi skilað sér. Viðskipti innlent 30.4.2007 11:54