Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða Rússnesk stjórnvöld saka Norðmenn um „sjóræningjastarfsemi“ eftir að rússneskt skip var kyrrsett á Svalbarða. Skipið var kyrrsett að kröfu úkraínsks orkufyrirtækis sem á inni skaðabætur hjá stjórnvöldum í Kreml. Erlent 3.9.2026 09:43
NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Leiðtogar NATO og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa varað við því að hegðun Rússa verði sífellt glannalegri og heita því að bregðast við „nýju ástandi“. Sendiherrar Rússa hafa víða í Evrópu verið kallaðir til fundar vegna niðurstöðu þýskra rannsakenda að Rússar hafi staðið að fjölþátta árás í Þýskalandi í síðustu viku. Erlent 3.9.2026 06:48
Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Vladimír Pútín segir Rússa vera að sigra í Úkraínu, að ráðamenn í Kænugarði séu hryðjuverkamenn sem hann ætli ekki að ræða við og að varnir Úkraínumanna séu við það að falla saman. Í sömu ræðu sagði forsetinn þó að Rússar væru ávallt til í viðræður um „langvarandi frið“ gagnvart bæði Úkraínu og Evrópu. Erlent 2.9.2026 22:30
Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði í Úkraínu, sjöttu nóttina í röð. Að minnsta kosti tólf létu lífið í árásunum en forseti Úkraínu segir nauðsynlegt fyrir Úkraínumenn að fá fleiri flugskeyti sem hægt er að nota gegn skotflaugum. Auk skotflauga notuðust Rússar einnig við þotuknúna sjálfsprengidróna og gerðu einnig árásir á Odesa við suðurströnd landsins. Erlent 1. september 2026 10:51
Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni Herforingjastjórn Níger stóð um helgina af sér valdaránstilraun, sem virðist hafa verið nokkuð alvarleg. Rússneskir málaliðar eru sagðir hafa skipt sköpum fyrir herstjórnina og bundu þeir enda á um sólahringslangt umsátur um herstöð nærri Niamey, höfuðborg landsins. Erlent 31. ágúst 2026 14:28
„Þeir munu hengja mig“ Vladimír Pútín óttast það að binda enda á stríðið gegn Úkraínu án þess að ná fullum tökum á Donbas-svæðinu svokallaða. Hann er sagður telja að hann yrði ráðinn af dögum ef hann gerði það og þess í stað ætlar hann að leggja enn meira í stríðsreksturinn. Erlent 31. ágúst 2026 11:30
Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. Erlent 31. ágúst 2026 08:40
Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar. Erlent 29. ágúst 2026 14:29
Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Tilgangur ferðar John Ratcliffe, forstjóra CIA, til Moskvu í vikunni var að hvetja Rússa til að setjast að samningaborðinu með Úkraínumönnum. Frá þessu greinir New York Times. Erlent 28. ágúst 2026 07:54
Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Óvænt heimsókn yfirmanns Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) til Moskvu vakti nokkra athygli í vikunni. Þangað fór hann til að vara ráðamenn í Rússlandi við því að gera árás á ríki Atlantshafsbandalagsins eða jafnvel innrás í Eystrasaltsríki. Erlent 27. ágúst 2026 07:59
Yfirmaður CIA í Moskvu Bandarískri herþotu var í morgun lent á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu. Um er að ræða Boeing C-17 Globemaster III sem notuð er til þungaflutninga. Talsmaður forseta Rússlands, sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um flugvélina í morgun og að ekki stæði til að funda með bandarískum erindrekum. Flugferðin vakti því töluverða athygli og furðu. Erlent 25. ágúst 2026 14:09
Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Fyrrverandi liðskona listahópsins Pussy Riot segir að hún hafi verið þvinguð til þess að vinna fyrir rússnesku öryggislögregluna FSB um þriggja ára skeið. Henni var smyglað út úr Rússlandi fyrr í mánuðinum. Erlent 24. ágúst 2026 15:53
Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Að minnsta kosti fimm eru dánir og níutíu særðir, þar af margir alvarlega, eftir að drónaárás var gerð á verslunarmiðstöð í Kryvyi Rih í Úkraínu í dag. Að minnsta kosti tveimur rússneskum sjálfsprengidrónum var flogið á verslunarmiðstöðina þegar fjöldi manns var þar inni. Erlent 21. ágúst 2026 16:13
Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem þýsk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins. Erlent 21. ágúst 2026 15:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu í sumar og hafa lítið sótt fram en þó eitthvað og á nokkrum stöðum. Framsókn þeirra hefur að mestu verið bundin við víglínuna norður af Pokrovsk og í Dónetsk-héraði. Færa má þó rök fyrir því að þungamiðja stríðsins sé ekki lengur víglínan og að staðan þar skipti minna máli en langdrægar árásir Rússa og Úkraínumanna. Erlent 20. ágúst 2026 09:01
Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Danski þjóðarflokkurinn hefur rekið ellefu manns með tengsl við rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna úr flokknum eftir að hann reyndi að seilast til áhrifa. Sérfræðingur segir spurninguna ekki hvort kirkjan tengist rússneskum stjórnvöldum heldur hversu mikið. Erlent 20. ágúst 2026 08:45
Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. Lífið 19. ágúst 2026 14:41
Kanye treður upp í Rússlandi Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram. Tónlist 19. ágúst 2026 13:40
Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur kallað eftir því að boðað verði til forsetakosninga í landinu. Hann segir að Úkraínumenn megi ekki láta Rússa „halda lýðræðinu í gíslingu“; frelsið sé ástæða baráttu þeirra yfir höfuð. Erlent 19. ágúst 2026 06:30
Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. Innlent 19. ágúst 2026 01:01
Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins. Erlent 17. ágúst 2026 23:47
Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns Rússneskur stjórnarandstöðuþingmaður var dæmdur í rúmlega ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu í dag. Hæstiréttur Rússlands meinaði flokki hans að bjóða fram í þingkosningum í haust. Erlent 17. ágúst 2026 14:57
Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, segir mögulegt að Úkraínuher muni geta gert árás á Rússland með heimsmíðaðri skotflaug á næstu þremur til sex mánuðum. Erlent 17. ágúst 2026 08:02
Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Íslenskur blaðamaður búsettur í Kænugarði var vakinn um þrjúleytið í nótt við sprengingar. Rússar gerðu umfangsmikla eldflauga- og drónaárás á úkraínsku höfuðborgina í nótt. Erlent 16. ágúst 2026 12:16