Viðskipti
Hærra hrávöruverð Viðskipti innlent 14.8.2006 14:18 Ýjar að því að Fons kaupi aftur Sterling Berlingske Tidende í Danmörku lætur að því liggja að eignarhaldsfélagið Fons, sem í fyrra keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi þau sameinuð til FL Group, muni aftur eignast Sterling á næstunni. Innlent 14.8.2006 12:31 Olíuverð lækkar í kjölfar vopnahlés Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vopnahlés Ísraels og Hizbollah-skæruliða, sem tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Viðskipti erlent 14.8.2006 11:27 Mikill hagvöxtur á evrusvæðinu Hagvöxtur jókst um 0,9 prósent á evrusvæðinu á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins (ESB). Þetta jafngildir 2,4 prósenta hagvexti á árs grundvelli og hefur hann ekki verið meiri síðastliðin fimm ár. Viðskipti erlent 14.8.2006 11:13 Stærsta farsímafyrirtæki heims í Kína Sætaskipti hafa orðið á stærstu farsímafyrirtækjum í heimi. Breska farsímafyrirtækið Og Vodafone, sem fram til þessa hefur vermt fyrsta sætið, hefur nú vikið fyrir kínverska keppinautinum China Mobile. Viðskipti erlent 14.8.2006 10:16 Verðbólgan er 8,6 prósent Innlent 11.8.2006 09:01 Tekjur Actavis jukust um tæp 200 prósent milli ára Hreinn hagnaður Actavis á öðrum ársfjórðungi þessa árs nemur rúmum 29,9 milljónum evra, eða rúmum 2,7 milljörðum króna. Félagið er í örum vexti, hefur keypt fjölda fyrirtækja og reynir nú yfirtöku á samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA. Viðskipti innlent 11.8.2006 08:53 Actavis þrefaldar tekjurnar Heildartekjur Actavis á öðrum ársfjórðungi þrefölduðust miðað við sama tíma í fyrra og námu 364,1 milljón evra. Árshlutauppgjör félagsins var birt eftir lokun markaða í dag. Á sama tímabili í fyrra námu tekjurnar 121,9 milljónum evra. Aukningin nemur 198,4 prósentum. Viðskipti innlent 10.8.2006 18:37 Bætist við krónubréf Tvær erlendar fjármálastofnanir tilkynntu um útgáfu krónubréfa í gær. Annars vegar þróunarbankinn KfW, sem gaf út nýjan flokk að andvirði 3 milljarða króna með gjalddaga í febrúar 2008. Hins vegar varð það Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) sem bætti þremur milljörðum króna við útgáfu með gjalddaga í október 2008. Nemur heildarútgáfa krónubréfa nú tæpum 260 milljörðum króna og næg spurn virðist eftir krónubréfum meðal erlendra fjárfesta. Viðskipti innlent 10.8.2006 11:25 Nýr forstjóri hjá Alfesca Xavier Govare hefur verið ráðinn nýr forstjóri Alfesca og Jakob Óskar Sigurðsson látið af störfum eftir tveggja ára starf. Í tilkynningu félagsins kemur fram að sameiginleg ákvörðun stjórnar og framkvæmdastjórnar þess hafi verið að færa stjórn félagsins nær mörkuðum þess. Viðskipti innlent 10.8.2006 11:10 94 prósenta samdráttur Íbúðalán bankanna eru einungis tuttugasti hluti þess sem var þegar mest lét. Viðskipti innlent 9.8.2006 19:00 « ‹ 136 137 138 139 140 141 142 143 144 … 223 ›
Spá lægri verðbólgu á næsta ári Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs í september hækki um 0,8 prósent og muni 12 mánaða verðbólga því lækka úr 8,6 prósentum í 7,8 prósent. Deildin telur líklegt að toppnum á verðbólguskotinu hafi verið náð og muni verðbólgan lækka snemma á næsta ári. Viðskipti innlent 17.8.2006 16:54
Afkoma Sears yfir væntingum Eignarhaldsfélagið Sears Holding, sem rekur þriðju stærstu smávörukeðju Bandaríkjanna, hagnaðist um 294 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 20,3 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er 83 prósenta aukning á milli ára og langt umfram væntingar fjármálasérfræðinga. Viðskipti erlent 17.8.2006 16:40
Indverjar bora eftir olíu í Afríku Stjórnvöld á Indlandi hafa hug á að verja sem nemur 1 milljarði bandaríkjadala eða rúmum 69 milljörðum íslenskra króna í olíuleit-, vinnslu og námagröft á Fílabeinsströndinni á vesturströnd Afríku á næstu fimm árum. Viðskipti erlent 17.8.2006 14:52
