Bensín og olía
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 17 ›
Svona er staðan á bensínstöðvunum Olíufyrirtækið N1 hefur lokað fyrir afgreiðslu á bensíni eða dísel á nokkrum stöðvum á suðvesturhorninu. Tankar eru víða að tæmast. Neytendur 15.2.2023 14:33
Landsmenn minntir á strangar reglur er varða geymslu á bensíni Umhverfisstofnun minnir landsmenn á að olíu skal meðhöndla með varúð og gæta þess að hún komist ekki með neinum hætti út í jarðveg, niðurföll, frárennslislagnir, vatnsföll eða aðra staði þar sem hún getur dreifst um og valdið mengun. Innlent 15.2.2023 13:45
Áhrif verkfallsins strax mikil og fyrstu bensínstöðvarnar að tæmast Forstjóri Skeljungs segir verkfallið strax hafa gríðarleg áhrif á viðskiptavini félagsins eins og bensínstöðvar, verktaka, rútufyrirtæki og flugvelli. Það styttist í að bensín klárist á fyrstu bensínstöðvunum. Innlent 15.2.2023 12:09
Tankarnir byrjaðir að tæmast og allar línur rauðglóandi Þrjár bensínstöðvar N1 eru lokaðar vegna verkfallsins. Framkvæmdastjóri N1 segir að nú séu allar línur rauðglóandi hjá fyrirtækinu og að skýra þurfi hvernig aðilar með undanþágu eigi að fá eldsneyti. Viðskipti innlent 15.2.2023 12:07
Margföld sala á eldsneyti: Smurolíutunnur, brúsar og tankar dregnir fram Sala á bensíni og olíu í dag hefur verið margföld á við venjulegan dag vegna yfirvofandi verkfalls olíubílstjóra á morgun. Neytendur hafa dregið fram ýmis ílát til að geyma bensín komi til langs verkfalls. Framkvæmdastjóri N1 reiknar með einstaklingar geti farið að finna fyrir verkfallinu strax annað kvöld. Viðskipti innlent 14.2.2023 16:02
Flutningur á lyfjum og mat gæti stöðvast vegna verkfalla Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu deilir þungum áhyggjum með forstjórum hjúkrunarheimila af verkfalli olíubílstjóra sem hefst á morgun. Flutningur á mat og lyfjum gæti skerst verulega sem hefði gríðarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkvæmasta hóp samfélagsins. Innlent 14.2.2023 12:31
Áhrif verkfallsins einskorðist ekki við höfuðborgarsvæðið Verkfall olíubílstjóra hefst á hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri Olís segir áhrif verkfallsins ekki bara einskorðast við höfuðborgarsvæðið. Þá taki það ekki marga daga fyrir eldsneytið að klárast. Innlent 14.2.2023 09:53
Kostnaður við 90 daga neyðarbirgðir yrði olíufélögum of þungbær Skeljungur, dótturfélag SKEL fjárfestingafélags, telur að rekstrargrundvöllur félagsins, sem og annarra olíufélaga, geti ekki staðið undir fjármagnskostnaði sem félli til vegna þeirra kvaða um birgðahald eldsneytis sem áformað er að leiða í lög. Nauðsynlegt sé að niðurgreiða aukið birgðahald enda sé það hlutverk ríkisins, ekki einkafyrirtækja, að tryggja þjóðaröryggi. Innherji 14.2.2023 09:09
Varar fólk við að hamstra eldsneyti Framkvæmdastjóri Skeljungs segir ljóst að fólk sé farið að hamstra eldsneyti vegna yfirvofandi verkfalls olíubílstjóra. Slökkviliðsstjóri segir hamstrið vera varasamt og mælir með því að fólk sleppi því. Innlent 13.2.2023 19:09
Löng bið eftir bensíni hjá Costco Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni. Neytendur 13.2.2023 11:28
Bensínið gæti klárast á fimmtudag Forstjóri Skeljungs segir að bensín bensínstöðva gæti klárast strax á fimmtudag ef af verkfalli olíubílstjóra verður á miðvikudag, eins og virðist stefna í. Hann hefur þungar áhyggjur af stöðunni, alvarlegt ástand geti skapast á örfáum dögum. Neytendur 12.2.2023 19:28
Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt. Viðskipti innlent 11.2.2023 22:00
Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar. Innlent 31.1.2023 11:13
Lærdómurinn frá Þýskalandi Hið óhugsandi gerðist þegar Rússland beitti gasvopninu gegn Evrópu. Hvað ef alvöru stríðsátök, til dæmis við Persaflóa, brytust út og olíuverð hækkaði í 200 eða 300 Bandaríkjadali fyrir tunnuna? Þá verður Ísland alveg jafn berskjaldað fyrir þeim hækkunum eins og aðrir. Norðmenn munu selja á heimsmarkaðsverði eftir sem áður, eins og allir aðrir olíuframleiðendur. Við verðum ekki aftur í sömu sápukúlu og síðastliðna 12 mánuði. Umræðan 18.1.2023 08:00
Segir Evrópu eiga nægar olíubirgðir í aðdraganda aukinna þvingana Aðildarríki Evrópusambandsins og G7-ríkin búa yfir nægum birgðum af hráolíu, dísilolíu og flugvélaeldsneyti til að komast í gegnum áhrifin af auknum viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi, að sögn Kadri Simpson sem fer fyrir orkumálum Evrópusambandsins. Innherji 16.1.2023 11:55
