Lögreglan
1 2 3 4 5 6 … 48 ›
Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir fólk á að leggja í sérmerkt bílastæði í kirkjugörðum höfuðborgarsvæðisins og að aka aðeins á malbikuðum vegum ætli það að heimsækja látna ástvini sína um hátíðarnar. Kirkjugarðarnir verða opnir allar hátíðarnar og má búast við mikilli umferð. Innlent 22.12.2025 12:40
Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan þrjú vegna bílveltu á þjóðveginum skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Fjórir erlendir ferðamenn hafa verið fluttir á sjúkrahús og er einn þeirra alvarlega slasaður. Innlent 21.12.2025 19:07
Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur aftur lagt fram tillögu um stofnun hverfislögreglustöðvar í Breiðholti. Hann segir ákall íbúa eftir slíkri stöð verða sífellt háværari. Innlent 21.12.2025 18:51
Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Um tuttugu prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu telja innbrot vera mesta vandamálið í þeirra hverfi. Ef litið er til landsins alls telur um fjórðungur, eða 26,5 prósent, umferðarlagabrot mesta vandamálið. Þar kemur einnig fram að um 40 prósent telja í lagi að lögregla beiti rafbyssu á ungmenni sem sýna ofbeldishegðun og að aðeins 9,6 prósent tilkynntu kynferðisbrot til lögreglunnar. Innlent 19.12.2025 11:04
Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Alls bárust fjórar umsóknir um embætti ríkislögreglustjóra sem auglýst var þann 3. desember síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu en meðal þeirra sem sækja um er settur ríkislögreglustjóri og settur fangelsismálastjóri. Innlent 19.12.2025 09:48
Reynslubolti kveður lögregluna Sveinn Kristján Rúnarsson, sem hefur verið andlit lögreglunnar á Suðurlandi í lengri tíma, hefur söðlað um og ráðið sig til Landsvirkjunar. Hann segir hollt að breyta til og nýtur þess að starfa í himnaríki, við dyr hálendisins. Innlent 19.12.2025 06:42
Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Samráðshópur ríkja Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO) hefur lokið athugun sinni gagnvart Íslandi. Fyrsta skýrsla GRECO um Ísland í fimmtu eftirlitslotu var gefin út árið 2018. GRECO lagði fram átján tillögur til að sporna gegn spillingu innan hins opinbera og hjá löggæsluyfirvöldum. Þrettán hafa nú verið innleiddar, fjórar innleiddar að hluta en ein ekki. Innlent 17.12.2025 07:16
Ríkislögreglustjóri tekur Snapchat-mál lögreglunema alvarlega Háskólanum á Akureyri barst tilkynning í október um lokaðan Snapchat-hóp lögreglunema á öðru ári við skólann, þar sem þeir eiga að hafa dreift óviðeigandi myndum af líkamspörtum bekkjarsystra sinna. Málið er til rannsóknar hjá fagráði háskólans á Akureyri, en embætti Ríkislögreglustjóra bíður niðurstöðu þeirrar vinnu áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref. Innlent 9.12.2025 18:37
Fólk farið að reykja kókaínið Ópíóða- og kókaínfíkn er að aukast og reglulega kemur fólk sem reykir kókaín sem er enn hættulegra að sögn formanns Matthildarsamtakanna. Hún telur núverandi stefnu stjórnvalda í málaflokknum hafa gengið sér til húðar því þrátt fyrir met í haldlagningu vímuefna séu vísbendingar um að bæði framboð og eftirspurn hafi aukist á árinu. Innlent 8.12.2025 19:20
Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur ákveðið að sækja um embætti ríkislögreglustjóra sem hefur verið auglýst laust til umsóknar. Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, hyggst ekki sækja um stöðuna. Innlent 8.12.2025 14:51
