Samfylkingin

Viðræður halda áfram: „Góðir hlutir koma hægt og rólega“
Stjórnarmyndunarviðræður þriggja flokka halda áfram eftir hádegi dag og er góður taktur sagður í viðræðunum. Þingflokkar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins hafa allir fundað um gang viðræðnanna en gefa lítið upp um það hvaða málefni eru helst til umræðu.

Telja flokkana þrjá geta fundið sterka sameiginlega samnefnara
Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra og einn stofnenda Viðreisnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segja nýliðnar alþingiskosningar staðfesta miklar breytingar á flokkakerfinu. Þau telja að þeir flokkar sem nú reyna að mynda ríkisstjórn ættu að geta fundið sameiginlegan samnefnara og eru bjartsýn á að þeim takist að mynda ríkisstjórn.

Hafa þegar afgreitt ýmis ágreiningsefni
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir stjórnarmyndunarviðræður ganga vel. Þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Inga Sæland formaður Flokks fólksins hafi þegar rætt ýmis málefni, bæði sameiginlega fleti og ágreiningsmál.

Framtíð Kristjáns Þórðar hjá RSÍ ræðst í janúar
Kristján Þórður Snæbjarnarson, nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík og formaður Rafiðnaðarsambands Íslands er kominn í leyfi frá störfum hjá sambandinu fram í janúar. Boðað verður til aukaþings eftir áramót þar sem framtíð Kristján hjá sambandinu skýrist.

Gefa hvorki upp staðsetningu né gestalista á fundi dagsins
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda áfram viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar í dag. Ekki verður gefið upp hvar formennirnir funda.

Fimm atkvæðum yfir útstrikunarmarki
Dagur B. Eggertsson segist taka fjölda útstrikana með æðruleysi. Einungis fimm atkvæðum munaði á því hvort hann færðist niður um sæti á lista eða ekki.

Þessi voru oftast strikuð út í Norðausturkjördæmi
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var sá frambjóðandi í kjördæminu sem oftast var strikað yfir í nýafstöðnum kosningum. Næstur var oddviti Samfylkingarinnar en þar á eftir kom maðurinn í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Formaður Miðflokksins hugnaðist ekki 23 kjósendum flokksins.

„Við erum málamiðlunarflokkur“
Guðmundur Ingi Kristinsson varaformaður Flokks fólksins segir fundi með Viðreisn og Samfylkingunni ganga vel. Hann segir ófrávíkjanlega kröfu flokksins að stefna að því að útrýma fátækt á Íslandi. Flokkurinn sé þó málamiðlunarflokkur.

Halla Hrund og Karl Gauti oftast strikuð út í Suðurkjördæmi
Fimm af sex oddvitum flokkanna sem náðu inn á þing í Suðurkjördæmi raða sér í efstu sæti listans yfir þá frambjóðendur sem oftast var strikað yfir í kosningum til alþingis. Oddviti flokksins sem er stærstur í kjördæminu er ekki þeirra á meðal.

„Hefur aldrei verið neitt persónulegt“
Dagur B. Eggertsson, nýkjörinn þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, líka nýkjörinn þingmaður og fráfarandi borgarfulltrúi, hafa lengst af verið í sitt hvoru liðinu. Dagur hefur verið í meirihluta í borginni en Kolbrún í minnihluta. Nú eru flokkar þeirra, Samfylking og Flokkur fólksins, hins vegar í stjórnarmyndunarviðræðum.

Hvers vegna eru allir að tala um „borgaralega“ ríkisstjórn?
Borgaraleg gildi, borgaralegir flokkar, og borgaraleg ríkisstjórn eru hugtök sem hafa verið áberandi í kosningabaráttunni og núna strax í kjölfar kosninga.

Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík
Þó nokkrir frambjóðendur til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur voru strikaðir út af lista oftar en hundrað sinnum. Guðlaugur Þór Þórðarson var sá oddviti sem oftast var strikaður út, en Jón Gnarr fékk flestar útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Hafa ekki enn lent í vandræðum í viðræðum
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins byrjuðu að funda klukkan 9.30 í morgun og funduðu til um 16 með fáum hléum. Kristrún segir markmið formannanna að ljúka viðræðum eins fljótt og þær geta. Þær hafi byrjað á því að ræða stóru málin og haldi áfram á morgun.

Ekkert skapalón til fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst segir allan gang hafa verið á því í gegnum tíðina hversu langan tíma það hefur tekið fyrir flokka að mynda ríkisstjórn eftir kosningar. Það geti tekið daga, vikur eða mánuði. Hægt sé að horfa á málefnin eða setja sér markmið.