Norska ríkisstjórnin gefur út 47 ný leyfi til olíuleitar Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Aasland, hefur úthlutað 47 nýjum sérleyfum til olíuleitar og olíuvinnslu á norska landgrunninu. Ráðherrann tilkynnti um úthlutunina á árlegri ráðstefnu norska olíuiðnaðarins í bænum Sandefjord í fyrradag. Viðskipti erlent 12.1.2023 11:38
Goldman Sachs: Olíuverð yfir 100 Bandaríkjadali á árinu Bandaríski fjárfestinganbankinn Goldman Sachs spáir því að heimsmarkaðsverð á tunnunni af hráolíu muni ná 105 Bandaríkjadölum á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Sterkur vöxtur í eftirspurn, einkum frá Kína er helsta skýringin á hækkandi olíuverði á árinu. Innherji 10.1.2023 12:21
Dísilolía flæðir frá Rússlandi í aðdraganda viðskiptabanns Útflutningur á dísilolíu frá Rússlandi mun stóraukast í janúarmánuði frá desember. Þann 5. febrúar næstkomandi tekur gildi bann við innflutningi á rússnesku eldsneyti sjóleiðis. Innherji 2.1.2023 17:00
Leggja 190 milljarða króna í gasvinnsluna í Hammerfest Norska ríkisolíufélagið Equinor og samstarfsaðilar þess á Snøhvit-gasvinnslusvæðinu í Barentshafi hafa ákveðið að leggja 13,2 milljarða norskra króna, andvirði 190 milljarða íslenskra, í uppfærslu gasvinnslustöðvarinnar á Melkøya við bæinn Hammerfest í Norður-Noregi. Áætlaður líftími stöðvarinnar framlengist með þessu um áratug, til ársins 2050, auk þess sem rafvæðing hennar mun draga verulega úr losun koltvísýrings. Viðskipti erlent 30.12.2022 15:20
Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu. Viðskipti erlent 27.12.2022 15:56
Verðmæti bensínstöðvalóðanna sjö til átta milljarðar Fyrirhugað er að byggja um það bil 700 til 800 íbúðir á ellefu lóðum í Reykjavík, þar sem áður voru bensínstöðvar. Lóðirnar telja samtals um 40 þúsund fermetra. Innlent 21.12.2022 06:52
Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn. Viðskipti erlent 18.12.2022 22:22
Verð bensíns og dísilolíu helst hátt þrátt fyrir lægra hráolíuverð Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á hráolíu hafi aðeins hækkað um 8,7 prósent það sem af er ári hefur verðhækkun á bæði á bensíni og dísilolíu um allan heim verið töluvert meiri. Innherji 1.12.2022 07:29
Bensínverð „ekkert nema græðgi og ofurálagning“ Bensínlítrinn er nú fimmtíu krónum dýrari en hann var í byrjun árs, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu sé svipað og þá. Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir græðgi stjórna ferð hjá íslenskum olíufyrirtækjum. Neytendur 27.11.2022 17:29
N1 lækkar verð í Norðlingaholti Frá og með deginum í dag getur þú fengið fengið ódýrara eldsneyti á stöð N1 í Norðlingaholti. Stöðin bætist með þessu í hóp fimm N1 stöðva sem bjóða ódýrara eldsneyti en mikil eftirspurn er eftir slíkum stöðvum. Samstarf 24.11.2022 15:00
Ísland ekki undanskilið hugsanlegum skorti á dísilolíu á komandi ári Íslensku olíufélögin munu næstu vikur semja um olíukaup næsta árs við erlenda birgja. Ef óvænt aukning verður í eftirspurn olíu hér á landi, til dæmis með auknum loðnukvóta eða stærra ferðamannasumri en spár gera ráð fyrir, er allsendis óöruggt að hægt verði að tryggja meira magn af eldsneyti til landsins en pantað var fyrir árið. Innherji 23.11.2022 07:01
Heimsmeistaramótið þrengir að framboði flugvélaeldsneytis Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram í Katar og hefst eftir rúma viku hefur stóraukið eftirspurn eftir flugvélaeldsneyti við Persaflóa. Það hefur aftur haft þær afleiðingar að minna af eldsneytinu fer til Evrópu en ella. Innherji 11.11.2022 09:28
Mikil fjölgun hagsmunavarða jarðefnaeldsneytisfyrirtækja á COP27 Áætlað er að um sex hundruð hagsmunaverðir jarðefnaeldsneytisiðnaðarins séu viðstaddir COP27-loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi, um fjórðungi fleiri en tóku þátt í síðustu ráðstefnu í Glasgow. Erlent 10.11.2022 07:45
Snúin staða á markaði með dísilolíu og verð gæti haldist hátt um skeið Þrátt fyrir að hráolíuverð hafi gefið lítið eitt eftir að undanförnu vegna dökkra efnahagshorfa þá helst verðið á dísilolíu áfram hátt. Snúin staða ríkir á heimsmarkaði með dísilolíu af margvíslegum ástæðum. Líklegt er að þau vandamál sem steðja að bæði Bandaríkjunum og Evrópu haldi áfram inn í veturinn. Innherji 9.11.2022 07:00
Vilja taka eins á jarðefnaeldsneyti og kjarnavopnum Hópur eyríkja leggur til að ríkis heims semji um að takmarka útbreiðslu jarðefnaeldsneytis líkt og gert var með kjarnavopn. Áætlað er að þróunarríki þurfi um tvær biljónir dollara á ári til að fjármagna orkuskipti og aðlögun og til að bæta tjón af völdum loftslagshamfara. Erlent 8.11.2022 14:41