Slökkvilið

Eldur kom upp í rafmagnshlaupahjóli í hleðslu innandyra
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tíuleytið í gærmorgun vegna elds í bílskúr í Ártúnsholti. Eldurinn kom upp í rafmagnshlaupahjóli sem var í hleðslu innandyra.

Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt
Slökkviliðið í Borgarnesi var kallað út á þriðja tímanum í nótt þegar eldur hafði kviknað í hjólhýsi á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Hjólhýsið brann til kaldra kola ásamt bíl þeirra sem áttu hýsið. Ekkert tjón varð á öðrum tækjum. Fréttastofu hafa borist myndir frá nóttinni.

Hjólhýsi brann í Húsafelli
Slökkviliðið í Borgarnesi var kallað út á þriðja tímanum í nótt þegar eldur hafði kviknað í hjólhýsi á tjaldsvæðinu á Húsafelli.

Tveir féllu af sæþotu við Seltjarnarnes
Tveir menn féllu af Sæþotu við Seltjarnarnes í kvöld. Öðrum þeirra tókst að synda í land, en hinum var bjargað af slökkviliði.

„Ánægjulegt að sjá hvað fólk var yfirvegað“
Eldur kviknaði við veitingastað á jarðhæð turnsins á Höfðatorgi í dag og rýma þurfti bygginguna þar sem á annað þúsund manns starfa. Lögregla rannsakar nú eldsupptök. Slökkviliðsstjóri segir rýmingu hafa gengið afbragðsvel.

Hlupu út úr turninum með mat á diskum og rúllur í hárinu
Eldur kviknaði á jarðhæð turnsins á Höfðatorgi fyrir hádegi í dag en búið er að slökkva hann. Rýma þurfti bygginguna sem var ekkert smáræði þar sem mörg hundruð manns starfa í turninum. Allmargir biðu átekta fyrir utan Höfðatorg án þess að vita hvað þeir ættu að gera við sig þar sem þeir neyddust margir til að skilja bíllykla, húslykla og aðrar

„Það er mikilvægt að fólk hlýði þessum boðum“
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir enn ekki vitað hvað orsakaði eldinn sem kviknaði á Höfðatorgi um klukkan 11:30. Slökkvistarf hafi gengið vel og þar hafi hjálpað til hversu vel húsið er hólfað niður og hannað.

Héldu fyrst að um æfingu væri að ræða
Maður sem starfar í turninum við Höfðatorg, þar sem eldur logar nú á fyrstu hæð, segir slökkvilið hafa komið hratt á vettvang. Rýming virðist hafa gengið vel þrátt fyrir að fjöldi fólks væri í húsinu.

Eldsvoði á Höfðatorgi
Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum elds sem kviknaði á Höfðatorgi í Katrínartúni um klukkan 11:30.

Umtalsvert tjón og tveimur bjargað úr húsinu
Slökkvistarfi vegna bruna í fjölbýlishúsi á Akranesi er lokið. Slökkvilið sótti tvo í húsið með stigabíl, en þeim var þó ekki búin bráð hætta.

Eldur í fjölbýlishúsi á Akranesi
Töluverður viðbúnaður er á Akranesi vegna elds í fjölbýlishúsi. Eldurinn var á fyrstu hæð í þriggja hæða blokk á Akranesi. Enginn var heima í íbúðinni sem eldurinn var í. Tveir voru heima í öðrum íbúðum en eru ekki slasaðir. Slökkvilið vinnur nú að því að reykræsta húsið.

Starfsmennirnir útskrifaðir af sjúkrahúsi en starfsfólk harmi slegið
Framkvæmdastjóri endurvinnslufyrirtækisins Pure North segir lukka að ekki varð manntjón þegar eldur kviknaði í starfsstöð fyrirtækisins í nótt. Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir eldsvoðann en eru að hans sögn báðir útskrifaðir.

„Það er heilmikil kæling af þessu“
Hraunkæling við varnargarðana við Grindavík hefur staðið yfir síðan í nótt. Kælingin virðist hafa borið árangur að mati slökkvistjóra. Á sama tíma hefur vinna við hækkun varnargarðanna staðið yfir. Verkfræðingur hjá Verkís fagnar því minnkandi hraunrennsli.

Stofna starfshóp vegna fjölda bruna í tengslum við þakpappalagningu
Í ljósi fjölda eldsvoða í tengslum við þakframkvæmdir á síðustu árum hefur HMS hafið samstarfsverkefni um gerð verklagsleiðbeininga fyrir vinnu með eld í þakframkvæmdum.Myndaður hefur verið starfshópur til að vinna að gerð svokallaðs Rb-blaðs um verklag fyrir lagningu þakpappa og þær öryggisráðstafanir sem þarf að gera við slíka vinnu.

Tveir fluttir á sjúkrahús eftir eldsvoða hjá Pure North
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú eldsvoða sem kom upp á starfsstöð endurvinnslufyrirtækisins Pure North í Hveragerði rétt fyrir miðnætti í nótt.

Tók langan tíma að finna uppruna ammoníaklekans
Slökkvilið Vesturbyggðar vann að því í allan dag að leita að ammoníakleka í gömlu frystihúsi á Tálknafirði, nú Vesturbyggð. Tilkynnt var um mikla ammoníaklykt um klukkan 2:23 í nótt. Lekinn var að enda fundinn en slökkvilið segir að það hafi „heldur betur bæst í reynslubankann“ í dag.

Stýra hvorki né stoppa hraunflæði með vatni
Slökkvilið og verktakar hafa staðið í ströngu við að halda hraunflæði í skefjum við Svartsengi síðasta sólarhringinn.

Hætta hraunkælingu og meta stöðuna í dag
Slökkviliðsmenn í Grindavík hafa hætt að dæla vatni yfir hraunið sem teygði sig upp yfir varnargarðinn við Svartsengi. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna segir fyrsta hraunkælingaraðgerð frá Heimaeyjargosinu hafa verið tilraun en að þegar hafi verið búið að stöðva framgang hraunsins.

Hraunkælingin ekki gengið snurðulaust fyrir sig
Slökkviliðsmenn á vegum Brunavarna Suðurnesja voru í nótt að dæla vatni á hraun við varnargarðinn við Svartsengi. Kælingin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig þar sem upp komu vandræði með vatnsþrýstinginn.

Hafnarsvæðinu lokað vegna ammóníaksleka á Tálknafirði
Hafnarsvæðinu á Tálknafirði hefur verið lokað vegna ammóníaksleka í gömlu frystihúsi. Útkallið barstslökkviliðinu í Vesturbyggð um þrjú í nótt frá vegfarendum sem urðu varir við stækjuna.

Hraunkælingin gengur vel og heldur áfram í alla nótt
Slökkvilið Grindavíkur hóf fyrr í kvöld ásamt úrvalsliði viðbragðsaðila að dæla vatni yfir hraun sem hóf að teygja sig yfir varnargarðinn við Svartsengi. Um er að ræða fyrstu hraunkælingu af þessu tagi síðan í Heimaeyjargosinu.

Uppbygging komin á fullt skrið þremur dögum eftir brunann
Uppbygging er komin á fullt skrið í Kringlunni eftir að stórtjón varð í eldsvoða á laugardagskvöld. Næstum allar vörur í verslunum undir merkjum Kúltur eru ónýtar en eigandi vonar að hægt verði að opna aftur í haust eftir allsherjarniðurrif.

Slökkvilið undirbýr hraunkælingu við varnargarð við Svartsengi
Í dag fór lítil spýja úr eldgosinu við Sundhnúk yfir varnargarð við Sýlingafell. Varnargarðurinn ver orkuverið í Svartsengi. Slökkvilið Grindavíkur vinnur á vettvangi auk ýmissa verktaka á vegum almannavarna á vinnutækjum sem eru reyna að reyna að stöðva flæði yfir varnargarðinn. Ekki hefur sú aðferð verið notuð síðan í Vestmannaeyjagosinu 1973.

Kringlan lokuð til fimmtudags
Hreinsunarstarf í Kringlunni gengur vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reitum og verslunarmiðstöðinni. Stefnt er að því að opna að nýju á fimmtudag.

„Þetta var bara eins og hryðjuverk“
Altjón varð í tíu verslunum Kringlunnar í gær þegar það kviknaði í þaki hennar. Eigandi verslunarinnar sem kom verst út úr brunanum segir Kringluna hafa litið hryllilega út í nótt.

„Þetta er stórtjón fyrir okkur“
Svava Johansen eigandi og forstjóri NTC sem rekur sex verslanir í Kringlunni, segir að staðan sé alls ekki góð í verslunum hennar. Um stórtjón sé að ræða í verslun hennar Gallerí sautján.

Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag
Kringlan verður lokuð í dag og á morgun meðan unnið er að reykræstingu og þurrkun vegna eldsvoðans sem varð í verslunarmiðstöðinni í gær.

Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn
Slökkvistarfi við Kringluna lauk í nótt eftir að eldur kviknaði í þaki verslunarmiðstöðvarinnar. Slökkviliðsstjóri segir slökkvistarf hafa gengið vonum framar en tryggingarfélögin eru nú með vettvanginn.

Flúðu vettvang eftir harðan árekstur
Fólksbifreið var ekið í veg fyrir jeppa á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að jeppinn valt nokkra hringi. Ökumaður og farþegi fólksbifreiðarinnar flúðu vettvang en lögreglu tókst að handtaka þá skömmu síðar.

Myndir: Allt á floti í Kringlunni
Greint hefur verið frá því að mikið vatn sé nú á gólfum Kringlunnar vegna slökkvistarfs slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sem barðist við eld á þaki verslunarmiðstöðvarinnar í kvöld.