Olíuverð lækkar í kjölfar vopnahlés 14. ágúst 2006 11:27 Olíuborpallur. Mynd/AFP
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vopnahlés Ísraels og Hizbollah-skæruliða, sem tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Olíuverðið lækkaði um 1,35 dali á mörkuðum í Bandaríkjunum og fór í 73 dali á tunnu fyrir hádegi. Verð á Norðursjávarolíu lækkaði sömuleiðis um 1,37 dali á tunnu á markaði í Lundúnum í Bretlandi og fór í 74,26 dali á tunnu. Að sögn fréttastofu Reuters lækkaði olíuverðið um 41 sent í síðustu viku í kjölfar þess að komið var í veg fyrir hryðjuverkaárásir í flugvélum á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um 20 prósent það sem af er árs, m.a. vegna árása skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu, kjarnorkuáætlun Írana og átakanna í Miðausturlöndum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira