Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. mars 2026 07:53 Eitt og eitt olíuflutningaskip hefur farið um Hormuz-sund síðustu daga, aðallega skip í eigu Íran. Getty/Raju Shinde Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi.
Þetta hefur CNN eftir heimildarmönnum. Einn sérfræðingur sem miðillinn ræddi við, sem hefur starfað sem embættismaður í stjórnum undir forystu bæði Repúblikana og Demókrata, sagði þetta með hreinum ólíkindum, þar sem áætlanir til að bregðast við mögulegri lokun sundsins hefðu verið lykilþáttur í þjóðaröryggisstefnu landsins í áratugi. Um 20 prósent allrar olíu heims fer um sundið og hefur röskun á flutningum valdið verulegum titringi á mörkuðum. Olíuverðið stendur í um 100 dollurum á tunnu. Íranir hafa hótað því að ráðast á skip sem fara um sundið og þá var greint frá því í gær að þeir hefðu hafið að koma neðansjávarsprengjum þar fyrir. Mojaba Khamenei, nýr æðsti leiðtogi Íran, sagði einnig í yfirlýsingu í gær að Íranir myndu halda áfram að hindra umferð um sundið. Þetta flækir málin verulega fyrir stjórnvöld vestanhafs. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á dögunum að ef þess þyrfti myndi hann senda herskip til að fylgja olíuflutningaskipum um sundið. Orkumálaráðherrann Chris Wright sagði hins vegar í gær að það yrði ekki alveg í bráð, þar sem heraflinn væri enn bundinn við eyðileggingu hernaðarlegra innviða Íran. Staðan hefur reynst vatn á myllu Rússa en Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að viðskiptaþvingunum gagnvart Rússum yrði aflétt í 30 daga og ríkjum heimilað að kaupa rússneska olíu. Heimildin væri þó bundin við olíu sem þegar væri í flutningi. Bessent hélt því fram að Rússar myndu ekki hagnast verulega á ráðstöfuninni. Eftir að hafa hafið aðgerðirnar gegn Íran að því er virðist á forsendum Ísraelsmanna og án fyrirframgreindra og afmarkaðra markmiða, er ekki annað að sjá en að Bandaríkjastjórn sé nú komin í veruleg vandræði. Til viðbótar við að loka Hormuz-sundi hafa Íranir getu til að þreyja þorrann og valda usla á svæðinu í langan tíma, með notkun tiltölulegra ódýrra dróna og stuðningi við hópa sem eru þeim hliðhollir. Á meðan sæta yfirvöld vestanhafs harðri gagnrýni og skortur á skýrri útleið úr átökunum að verða vopn í höndum pólitískra andstæðinga. Trump virðist mjög meðvitaður um þá stöðu sem komin er upp og jós úr skálum reiði sinnar á Truth Social í morgun, þar sem hann hrósaði enn og aftur sigri, sparkaði í New York Times sem hefur varpað skýru ljósi á vandræðagang stjórnvalda, og sagði það mikinn heiður að hafa staðið fyrir því að drepa leiðtoga Íran.
Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Íran Ísrael Hernaður Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira