Viðskipti
120 121 122 123 124 125 126 127 128 … 223 ›
Starfsmenn Airbus óttast uppsagnir Stjórn EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans Airbus, fundar síðar í dag um stöðu félagsins og tafir á framleiðsu A380 risafarþegaþotunnar sem félagið framleiðir. Starfsmenn óttast að EADS muni grípa til víðtækra uppsagna í hagræðingarskyni. Viðskipti erlent 29.9.2006 10:33
Tekjur ríkissjóðs aukast um 11,7 prósent Heildartekjur ríkissjóðs námu ríflega 98 milljörðum króna á öðrum fjórðungi ársins á þjóðhagsreikningagrunni en heildarútgjöld 81 milljarði króna. Tekjujöfnuður ríkissjóðs er því áætlaður 17,5 milljarðar króna á tímabilinu. Þetta er 11,7 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í dag. Viðskipti innlent 29.9.2006 09:17
Afgangur ríkissjóðs nemur 36 milljörðum á hálfu ári Ríkissjóður skilar 36 milljarða króna tekjuafgangi á fyrri hluta ársins samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma er niðurstaðan sögð lakari hjá sveitarfélögum þar sem er 2,2 milljarða króna halli. Heildartekjur hins opinbera á öðrum ársfjórðungi nema 131,2 milljörðum króna. Viðskipti innlent 29.9.2006 09:15
Rafhlöður frá Sony innkallaðar á ný Kínverski tölvuframleiðandinn Lenovo hefur ákveðið að innkalla hálfa milljón rafhlaða, sem fylgja fartölvum fyrirtækisins á heimsvísu. Sony framleiddi rafhlöðurnar. Lenovo framleiðir fartölvur undir eigin merkjum og IBM. Viðskipti erlent 29.9.2006 08:52
Fons selur hlut sinn í FlyMe Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, hefur selt rúman tuttugu prósenta hlut sinn í sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe til norska hlutafélagsins Cognation, sem eftir kaupin á 36 prósent í flugfélaginu. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:23
Eimskip kaupir finnska félagið Containerships Eimskip hefur gengið frá kaupum á meirihluta í finnska skipafélaginu Containerships. Félögin taka höndum saman um að mynda eitt stærsta flutningabandalag Evrópu í styttri siglingum. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:24
Mosaic undir væntingum Tískuverslunarkeðjan Mosaic Fashions hagnaðist um 630 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi og alls um 740 milljónir á fyrri hluta rekstrarársins. Afkoma á öðrum ársfjórðungi hækkaði um 107 prósent á milli ára. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:23
Líkur á frekari uppsögnum Svo getur farið að Landsflug verði á næstunni að segja upp stærstum hluta eða öllu starfsfólki vegna verkefnaskorts. Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri félagsins, segir framtíðina velta á því hvort útboðssamningur við ríkið um áætlunarflug verði endurnýjaður. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:23
Norska ríkið horfir til SAS Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir í samtali við norska dagblaðið Dagsavisen koma til greina að norska ríkið kaupi hluti sænska og danska ríkisins í norræna flugfélaginu SAS. Viðskipti erlent 28.9.2006 18:23
Endurnýja ekki flugflotann Alexander Lebedev, einn af stærstu hluthöfum rússneska flugfélagsins Aeroflot, vísar því á bug að skrifað hafi verið undir samning um kaup á 22 farþegaflugvélum frá Boeing og jafnmörgum vélum frá Airbus. Viðskipti erlent 28.9.2006 18:23
Tekur sér stöðu á hliðarlínunni Jafet Ólafsson selur 24% í VBS til Fjárfestingarfélags sparisjóðanna. Jón Þórisson líklegur arftaki Jafets. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:23
Setningabók frá Og Vodafone Og Vodafone hefur tekið í notkun setningabókina Made in Iceland í Vodafone live. Bókin gefur viðskiptavinum fyrirtækisins kost á að skoða og þýða yfir fimm hundruð setningar á þrettán tungumálum í farsímum sínum. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:23
Promens reisir nýja verksmiðju í Póllandi Promens hf. hefur ákveðið að reisa nýja hverfisteypuverksmiðju í Póllandi til framleiðslu á vörum úr plasti. Bygging verksmiðjunnar hefst innan fárra vikna og tekur hún til starfa um mitt næsta ár. Viðskipti innlent 28.9.2006 18:24
Tvöföldun á hagnaði Mosaic Fashions Tískuvörukeðjan Mosaic Fashions hf. skilaði 5,6 milljóna punda hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta samsvarar 738,4 milljónum íslenskra króna og er rétt rúm tvöföldun á hagnaði félagsins á milli ára. Á sama í fyrra nam hann 2,7 milljónum punda. Mestur hluti hagnaðarins varð til á öðrum ársfjórðungi. Viðskipti innlent 28.9.2006 21:32
Dow Jones náði sögulegu hámarki Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísitalan fór í 11.724,86 stig í morgun og sló þar með sögulegt hámark. Vísitalan hefur ekki náð viðlíka hæðum síðan í janúar árið 2000. Viðskipti erlent 28.9.2006 15:02