Kögun tapaði 429 milljónum Kögun hf., dótturfélag Dagsbrúnar, tapaði 429 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tímabili í fyrra skilaði fyrirtækið 223 milljóna króna hagnaði. Rekstur samstæðunnar er að mestu í samræmi við áætlanir stjórnenda að undanskildum fjármagnsliðum en 9,5 prósenta veiking krónunnar á tímabilinu hafði veruleg áhrif á fjármagnsliði fyrirtækisins. Viðskipti innlent 17.8.2006 13:17
Snörp lækkun á olíuverði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði fjórða daginn í röð í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu fjármálamörkuðum og hefur verðið ekki verið lægra í tæpa tvo mánuði. Viðskipti erlent 17.8.2006 10:45
Góð afkoma hjá tryggingarisa Hagnaður svissneska tryggingarisans Zurich Financial Services nam 910 milljónum evra, jafnvirði 81,5 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi sem er 14,9 prósenta aukning á milli ára. Þetta er umfram væntingar en búist var við 840 milljóna króna hagnaði. Viðskipti erlent 17.8.2006 09:42
Tap hjá Dagsbrún á fyrri helmingi ársins Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 321 milljóna króna hagnaði. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu hins vegar tæpum 20,2 milljörðum króna á sama tímabili og er það 188 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 16.8.2006 16:57
Olía lækkar í verði Hráolíuverð lækkaði nokkuð á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna frá bandaríska orkumálaráðuneytinu þess efnis að þótt olíubirgðir hefðu dregist saman á milli vikna þá væru þær nokkuð yfir meðallagi. Viðskipti erlent 16.8.2006 16:33
Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkur Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á fyrstu sex mánuðum ársins nam rúmum einum milljarði króna en það er 106.6 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 1,2 milljarði króna. Þetta er mesti hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á einum árshelmingi og er arðsemi eiginfjár 55 prósent sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins. Viðskipti innlent 16.8.2006 15:20
Stýrivextir hækka í Noregi Seðlabanki Noregs ákvað að hækka stýrivexti sína um 25 punkta í dag og munu stýrivextir í landinu standa í 3 prósentum eftir breytinguna sem tekur gildi á morgun. Stefnt er að því að halda stýrivöxtum í 2,5 prósentum næstu tvö árin og því eru líkur á frekari stýrivaxtahækkunum á næstunni í Noregi. Viðskipti erlent 16.8.2006 14:17
Þrír bankar hækka vexti Landsbankinn, KB banki og sparisjóðirnir hafa hækkað vexti sína í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 50 punkta í morgun. Greiningardeild KB banka spáir 50 punkta hækkun á ný á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í næsta mánuði. Viðskipti innlent 16.8.2006 14:03
Minni hagnaður hjá Estée Lauder Bandaríski snyrtivöruframleiðandinn Estée Lauder skilaði minni hagnaði en spáð hafði verið á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn nam 49,1 milljón bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 3,4 milljarða íslenskra króna, en það er 17,8 milljónum dölum minni hagnaður en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti erlent 16.8.2006 13:18
Spá harðari lendingu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti í 13,5 prósent leiða til harðrar lendingar í íslensku efnahagslífi á næsta ári með minni hagvexti, lægri kaupmætti og auknu atvinnuleysi. Viðskipti innlent 16.8.2006 12:02
Gengi Sony lækkar Gengi hlutabréfa í japanska hátæknifyrirtækinu Sony lækkaði um 2 prósentustig á markaði í gær og í fyrradag í kjölfar þess að bandaríski tölvuframleiðandinn Dell ákvað að innkalla rúmlega fjórar milljónir rafhlaða fyrir fartölvur á heimsvísu. Viðskipti erlent 16.8.2006 11:19
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig og verða vextirnir eftirleiðis 13,5 prósent. Vextir af bundnum innstæðum og daglánum hækka um 0,25 prósentustig en aðrir vextir bankans um 0,5 prósentustig. Þetta er í samræmi við spár greiningadeilda viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 16.8.2006 08:59
