Sögufrægt verslunarhús til sölu Hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hafa sett á sölu hið sögufræga hús Sjónarhól að Eyrargötu 46 á Eyrarbakka. Um er að ræða sjarmerandi hús með tæplega 140 ára sögu og hagstætt fermetraverð. Húsnæðið býður upp á ýmis tækifæri og stuttan akstur til höfuðborgarsvæðins. Lífið 7.9.2026 14:29
„Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. Innlent 7.9.2026 09:39
Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi og dóttir Bjarna Benediktssonar, gekk í það heilaga með Ísaki Erni Kristinssyni körfuboltadómara. Fjöldi þekktra gesta var viðstaddur. Lífið 30.8.2026 10:28
Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn Umferð um Suðurlandsveg vestan við Selfoss í austurátt var lokað vegna áreksturs sem varð á veginum síðdegis. Umferð var beint um Ölfusveg sunnan við hringveginn. Fjórir voru í tveimur ökutækjum sem rákust á en enginn er alvarlega slasaður að sögn lögreglu. Innlent 16. júlí 2026 16:27
Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum „Umfangið liggur ekki fyrir en stjórn Brunavarna Árnessýslu og stjórnir sveitarfélaganna átta líta málið mjög alvarlegum augum.“ Þetta segir Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnar Brunavarna Árnessýlu um mál Péturs Péturssonar, fyrrverandi slökkviliðsstjóra. Innlent 16. júlí 2026 12:15
Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu hefur látið af störfum eftir að ábendingar bárust stjórn varðandi stjórnarhætti Péturs. Innlent 14. júlí 2026 11:29
Grobba sig af stolnum trjám Trjáþjófnaður er landlægt vandamál að mati formanns Skógræktarfélags Selfoss en trjám var stolið úr Hellisskógi á Selfossi um helgina. Honum svíður að fólk steli trjám úr skógum sem sjálfboðaliðar hafi unnið hörðum höndum að því að byggja upp. Innlent 13. júlí 2026 19:18
Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Lögreglunni bárust tilkynningar um þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæði Kótilettunnar sem haldin var á Selfossi um helgina. Innlent 12. júlí 2026 10:31
Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Mikill erill var á seinna kvöldi Kótilettunnar sem haldin var á Selfossi í gær en þrír voru vistaðir í fangageymslu í tenglsum við hátíðarhöldin að sögn lögreglu. Kvöldið hafi þó gengið þokkalega vel miðað við mannmergð. Innlent 12. júlí 2026 09:52
„Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Fyrsti dagurinn á tónlistarhátíðinni Kótelettunni fór fram í gær og gekk dagurinn mjög vel fyrir sig. Einn gisti í fangaklefa lögreglu og töluverð umferð var að bænum. Innlent 11. júlí 2026 09:57
Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Íbúar Flóahrepps vilja flestir ekki sameinast öðru sveitarfélagi. En, ef til þess kæmi, myndu þeir helst vilja sameinast Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Innlent 9. júlí 2026 22:37
Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sannkallaður tímamótaleikur verður á Selfossi í kvöld sem jafnframt er sérstakur styrktarleikur vegna glímu móður leikmanns Selfoss við illvígt krabbamein. Íslenski boltinn 8. júlí 2026 13:02
Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Akrein í austurátt frá Selfossi verður lokuð til klukkan sautján síðdegis í dag vegna framkvæmda. Vegfarendur eru beðnir um að keyra um með gát og virða allar merkingar. Innlent 8. júlí 2026 09:53
Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Eigna- og veitunefnd Árborgar hefur samþykkt að hafna eina tilboðinu sem barst í endurgerð á tröppunum við ráðhúsið á Selfossi, sem eru afar illa farnar. Innlent 6. júlí 2026 10:15
Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Slys varð á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri í gær þegar ein fjögurra stoða hringekju gaf sig. Tækið er búið svokölluðum „bollum“ sem börnin setjast í og er síðan snúið í hringi. Innlent 5. júlí 2026 11:38
Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður MAST hefur fengið ábendingar um einstakling sem fór á milli hesthúsa á Suðurlandi og villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður stofnunarinnar. Innlent 2. júlí 2026 12:15
Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Vegna slysahættu hefur Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi verið lokað. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Árborg kemur fram að rennibrautinni hafi verið lokað tímabundið vegna slysa barna. Innlent 27. júní 2026 09:18
Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), óskar eftir tilboðum fyrirtækja eða teyma fyrirtækja í almennu útboði sem felur í sér jarðvinnuframkvæmd á nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg. FSRE óskar eftir tilboðunum fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Útboðið opnar í dag og stendur til 20. ágúst. Innlent 25. júní 2026 11:43
Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Hjónin Atli Bjarnason og Íris Rut Þorgeirsdóttir hafa undanfarnar vikur reynt að koma í veg fyrir að fólk falli fyrir svikum þar sem nafn fyrirtækis í þeirra eigu er notað til að hafa fé af fólki. Innlent 23. júní 2026 13:02
Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans. Ekki er talið um „brýna nauðsyn“ að ræða. Eiginkona Jóns Atla segir þau þegar búin að tapa dýrmætum tíma í baráttu sinni og óttast að börnin þeirra missi föður sinn fyrr en þau þurfa fái hann ekki aðgang að meðferðinni. Innlent 10. júní 2026 13:46
Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð. Innlent 9. júní 2026 13:52
Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Reykkafarar frá brunavörnum Árnessýslu slökktu eld sem kviknaði í veitingastaðnum Fröken Selfossi í morgun. Mikill reykur kom af eldinum og vinna slökkviliðsmenn enn að því að reykræsta. Innlent 29. maí 2026 08:51
Íslendingur vann 336 milljónir króna Íslendingur vann í dag ríflega 336 milljónir króna í EuroJackpot. Hann var einn tíu sem deila með sér öðrum vinningi. Innlent 22. maí 2026 19:51
Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Tuttugu og tveggja ára bið Arsenal eftir Englandsmeistaratitli í fótbolta er lokið titlinum væntanlega hvergi meira fangað heldur en á rakarastofu Björns og Kjartans þar sem að ræður ríkjum Kjartan Björnsson einn af stofnmeðlimum Arsenalklúbbsins á Íslandi. Enski boltinn 21. maí 2026 09:28