Sósíalistaflokkurinn

Fréttamynd

Enginn aug­ljós meiri­hluti á vinstri vængnum

Prófessor í stjórnmálafræði segir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins vera líklegustu niðurstöðuna í Reykjavík, miðað við nýjustu kannanir. Hann segir Samfylkinguna með erfiðan farangur í farartaskinu eftir óvenju langa valdatíð og býst við mikilli spennu i kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur stærstur en nær ekki meiri­hluta með Miðflokki og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn. 

Innlent
Fréttamynd

Enginn mögu­leiki á meiri­hluta til vinstri sam­kvæmt nýrri könnun

Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri.

Innlent
Fréttamynd

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“

Oddvitar í Reykjavík tókust á um leikskólamálin í kappræðum Sýnar á miðvikudaginn. Frambjóðendur voru fyrst beðnir um að svara því hvort Reykjavík stæði sig vel í leikskólamálum sem allir þeirra svöruðu neitandi.

Innlent
Fréttamynd

Kjós­endur vilja helst þessa flokka í sam­starf

Kjósendum Viðreisnar í Reykjavík hugnast miklu frekar að mynda meirihluta með vinstri flokkum en hægri flokkum að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn gæti verið í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun.

Innlent
Fréttamynd

Misánægð með þéttingu en stefnan hafi valdið hækkunum

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks telja þéttingu byggðar í miðborginni misheppnaða. Breyta þurfi um stefnu. Oddviti Samfylkingar er ánægður með hvernig til hefur tekist. Fólk hefur áhyggjur þvert á flokka af háu íbúðaverði á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgar­stjóra en Björgu

Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur eykur for­skotið á Sam­fylkingu í Reykja­vík

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í nýrri Maskínu-könnun í Reykjavík. Flokkarnir voru nánast jafnir í mars en síðan þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt verulega við sig á sama tíma og Samfylkingin hefur dalað. Vinstrið sækir jafnframt mest fram milli mælinga.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn fallinn og VG á þingi

Stuðningur við ríkisstjórnina dalar og mælist undir fimmtíu prósentunum í fyrsta sinn. Vinstri græn ná inn manni og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun.

Innlent
Fréttamynd

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík

Margt er líkt í stefnu flokkanna í leikskólamálum. Margir vilja tryggja systkinaforgang og heimgreiðslur og nær allir tala í sinni stefnu um að styrkja dagforeldrakerfið. Margir vilja auka svigrúm fyrirtækja og stofnana til að opna leikskóla. Nokkrir flokkar tala um hvernig á að auka mönnun og einhverjir tilgreina nákvæmlega hversu mörgum plássum á að fjölga á kjörtímabilinu.

Innlent
Fréttamynd

Andar sig reyk­laus í gegnum kosninga­baráttuna

„Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir of­boðs­legu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunn­laugs­dóttir, menntunar­fræðingur og fram­bjóðandi Sósíalista, sem eftir tæp­lega hálfa öld hefði sjálf­sagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hug­leiða og anda sig í gegnum kosninga­baráttuna.

Lífið
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent