Afganistan

Bandalagsríki NATO kalla herinn heim frá Afganistan
Danir ætla að kalla herafla sinn heim frá Afganistan í skrefum fram til 11. september næstkomandi, samhliða því sem NATO og Bandaríkin hyggjast draga úr umsvifum sínum í landinu. Danir sendu fyrstu hermennina til Afganistan í janúar 2002 og hafa tekið þátt í stríðinu síðan. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að nú hefjist nýr kafli í samskiptum NATO og Afganistan.

Ætla að kalla hermenn heim fyrir ellefta september
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætlar að kalla alla bandaríska hermenn í Afganistan heim fyrir 11. september. Þá verða tuttugu ár liðin frá árásinni á Tvíburaturnanna svokölluðu, sem leiddi til innrásar Bandaríkjanna í Afganistan. Stríðið er það lengsta í sögu Bandaríkjanna.

Friðarviðræður í hættu og útlit fyrir umfangsmikla sókn Talibana
Ríkisstjórn Afganistan og öryggissveitir hennar eru undir miklu álagi vegna mikils fjölda árása Talibana í landinu. Vígamenn Talibana hafa komið sér fyrir nærri mörgum borgum landsins og hertekið mikilvægar umferðaræðir.

Berjast þarf fyrir hverju einasta barni í heiminum
117 milljónir barna í heiminum þurfa á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af árið 2021. Flest þeirra búa í Jemen eða um tæplega 11 milljón börn.

Mikil líkindi með framgöngu áströlsku sérsveitarinnar í Afganistan og kanadíska Sómalíu-hneykslinu
Fyrrverandi varnarmálaráðherra Kanada segir að eina leiðin til að uppræta kerfislæg „menningarvandamál“ og endurheimta orðspor kanadíska hersins í kjölfar svokallaðs Sómalíu-hneykslis, hafi verið að leysa upp umrædda hersveit.

Afganir og Talibanar ná sínu fyrsta samkomulagi
Samningamenn Talibana og ríkisstjórnar Afganistan hafa komist að þeirra fyrsta samkomulagi. Samkomulagið snýr að grunni áframhaldandi viðræðna og þar af leiðandi því að binda mögulega enda á átökin í landinu en einungis er um fyrsta skrefið af mörgum að ræða.

Tíu hermenn til viðbótar reknir vegna stríðsglæpa í Afganistan
Forsvarsemnn herafla Ástralíu hafa rekið minnst tíu hermenn sem sagðir eru hafa orðið vitni að morðum á óvopnuðum föngum í Afganistan. Áður hefur verið lagt til að minnst 19 hermenn verði rannsakaðir og mögulega ákærðir fyrir stríðsglæpi.

30 milljónum króna varið til mannúðaraðstoðar í Afganistan
30 milljóna króna framlag Íslands rennur í svæðissjóð samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum í Afganistan en sjóðurinn bregst við beiðnum um neyðar- eða mannúðaraðstoð

Talíbanar firra sig ábyrgð á mannskæðri árás
Minnst átta létust og 30 særðust eftir eldflaugaárás á íbúðahverfi í Kabúl. Stutt er í að fulltrúar Bandaríkjastjórnar og Talíbana haldi friðarviðræður, en Talíbanar hafna því að bara ábyrgð á árásinni.

Ástralskir hermenn drápu almenna borgara í Afganistan
Ástralskir sérsveitahermenn eru sagðir bera ábyrgð á að minnsta kosti þrjátíu og níu morðum sem framin voru í stríðinu í Afganistan á árunum 2009 til 2013.

Óttast áhrif fækkunar í herliði Bandaríkjamanna
Tilkynnt hefur verið að Bandaríkjamenn muni fækka í herliði sínu í Írak og Afganistan um 2.500 á næstu vikum.

Sagður ætla að fækka hermönnum verulega í Afganistan
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður ætla að fækka bandarískum hermönnum í Afganistan og Írak verulega, áður en hann lætur af embætti í janúar.

Skýrsla um mögulega stríðsglæpi Ástrala í Afganistan mun reynast þjóðinni þungbær
Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, mun skipa sérstakan saksóknara sem ætlað verður að sækja hermenn til saka vegna ásakana um stríðsglæpi í Afganistan.

Minnst 22 látnir eftir skotárás á Kabúl-háskóla
Stjórnvöld í landinu segja að flestir þeirra sem urðu fyrir árásinni hafi verið námsmenn og að lögregla hafi skotið árásarmennina til bana á vettvangi.

Átján létust í árás á skóla
Minnst átján létust og 57 eru særðir eftir að sjálfsvígsárás var gerð á menntasetur í miðborg Kabúl, höfuðborgar Afganistan, í dag.

