
Boeing

„Við gerum ekkert sem við teljum ekki vera óhætt“
Max-vélum Icelandair verður ferjuflogið frá Keflavík til Frakkalands í næstu viku þar sem þær verða geymdar loftslagi sem fer betur með vélarnar. Icelandair segir óhætt að fljúga vélunum sem voru kyrrsettar vegna öryggisgalla.

Boeing 737 MAX-vélum Icelandair flogið til Frakklands í næstu viku
Boeing 737 MAX-vélum Icelandair verður ferjuflogið frá Keflavík til Suður-Frakklands í næstu viku. Tilgangurinn er að koma þeim fyrir veturinn til geymslu í hentugra loftslagi.

Boeing greiðir bætur til aðstandenda
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing mun greiða aðstandendum þeirra sem létust í tveimur mannskæðum flugslysum í Eþíópíu og Indónesíu á þessu ári og hinu síðasta 144,5 þúsund dollara í skaðabætur.

Icelandair frestar endurskoðun flotastefnu vegna MAX-óvissu
Bogi Nils Bogason forstjóri segir fjárhagsstöðu Icelandair það sterka að félagið muni komast leikandi í gegnum kyrrsetningu Boeing 737 MAX-vélanna.

Icelandair og Boeing hafa náð bráðabirgðasamkomulagi um bætur
Icelandair Group og flugvélaframleiðandinn Boeing hafa náð samkomulagi um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið varð fyrir vegna kyrrsetningar Boeing 737-MAX vélanna.

Má ekki veðja þjóðarbúinu á bætur Icelandair frá Boeing
Nefndarmaður í peningastefnunefnd sagði fyrir fundi opnum efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis að fylgjast þurfi vel með hremmingum í ferðaþjónustunni.

Ljóst fyrir áramót hvort Icelandair velji Airbus
"Við höfum átt í viðræðum við Airbus og Boeing varðandi langtíma flota félagsins og þær viðræður standa þannig að við stefnum að því að taka ákvörðun fyrir lok þessa ársfjórðungs en auðvitað hefur þetta svokallaða MAX-mál áhrif á þetta verkefni líka,“ segir forstjóri Icelandair Group.

Dráttur á notkun MAX-véla Icelandair helsta ástæða meiri svartsýni en áður
Tafir sem orðið hafa á því að Icelandair geti tekið Boeing 737 MAX þoturnar eru stærsta ástæða þess að Seðlabankinn er svartsýnni á það en áður hversu hratt ferðaþjónustan muni vinda ofan af áföllum sem yfir hana dunið að undanförnu.

Þjóðin stendur nú einkar vel að vígi
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Icelandair Group, sér fyrir sér að bætur frá Boeing til flugfélagsins verði að hluta til í formi reiðufjár. Bílasala hefur ekki aukist þótt kjarasamningar séu í höfn og óviss varðandi WOW Air er frá.

Eftirlaunasjóður Boeing með hálft prósent í Arion
Eftirlaunasjóður starfsmanna bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing er á meðal þrjátíu stærstu hluthafa Arion banka með eignarhlut að jafnvirði tæplega 600 milljóna króna.

Vilja meira en 115 milljónir dollara í bætur frá Boeing vegna MAX-vélanna
Rússneska flugvélaleigufyrirtækið Avia hefur höfðað mál á hendur bandaríska flugvélaframleiðandanum Boeing vegna 737 MAX 8-vélanna sem voru kyrrsettar um allan heim fyrr á þessu ári eftir tvö mannskæð flugslys.

Skoða flutning MAX-vélanna
Það er nú til skoðunar hjá Icelandair að flytja Boeing 737 MAX-vélar sínar úr landi.

MAX-þoturnar ekki í notkun á þessu ári
Icelandair gerir ekki ráð fyrir að Boeing 737 MAX-vélar verði teknar aftur í rekstur fyrir árslok, að því er fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu.

„Algjörlega óhugsandi“ að Icelandair fái ekki bætur frá Boeing
Forstjóri Icelandair Group segir félagið stefna á að fá allt tjón vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX-vélanna bætt frá flugvélaframleiðandanum.

Ryanair gæti rekið hundruð flugmanna og þjóna
Kyrrsetning Boeing-flugvéla, minnkandi hagnaður og vaxandi líkur á útgöngu Breta úr Evrópusambandinu án samnings eru á meðal ástæðna uppsagna sem gripið verður til í lok sumars.

Vill að Boeing 737 MAX verði kyrrsett varanlega
Neytendafrömuðurinn Ralph Nader hvetur bandarísku flugmálastjórnina, FAA, til að kyrrsetja 737 MAX-þotu Boeing varanlega. Þetta sagði Nader í viðtali við CNBC sjónvarpsstöðina.

Lengri kyrrsetning 737 MAX gæti leitt til framleiðslustöðvunar
Boeing tilkynnti í dag um mettap á síðasta ársfjórðungi.

Vilja að Icelandair deili Boeing-bótum með farþegum
Er farið fram á það vegna þeirra farþega sem fá ekki þau þægindi sem lofað var.

Viðræður standa yfir milli Icelandair og Boeing um bótaupphæð
Flugvélaframleiðandinn Boeing ætlar að greiða 4,9 milljarða Bandaríkjadala í bætur til flugfélaga sem orðið hafa fyrir fjárhagslegu tjóni vegna kyrrsetningar 737 Max-þotanna.

6,6 milljarða dala högg vegna 737 MAX
Flugvélaframleiðandinn Boeing mun greiða 4,9 milljarða bandaríkjadala í bætur til flugfélaga sem orðið hafa fyrir fjárhagslegu tjóni vegna kyrrsetningar 737 MAX-þotanna.

Boeing styrkir um 12 milljarða
Bandaríski flugvélarisinn Boeing ætlar að nýta að minnsta kosti helminginn af sjóði sínum fyrir fórnarlömb flugslysa tveggja Boeing 737 MAX-véla til þess að styðja fjölskyldur þeirra sem létust.

Dreymir börnin halda grátandi í móður sína á meðan flugvélin hrapar
Kanadamaður, hvers fjölskylda fórst þegar farþegaþota af gerðinni Boeing 737 Max hrapaði í Eþíópíu í mars, segist sakna fjölskyldu sinnar hvern einasta dag.

Bandarísk flugfélög halda 737 MAX-þotunum áfram á jörðu niðri
Flugfélög sem hafa Boeing 737 MAX-þotur á sínum snærum hafa ítrekað neyðst til þess að seinka þeim tímamörkum sem gefin hafa verið upp varðandi hvenær þoturnar verða settar aftur í loftið.

Icelandair breytir flugáætlun vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX
Útlit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla muni vara lengur en reiknað hafði verið með og hefur Icelandair því uppfært flugáætlun sína til loka október næstkomandi.

Boeing ekki lengur stærstir á markaðnum
Flugvélaframleiðandinn Boeing sem hefur verið stærsti framleiðandinn á flugvélamarkaðnum síðastliðin átta ár hafa nú lútið í lægra haldi fyrir samkeppnisaðilanum Airbus sem hafa verið næst stærstir síðast liðin ár.

Farþegafjöldi Icelandair jókst um 15% milli ára
Farþegar flugfélagsins Icelandair í júní mánuði voru 553 þúsund talsins og var sætanýting 88% í mánuðinum. Farþegafjöldi milli ára jókst því um 15% en framboð var aukið um 8%. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group.

Falla frá stórri pöntun á Boeing 737 Max vélum
Sádí-arabíska lággjaldaflugfélagið Flyadeal, hefur tekið ákvörðun um að draga pöntun sína á þrjátíu Boeing 737 Max vélum til baka.

Fundu annan galla í stýrikerfi Boeing 737 MAX
Samkvæmt heimildum CNN hefur fundist annar galli í stýrikerfi Boeing 737 MAX.

Airbus vill fá að bjóða í fyrirhugaða risapöntun IAG ætlaða Boeing
Christian Scherer, sölustjóri Airbus, segir að flugvélaframleiðandinn hafi mikinn áhuga á því að fá að bjóða í stóra flugvélapöntun evrópsku flugfélagasamstæðunnar IAG, sem tilkynnti í vikunni að það hafi skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á 200 Boeing 737 MAX flugvélum.

Næstu stórkaup Icelandair gætu orðið í þessari þotu
Ráðamenn Icelandair stefna að ákvörðun fyrir áramót um framtíðarskipan flugflotans sem gæti falið í sér stórfelld flugvélakaup. Ný langdræg farþegaþota Airbus er meðal þeirra sem helst koma til greina.