Glæpastarfsemi á Íslandi orðin jafn mikil og á Norðurlöndum Skipulögð glæpastarfsemi hefur aldrei verið eins umfangsmikil hér á landi og er nú svipuð og á öðrum Norðurlöndum að sögn stjórnanda hjá ríkislögreglustjóra. Gríðarlegt magn fíkniefna flæði til landsins samfara þróuninni. Það komi því ekki á óvart að hvert metið á fætur öðru hafi verið slegið í haldlagningu fíkniefna. Innlent 5.12.2025 19:00
Yfir 120 stórfelld fíkniefnamál hjá tollinum Tollgæslan hefur kært hátt í þrjú hundruð mál vegna innflutnings á fíkniefnum- og lyfjum á þessu ári. Tæplega helmingur málanna flokkast sem stórfelld brot. Hvert Íslandsmetið á fætur öðru hefur fallið í ár þegar kemur að haldlagningu á efnum á landamærum. Innlent 4.12.2025 19:00
Útilokar ekki að fara í pólitík og bjóða sig fram í borginni Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki vera búinn að gera upp hug sinn hvort hann muni sækjast eftir embætti ríkislögreglustjóra sem nú er auglýst. Þá segist hann alltaf hafa verið rammpólitískur en enginn hafi komið að tali við hann um framboð. Innlent 4.12.2025 17:07
Arftaki Sigríðar Bjarkar þarf að uppfylla þessi skilyrði Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti ríkislögreglustjóra. Leitað er að öflugum leiðtoga með skýra sýn og getu til þess að leiða fólk til árangurs, í þeim tilgangi að móta og efla starfsemi embættisins. Innlent 4.12.2025 15:50
Sneypuför í Teslubrunamáli kostar ríkið ellefu milljónir Máli Héraðssaksóknara á hendur þremur mönnum, sem grunaðir voru um að hafa kveikt í Teslu-bifreið lögreglumanns, hefur verið vísað frá dómi. Ákært var fyrir eignaspjöll en Héraðssaksóknari fer ekki með ákæruvald í slíkum málum nema með leyfi Ríkissaksóknara. Slíks leyfis var ekki aflað og því átti ákæran ekkert erindi fyrir dómi. Ellefu milljóna króna málskostnaður sakborninga fellur á ríkið vegna málsins. Innlent 3.12.2025 16:47
Fór yfir fangaklefa á Vesturlandi: Hálf hurð á baðherberginu og klefinn of lítill Umboðsmaður Alþingis tók út aðstöðu, aðbúnað og meðferð þeirra sem eru í haldi lögreglunnar á Vesturlandi. Meðal tilmæla var að setja þyrfti upp klukku og hátta málum svo vistaðir geti fengið að nota salernið í næði. Innlent 3.12.2025 15:30
Fangar fái von eftir afplánun Nýtt og stórt samstarfsverkefni lögreglu, Fangelsismálayfirvalda, félagasamtaka og sveitarfélaga hvað varðar stuðning við fanga að lokinni afplánun var kynnt í morgun. Verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra segir fanga oft ekki hafa tækifæri til að snúa blaðinu við. Innlent 3.12.2025 11:39
Bíða með að skipa lögreglustjóra á Suðurnesjum á meðan nýs ríkislögreglustjóra er leitað Dómsmálaráðuneytið gerði hlé á umsóknarferli vegna embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum á meðan leit að nýjum ríkislögreglustjóra stendur yfir. Þrír mánuðir eru frá því að staðan á Suðurnesjum var auglýst. Innlent 2.12.2025 14:28
Setja fyrirvara við vistun barna í brottfararstöð Lögreglan á Suðurnesjum fagnar því að fram sé komið frumvarp um brottfararstöð fyrir útlendinga því slíkt úrræði sé mannúðlegra en að vista fólk ýmist í fangelsi eða á flugvelli. Yfirlögfræðingur embættisins vill að málsmeðferð fólks sem ekki hefur rétt á að dvelja á landinu verði minna íþyngjandi og þung og þá setur hún ákveðna fyrirvara við vistun barna í brottfararstöðinni. Innlent 1.12.2025 13:00
„Það eru engir James Bond aukahlutir en þessir bílar eru mjög vel útbúnir“ Vonast er til að nýir rafmagnsbílar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið í notkun spari kostnað bæði í eldsneytiskaupum og viðhaldi. Engir James-Bond aukahlutir eru í bílunum og rafmagnsleysi gæti verið áskorun fyrir lögregluembætti á landsbyggðinni. Innlent 28.11.2025 22:47
Úlfar íhugar að sækja um embætti ríkislögreglustjóra Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, íhugar að sækja um embætti Ríkislögreglustjóra. Innlent 28.11.2025 20:18
Stórfelld fjölgun fíkniefnamála tengd Norrænu Stórfelld fíkniefnamál í tengslum við komu Norrænu á Seyðisfirði eru orðin jafn mörg og samanlagður málafjöldi síðustu fimm árin þar á undan. Yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir öll málin talin tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Þróunin sé áhyggjuefni. Innlent 25.11.2025 20:02
Stórhættuleg eiturlyf flæða til landsins í sögulegu magni Aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið magn örvandi fíkniefna á Keflavíkurflugvelli og í ár. Þá hafa stórfelld eiturlyfjamál á flugvellinum aldrei verið fleiri. Neysla á nýju afar hættulegu efni virðist vera að færast í aukanna. Yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum segir þetta benda til gríðarlegs framboðs og eftirspurnar. Innlent 24.11.2025 19:06
Skipulagðir glæpahópar farnir að útvista ofbeldi Tilfellum þar sem skipulagðir glæpahópar beita öðrum fyrir sig til ofbeldisverka gegn greiðslu fer fjölgandi hér á landi. Sérfræðingur segir þetta í takti við þróunina á Norðurlöndum. Fjórum var vísað frá á landamærunum í sumar vegna þessa. Ljóst sé að efla þurfi alþjóðasamstarf þar sem ljóst sé að brotahópar virði ekki landamæri. Innlent 21.11.2025 06:47
Nær allir sammála um afsögn ríkislögreglustjóra Svarendur í skoðanakönnun sem Maskína gerði voru svo gott sem á einu máli um að það hefði verið rétt ákvörðun hjá Sigríði Björk Guðjónsdóttur að segja af sér sem ríkislögreglustjóri. Sú afstaða er óháð kyni, aldri, búsetu, menntun, tekjum eða stjórnmálaskoðunum svarenda. Innlent 20.11.2025 09:20
Ungum konum fjölgar í lögreglunni Æi, er þetta ekki bara upp á punt hugsa eflaust margir þegar talið berst að jafnréttismálunum í atvinnulífinu eða verkefnum eins og Jafnvægisvog FKA. Atvinnulíf 20.11.2025 07:01
Umboðsmaður óskar svara um notkun lögreglu á hrákagrímum Umboðsmaður Alþingis hefur beint fyrirspurn til dómsmálaráðuneytisins um það hvort einhverjar reglur séu til staðar um notkun svokallaðra „hrákagríma“. Innlent 19.11.2025 08:40
Fyrstu mistökin voru að fara einn í fangaklefann „Skömmin var svo mikil að ég einhvern veginn bara lokaðist inni í fangelsi hugans í þessi átta ár,“ segir Sigurður Árni Reynisson kennari. Sigurður var á sínum tíma sakfelldur fyrir að hafa, í starfi sínu sem lögreglumaður, ráðist á fanga í klefa á Hverfisgötu og beitt hann ofbeldi. Hann missti í kjölfarið vinnuna og sökk djúpt niður. Í dag hefur hann byggt upp líf sitt að nýju. Lífið 19.11.2025 07:02
Vill á annað hundrað milljóna króna fyrir sólarhringsvakt Forseti Alþingis hefur farið þess á leit við fjárlaganefnd að nefndin veiti embætti ríkislögreglustjóra fjárveitingu í samræmi við kostnaðarmat, 154 milljónir króna á ári, til að annast löggæslu á Alþingi allan sólarhringinn. Núverandi fjárveiting til embættisins nemur fjörutíu milljónum króna. Innlent 17.11.2025 13:15
Höfðu eftirlit með fangageymslu lögreglu Umboðsmaður Alþingis og starfsmenn embættisins fóru í október í næturlangt eftirlit í fangageymslu lögreglunnar við Hverfisgötu, frá föstudagskvöldi til laugardagsmorguns. Innlent 15.11.2025 17:58