Hagvöxtur undir væntingum Hagvöxtur jókst um 2,6 prósent í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt endurskoðuðum útreikningum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Þetta er nokkuð undir væntingum en almennt var reiknað með því að hagvöxtur myndi aukast um 2,9 prósent. Þá er um talsvert minni hagvöxt að ræða en á fyrsta fjórðungi ársins, sem nam 5,6 prósentum. Viðskipti erlent 28.9.2006 14:31
Jafet selur fjórðungshlut sinn í VSB Jafet S. Ólafsson, framkvæmdatjóri VBS fjárfestingabanka, hefur selt tæplega fjórðungshlut sinn í bankanum og á tvö prósent eftir söluna. Kaupandi er fjárfestingafélagið FSP, sem er í eigu tuttugu sparisjóða og Sparisjóðabanka Íslands. Innlent 28.9.2006 10:47
Norðmenn vilja SAS Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir koma til greina að norska ríkið kaupi hluti sænska og danska ríkisins í norræna flugfélaginu SAS. Stoltenberg segir ríkisstjórnir landanna hafa hug á að selja hluti sína í félaginu. Markaðsvirði hlutanna nemur rúmum 87 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 28.9.2006 10:37
Eignatilfærsla hjá fjárfestingarfélaginu Eglu Stjórn fjárfestingarfélagsins Eglu hf., hefur ákveðið að 10,82 prósenta hlutur þess í KB banka færist beint undir hollenskt eignarhaldsfélag, Kjalar Invest BV. Viðskipti innlent 28.9.2006 09:54
Vöruskipti óhagstæð um 11,6 milljarða Vöruskipti voru óhagstæð um 11,6 milljarða krónur í ágústmánuði. Þetta er 3,2 milljörðum krónum minna en á sama tíma fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru vöruskipti hins vegar neikvæð um 63,4 milljarða krónur sem er 31,2 milljörðum krónum meira en á fyrstu átta mánuðum síðasta árs. Viðskipti innlent 28.9.2006 09:54
Eimskip í skipafélagsbandalag í Evrópu Eimskip hefur gengið frá kaupum á 65 prósenta hlut í finnska skipafélaginu Containerships og munu félögin tvö, ásamt litháenska skipafélaginu Kursiu Linija, sem er í eigu Eimskipa, mynda eitt stærsta flutningabandalag Evrópu í styttri siglingu. Félagið mun heita Containerships Group. Viðskipti innlent 28.9.2006 09:34
Verðbréfasjóður KB banka sýndi yfir 500% ávöxtun. Verðbréfasjóður á vegum KB banka, Kaupthing IF Icelandic Equity, er í flokki þeirra erlendu verðbréfasjóða sem hafa sýnt mestu ávöxtun á undanförnum fimm árum. Þetta kemur fram í samantekt Standard & Poor"s sem Daily Telegraph birtir. Viðskipti innlent 27.9.2006 22:25
Óvíst að bankarnir vilji fara íbúðabankaleiðina Boðað hefur verið að félagsmálaráðherra leggi á haustþinginu fram frumvarp um framtíðarskipan Íbúðalánasjóðs. Stýrihópur sem ráðherra skipaði í febrúarlok leggur til íbúðabankaleið sem viðskiptabönkunum er lítt hugnanleg. Viðskipti innlent 27.9.2006 22:25
HoF rekið með tapi Vöruhúsakeðjan House of Fraser, sem Baugur, FL Group og fleiri fjárfestar hyggjast yfirtaka, tapaði 11,6 milljónum punda á fyrri hluta rekstrarársins sem lauk í júlí. Samsvarar tapið rúmum 1,5 milljörðum króna og jókst um 275 prósent á milli ára. Viðskipti innlent 27.9.2006 22:25
Verð hækkar hér en lækkar annars staðar Norrænn samanburður sýnir að GSM þjónusta hækkar í verði á Íslandi meðan hún lækkar á hinum Norðurlöndunum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar samnorrænnar skýrslu eftirlitsstofnana á fjarskiptamarkaði. Farsímamarkaðurinn hér er sagður einkennast af fákeppni. Viðskipti innlent 27.9.2006 22:25
Árangurstengd laun á undanhaldi hér Á tímabilinu milli áranna 2003 og 2006 hefur dregið úr því að laun séu tengd frammistöðu í starfi. Er það í takt við þróunina í nágrannaríkjum okkar og kemur meðal annars til af neikvæðri umræðu í þjóðfélaginu um slíka umbun. Viðskipti innlent 27.9.2006 22:26
Viðsnúningur í verðbréfasölu Nettósala á erlendum verðbréfum í ágúst nam rúmum 7 milljörðum króna, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands, sem birtar voru eftir lokun markaða í dag. Nettókaup í júlí námu hins vegar 52 milljörðum króna. Viðskipti innlent 27.9.2006 17:05
GM vill greiðslu vegna samstarfs Stjórn bandaríska bílaframleiðandans General Motors (GM) er sögð ætla að fara fram á að bílaframleiðendurnir Nissan og Renault greiði fyrirtækinu milljarða bandaríkjadali í meðgjöf verði af samstarfi fyrirtækjanna á sviði bílaframleiðslu. Forstjórar fyrirtækjanna funduðu um samstarfið í París í Frakklandi í dag. Viðskipti erlent 27.9.2006 14:31
Dow Jones nálægt sögulegu hámarki Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísitalan er við það að ná nýjum sögulegum hæðum. Ástæðan fyrir því er hækkun á gengi hlutabréfa á fjármálamörkuðum vestra í kjölfar bjartsýni fjárfesta vegna minnkandi verðbólgu. Viðskipti erlent 27.9.2006 13:25
Taprekstur hjá HoF Vöruhúsakeðjan House of Fraser, sem Baugur, FL Group og fleiri fjárfestar hyggjast yfirtaka síðar á þessu ári, tapaði 11,6 milljónum punda á fyrri hluta rekstrarársins sem lauk í júlí. Tapið samsvarar rúmum 1,5 milljörðum króna og jókst um 275 prósent á milli ára. Viðskipti innlent 27.9.2006 10:41