Funda áfram á morgun
Viðræður formanna Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa gengið vel í dag, og verður fram haldið á morgun.

Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar
Glimmertoppur Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingarinnar seldist upp í tískuvöruverslun Mathildar í Kringlunni, Smáralind og í vefverslun daginn eftir Alþingiskosningar.

Telur fækkun ráðuneyta óheppilega
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefja stjórnarmyndunarviðræður í dag. Eitt af því sem rætt hefur verið um er fækkun ráðuneyta. Stjórnsýslufræðingur segir slíkt óheppilegt.

„Menn ætla sér alla leið með þetta“
Varaformaður Samfylkingarinnar verður formanninum Kristrúnu Frostadóttur innan handar í komandi stjórnarmyndunarviðræðum. Hann segir einhug í formönnum um að koma viðræðunum alla leið.

Ráðuneytum fækkað og ljóst hvar stóru verkefnin liggja
Bjartsýni ríkir meðal formanna Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar, sem strax hafa fengið viðurnefnið Valkyrjustjórnin. „Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra,“ segir Inga Sæland að loknum fundi þeirra þriggja í Alþingishúsinu.

Virðist útiloka samstarf með Samfylkingu
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir valkostina eftir kosningarnar aðeins tvo; annars vegar að mynda borgaralega ríkisstjórn til hægri, líkt og niðurstöður kosninganna séu skýrt ákall um. Hins vegar að veita nýrri ríkisstjórn kröftuga mótspyrnu í stjórnarandstöðu.

Sigríður Júlía verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verður næsti bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hún tekur við af Örnu Láru Jónsdóttur sem verið hefur bæjarstjóri frá árinu 2022 en náði á laugardaginn kjöri á Alþingi.

„Ég er bara bjartsýnn“
Þingmaður Viðreisnar segir mikilvægt að ný ríkisstjórn vinni samhent að verkefnum framundan. Komandi stjórnarmyndunarviðræður verði áskorun og flokkurinn muni ekki fara gegn eigin DNA. Verðandi þingmaður Flokks fólksins segir að flokkarnir eigi meira sameiginlegt en ólíkt og er bjartsýnn á að það náist ásættanleg lausn.

Verði að virða það sem þjóðin vilji
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur falið Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingarinnar umboð til stjórnarmyndunar. Kristrún mun boða Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, og Ingu Sæland, formann Flokks fólksins á sinn fund eftir hádegi. Niðurstaðan sé skýr og þessir þrír flokkar með sterkustu kosninguna.

Halla veitti Kristrúnu umboð til stjórnarmyndunar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar, umboð til myndunar ríkisstjórnar á fundi þeirra á Bessastöðum í morgun.

„Fullt af augljósum árekstrum þarna“
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir að ekki þurfi formlegt umboð til að fara í viðræður um stjórnarmyndun. Fullt af augljósum árekstrum megi sjá í myndun SCF-meirihluta. Í slíkum meirihluta sé lengst á milli Flokks fólksins og Viðreisnar.

Eðlilegt að Kristrún fái fyrst að spreyta sig á umboðinu
Formaður Viðreisnar hefur lagt til að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, fái umboð til stjórnarmyndunar. Inga Sæland segist treysta Kristrúnu fyrir umboðinu og Sigmundur Davíð telur eðlilegt að Kristrún fái fyrst að spreyta sig.

Dagur strikaður niður um sæti
Dagur B. Eggertsson var strikaður út eða færður til á lista 1.453 sinnum sem gerir það að verkum að hann færist niður fyrir Þórð Snæ Júlíusson í þriðja sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Örfáir Sjálfstæðismenn strikuðu út Dag og ógildu þannig atkvæði sín.

Alma Möller og Inga Sæland í mesta stuðinu
Reykjavíkurborg iðaði af tilhlökkun, kvíða, eftirvæntingu, gleði og öllum tilfinningaskalanum á kosningavökunni síðastliðið laugardagskvöld. Ljósmyndarar Vísis kíktu í nokkur kosningapartý og náðu ósvikinni stemningu á filmu.

Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu
Stefán Einar Stefánsson blaðamaður á Morgunblaðinu telur stjórnarmyndun nú snúast um líf og dauða fyrir bæði Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins og Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ljóst að möguleikarnir til stjórnarmyndunar séu nokkrir, en hann hefur trú á því að Flokkur fólksins verði til í málamiðlanir. Samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sé pólitískur ómöguleiki.

Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar
Stjórnarmyndunarviðræðum formanna Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður framhaldið í dag.