
Samráð olíufélaga

Forstjórarnir sæti ábyrgð
Ný skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að 99 prósent almennings telja að forstjórar olíufélaganna eigi að svara til saka fyrir þátt sinn í verðsamráðum.

Borgarstjóri gerðist brotlegur
Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-listans, sagði í viðtali í Íslandi í dag í gærkvöld að Þórólfur Árnason borgarstjóri hefði gerst brotlegur við lög þegar hann tók þátt í olíufélagssamráðinu, en hann eigi sér málsbætur.
Biður fólk um traust
Þórólfur Árnason borgarstjóri berst fyrir pólitískri framtíð sinni vegna aðildar hans að verðsamráði olíufélaganna. Þórólfur bað um frest til að útskýra sína hlið á málinu. Maðurinn sem Guðmundur Hörður Guðmundsson og Árni Snævarr, blaðamenn Fréttablaðsins, hittu að máli er maður í baráttuhug.

Forstjórarnir enn í felum
Forstjórar olíufélaganna eru í felum. Þeir neita enn að ræða við fjölmiðla um skýrslu Samkeppnisstofnunar um verðsamráð félaganna. Hver einasti fjölmiðill á landsvísu er án efa á höttunum eftir viðtali við þá Geir Magnússon, Kristin Björnsson, og Einar Benediktsson.

Fögur fyrirheit olíufélaganna
Skeljungur leggur áherslu á heiðarleika og sanngirni í viðskiptum og félagið styður frjálsa samkeppni og leitast við að stunda sanngjarna og siðlega samkeppni innan samkeppnislaga. Og félagið kemur ekki í veg fyrir að aðrir geti stundað frjálsa samkeppni. Þetta kemur fram í viðskiptareglum fyrirtækisins. Essó leggur líka áherslu á gott viðskiptasiðferði.

Kostaði kúabændur 190 milljónir
Kúabændur telja sig hafa greitt liðlega 190 milljónir króna umfram eðlilegar greiðslur vegna samáðs olíufélaganna á tæplega níu ára tímabili sem samráðið stóð.

Alþingi fjalli um samráðið
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður telur afar brýnt að Alþingi taki olíusamráðið til umfjöllunar og athugi hvort að endurskoða þurfi samkeppnislög. Þá segir hann samkeppnisyfirvöld ekki hafa fengið það fjármagn sem til þarf.

Bönnuð fyrirtækjastjórnun
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill athuga hvort að stjórnendum fyrirtækja, sem gerast sekir um samráð, verði bannað að koma að fyrirtækjastjórnun. Umræða utan dagskrár um samráð olíufélaganna var að ljúka á Alþingi.

Enn óvissa um Þórólf
Stuðningur við Þórólf Árnason borgarstjóra verður mældur að lokinni yfirreið hans í fjölmiðlum þar sem hann reynir að skýra sín mál. Framtíð hans í borgarstjórastólnum ræðst að hluta af þeirri niðurstöðu.

Forstjórarnir njóta enn trausts
Forstjórar olíufélaganna virðast enn njóta trausts í viðskiptalífinu, ef miðað er við þau störf sem þeir gegna þar, og gildir áfellisdómur Samkeppnisstofnunar einu.

Jóhanna vill afsögn Þórólfs
Þáttur Þórólfs Árnasonar í olíusamráðinu er óverjandi að mati Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún lýsti þeirri skoðun sinni á Alþingi í dag að honum væri ekki sætt í embætti borgarstjóra.

Bara bensín - skilar litlu
Lítið sem ekkert hefur dregið úr smásölu á bensínstöðvum Esso, Olís og Skeljungs þrátt fyrir hvatningu til fólks um að kaupa ekki annað en bensín á stöðvunum og láta aðrar vörur vera. Slík hvatning hefur gengið manna á milli í tölvupósti síðustu daga og farið víða. Er hún viðbrögð við samráði olíufélaganna.
Borgin kannar rétt til skaðabóta
Forsvarsmenn Reykjavíkurborgar hafa ákveðið að kanna hvort borgin eigi rétt á skaðabótum frá olíufélögunum vegna meints ólöglegs samráðs þeirra.

Hefur skaðað samfélagið allt
Þingmenn allra flokka eru sammála um að olíusamráðið hafi verið grafalvarlegt samfélagsvandamál. Flest eru þau sammála um að forstjórarnir þurfi að axla sína ábyrgð og segja erfitt að meta hvaða áhrif skaðabótamál munu hafa.