Friðarviðræður Afganistan og Talíbana hafnar
Friðarviðræður milli Afganistan og Talíbana hófust í morgun í Katar eftir margra mánaða bið. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir viðræðurnar sögulegar en hann er nú á leið til Doha í Katar til að vera viðstaddur opnunarhátíðar viðræðnanna.

Tíu látnir eftir árás á bílalest varaforsetans
Tíu manns hið minnsta eru látnir eftir að sprengjuárás var gerð á bílalest afganska varaforsetans Amrullah Saleh í höfuðborginni Kabúl.

Tvö hundruð þúsund fylgdarlaus flóttabörn í Evrópu
Um 200 þúsund börn eru fylgdarlaus á flótta í Evrópu. Þau koma flest frá Afganhistan, Sýrlandi og Erítreu og dvelja flest í Þýskalandi, Grikklandi, Ítalíu og Svíþjóð.

Friðarviðræður gætu hafist á næstu dögum
Ríkisstjórn Afganistan vinnur nú að því að ljúka fangaskiptum, sem eru skilyrði friðarviðræðna, við Talibana. Nærri því 200 af síðustu 400 föngunum hefur verið sleppt. Í

Fyrsta leikstýra Afganistan skotin
Saba Sahar, leikkona og fyrsta leikstýra Afganistan, var skotin í dag. Hún var flutt á sjúkrahús eftir að þrír menn hófu skothríð á bíl hennar þegar hún var á leið í vinnu.

Utanríkisráðherrann gekk á Rússa um meint verðlaunafé í Afganistan
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er sagður hafa varað rússneskan starfsbróður sinn eindregið við því að greiða talibönum verðlaunafé fyrir að drepa bandaríska hermenn í Afganistan.

Á þriðja tug fanga lést í árás Íslamska ríkisins
Hryðjuverkasamtökin Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árás sem gerð var á fangelsi í afgönsku borginni Jalalabad þar sem að minnsta kosti 21 fangi lét lífið.

Hefur aldrei rætt við Pútín um verðlaunaféð
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur að eigin sögn ekki rætt það að Rússar hafi boðið Talibönum verðlaunafé fyrir að fella Bandaríska hermenn í Afganistan við Vladimir Pútín, forseta Rússlands.

Afganskur verktaki sagður milligöngumaður um verðlaunafé Rússa
Bandaríska leyniþjónustan og afganskir embættismenn segja að afganskur verktaki hafi um árabil verið milligöngumaður um verðlaunafé sem rússnesk herleyniþjónustan hét vígamönnum talibana til að fella bandaríska hermenn.

Fjármagnsflutningar til talibana taldir styðja ásakanir um verðlaunafé Rússa
Bandaríska leyniþjónustan hafði njósnir af umfangsmiklum fjármagnsflutningum af bankareikningi rússnesku herleyniþjónustunnar yfir á reikningi sem tengist talibönum í Afganistan.

Hátt í sextíu farendur taldir af í Tyrklandi
Hátt í sextíu farendur gætu hafa farist í bát sem sökk í stöðuvatninu Van í Tyrklandi í síðustu viku. Þetta segir innanríkisráðherra Tyrklands en Tyrkir settu af stað leit, meðal annars með þyrlum, þegar ljóst var að báturinn með fólkinu um borð hefði ekki skilað sér til hafnar þann 27. júní síðastliðinn.

Trump fékk skýrslu um rússneska verðlaunaféð í febrúar
Upplýsingar um að bandaríska leyniþjónustan teldi að Rússar hefðu heitið talibönum verðlaunum til höfuðs bandarískum hermönnum í Afganistan var að finna í daglegri skýrslu til Donalds Trump forseta seint í febrúar. Trump og Hvíta húsið hafa haldið því fram að hann hafi ekkert vitað um málið.

Rekja dauða bandarískra hermanna til verðlaunafjár Rússa
Bandaríska leyniþjónustan rekur fall nokkurra bandarískra hermanna í Afganistan til þess að rússneska herleyniþjónustan hét vígamönnum talibana fé til höfuðs þeim. Donald Trump Bandaríkjaforseti þvertekur fyrir að honum hafi verið greint frá þessu.

Buðu Talibönum verðlaun fyrir að fella bandaríska hermenn
Rússneskir útsendarar buðu vígamönnum Talibana og annarra hópa sem tengjast þeim verðlaunafé fyrir að fella bandaríska og breska hermenn í Afganistan.

Segja refsiaðgerðir Bandaríkjanna geta skaðað dómsmál og rannsóknir
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna harmar ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að refsa starfsmönnum Alþjóðasakamáladómstólsins sem rannsaka mögulega stríðsglæpi bandarískra hermanna í Afganistan. Aðgerðirnar gætu skaðað dómsmál og rannsóknir dómstólsins.