Hagnaður Wal-Mart minni en vænst var Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar Wal-Mart á öðrum ársfjórðungi nam tæpum 2,1 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 148 milljarða íslenskra króna. Þetta er 720 milljónum dölum minna en á sama tíma fyrir ári og í fyrsta sinn í áratug sem hagnaður verslanakeðjunnar dregst saman á milli ára. Viðskipti erlent 15.8.2006 15:56
Hagnaður Sparisjóðabankans aldrei meiri Hagnaður Sparisjóðabanka Íslands á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,7 milljarði króna sem er 129,9 prósenta aukning á milli ára og hefur hagnaðurinn aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili. Hagnaðurinn svarar til 50,8 prósenta arðsemi eigin fjár miðað við heilt ár og er það með því hæsta sem þekkist meðal innlendra og erlendra fjármálafyrirtækja. Viðskipti innlent 15.8.2006 14:59
Landsvirkjun semur við TM Software Landsvirkjun hefur gert samning við TM Software um uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggist á nýjustu IP-símatækni fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Fljótsdalsstöð, Kárahnjúkum. Í verkinu felst meðal annars forritun, uppsetning, prófanir og kennsla á IP-símstöðvarnar og símabúnaðinn sem þeim tilheyrir. Viðskipti innlent 15.8.2006 11:04
FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. Viðskipti innlent 14.8.2006 17:02
Ýjar að því að Fons kaupi aftur Sterling Berlingske Tidende í Danmörku lætur að því liggja að eignarhaldsfélagið Fons, sem í fyrra keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi þau sameinuð til FL Group, muni aftur eignast Sterling á næstunni. Innlent 14.8.2006 12:31
Olíuverð lækkar í kjölfar vopnahlés Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vopnahlés Ísraels og Hizbollah-skæruliða, sem tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Viðskipti erlent 14.8.2006 11:27
Mikill hagvöxtur á evrusvæðinu Hagvöxtur jókst um 0,9 prósent á evrusvæðinu á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins (ESB). Þetta jafngildir 2,4 prósenta hagvexti á árs grundvelli og hefur hann ekki verið meiri síðastliðin fimm ár. Viðskipti erlent 14.8.2006 11:13
Stærsta farsímafyrirtæki heims í Kína Sætaskipti hafa orðið á stærstu farsímafyrirtækjum í heimi. Breska farsímafyrirtækið Og Vodafone, sem fram til þessa hefur vermt fyrsta sætið, hefur nú vikið fyrir kínverska keppinautinum China Mobile. Viðskipti erlent 14.8.2006 10:16
Tekjur Actavis jukust um tæp 200 prósent milli ára Hreinn hagnaður Actavis á öðrum ársfjórðungi þessa árs nemur rúmum 29,9 milljónum evra, eða rúmum 2,7 milljörðum króna. Félagið er í örum vexti, hefur keypt fjölda fyrirtækja og reynir nú yfirtöku á samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA. Viðskipti innlent 11.8.2006 08:53
Actavis þrefaldar tekjurnar Heildartekjur Actavis á öðrum ársfjórðungi þrefölduðust miðað við sama tíma í fyrra og námu 364,1 milljón evra. Árshlutauppgjör félagsins var birt eftir lokun markaða í dag. Á sama tímabili í fyrra námu tekjurnar 121,9 milljónum evra. Aukningin nemur 198,4 prósentum. Viðskipti innlent 10.8.2006 18:37
Bætist við krónubréf Tvær erlendar fjármálastofnanir tilkynntu um útgáfu krónubréfa í gær. Annars vegar þróunarbankinn KfW, sem gaf út nýjan flokk að andvirði 3 milljarða króna með gjalddaga í febrúar 2008. Hins vegar varð það Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) sem bætti þremur milljörðum króna við útgáfu með gjalddaga í október 2008. Nemur heildarútgáfa krónubréfa nú tæpum 260 milljörðum króna og næg spurn virðist eftir krónubréfum meðal erlendra fjárfesta. Viðskipti innlent 10.8.2006 11:25
Nýr forstjóri hjá Alfesca Xavier Govare hefur verið ráðinn nýr forstjóri Alfesca og Jakob Óskar Sigurðsson látið af störfum eftir tveggja ára starf. Í tilkynningu félagsins kemur fram að sameiginleg ákvörðun stjórnar og framkvæmdastjórnar þess hafi verið að færa stjórn félagsins nær mörkuðum þess. Viðskipti innlent 10.8.2006 11:10
94 prósenta samdráttur Íbúðalán bankanna eru einungis tuttugasti hluti þess sem var þegar mest lét. Viðskipti innlent 9.8.2006 19:00