Þórólfur í samráði um verð til almennings
Nafn Þórólfs Árnasonar kemur 127 sinnum fyrir í niðurstöðu Samkeppnisráðs vegna verðsamráðs olíufélaganna. Samkvæmt henni virðist hann hafa tekið virkan þátt í samráði um verðlagningu á bensíni og tilboð vegna útboða stærri viðskiptavina. </font /></b />

Dagur verði borgarstjóri
Innan Reykjavíkurlistans liggur fyrir tillaga um að Dagur B. Eggertsson taki við starfi borgarstjóra. Vera Árna Þórs Sigurðssonar, forseta borgarstjórnar, í útlöndum er talin hafa tafið ákvarðanatöku flokkanna sem að listanum standa.

Vafi um hæfi til stjórnarsetu
Seta Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Einars Benediktssonar, forstjóra Olís, í stjórnum fjármálafyrirtækja kann að brjóta í bága við lög um fjármálafyrirtæki. Þeir áttu í markvissu og skipulögðu samráði í störfum sínum hjá olíufélögunum samkvæmt niðurstöðu Samkeppnisráðs.

Arftaka Þórólfs leitað
Ósennilegt er talið að frammistaða Þórólfs Árnasonar borgarstjóra í sjónvarpsþáttum Stöðvar 2 og Sjónvarpsins í gærkvöld komi í veg fyrir að hann missi starfið. Á átakafundi borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans og Þórólfs í fyrrakvöld bað Þórólfur um tækifæri til að kynna sjónarmið sín fyrir borgarbúum áður en ákvörðun yrði tekin um framhaldið, en borgarfulltrúarnir höfðu farið fram á að hann hætti störfum.

Þáttur Þórólfs flokkspólitískur
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sakar Davíð Oddsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um að gera þátt borgarstjóra í olíusamráðsmálinu að flokkspólitísku máli. Össur segir Þórólf Árnason njóta stuðnings til áframhaldandi starfa.

Framtíð Þórólfs ræðst í kvöld
Samstarf flokkanna sem standa að R-listanum er í uppnámi eftir að Vinstri - grænir lýstu því yfir að þeir bæru ekki fullt traust til Þórólfs Árnasonar borgarstjóra. Búist er við að framtíð Þórólfs í borginni ráðist á fundi borgarfulltrúa R-listans í kvöld.

Ekki í myndinni að segja af sér
Þórólfur Árnason segir það ekki í myndinni að segja af sér sem borgarstjóri, vegna aðildar hans að olíusamráði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir olíufélögin ekki hafa farið vel með borgina og vildi umræðu um málið. Því var hafnað.
Umboðsmenn olíufélaga ósáttir
Umboðsmenn fyrir olíufélögin víða úti á landi eru ósáttir vegna áskorunar til almennings um að kaupa bara bensín af Skeljungi, Olís eða Essó.
Van Gogh myrtur í Amsterdam
Hollenski kvikmyndagerðarmaðurinn Theo van Gogh, sem gerði meðal annars umdeilda mynd um islamska menningu, var stunginn og skotinn til bana í Amsterdam í gær. Eftir stuttan skotbardaga handtók lögreglan mann sem grunaður er um morðið.

Markaðshlutdeild Skeljungs jókst
Sú mynd sem Samkeppnisstofnun dregur fram í skýrslu sinni um samfellt ólögmætt samráð olíufélaganna í fjölda ára gengur ekki upp, að sögn Gests Jónssonar, lögmanns Skeljungs.

Verðsamráðið hækkaði skuldirnar
Verðsamráð olíufélaganna hefur haft áhrif á vísitölu neysluverðs og þar með á verðtryggðar skuldir landsmanna.

Olíufélögin eiga að svara til saka
Með vísan til almennra lagareglna telja olíufélögin Skeljungur, Olís og Essó að stór hluti brotanna sem samkeppnisráð hefur sektað þau samtals um 2,6 milljarða króna fyrir, sé fyrndur. Gestur Jónsson, lögmaður Skeljungs, segir að það hafi liðið of langur tími síðan brotin áttu sér stað og þar til að fyrningarfresturinn var rofinn.

Olíufélög leiti sátt við útgerðir
Olíufélögin eiga að hafa frumkvæði að því að taka upp viðræður við útgerðirnar um það hvernig hægt er að bæta fyrir það tjón sem útgerðirnar urðu fyrir vegna meints samráðs olíufélaganna. Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Tvísýnt með Þórólf
Tvísýnt er um pólitískt líf Þórólfs Árnasonar, borgarstjóra eftir að skýrsla Samkeppnisstofnunar um verðsamráð olíufélaganna kom út. Þar ber hans nafn á góma rúmlega hundrað sinnum vegna starfa hans sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Essó.
Rannsókn enn í gangi
Rannsókn Ríkislögreglustjóra á meintu samráði olíufélaganna, sem hófst fyrir tæpu ári, er enn í gangi að sögn Jóns H. Snorrasonar, yfirmanns efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.
Eskja metur stöðuna
Forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækisins Eskju á Eskifirði eru að meta stöðuna vegna meints verðsamráðs olíufélaganna á sölu olíu til fiskiskipa.