
Heilbrigðismál

Vilja klára meðferðarkjarna áður en kjöt er flutt inn
Eðlilegast er að bíða með innflutning á fersku kjöti þangað til nýr meðferðarkjarni er tilbúinn, segir formaður Læknafélags Íslands.

Meiri eftirspurn eftir liðskiptaaðgerðum en reiknað var með
Aðgerðum hefur fjölgað en eftirspurnin eftir þeim hefur aukist töluvert umfram það.

Biðlistar enn mjög langir og biðtími óásættanlegur
Biðtími sjúklinga eftir liðskiptaaðgerðum hefur styst með þriggja ára átaki heilbrigðisyfirvalda en er enn langt umfram viðmið samkvæmt skýrslu landlæknisembættisins um árangur átaksins. Aðgerðum hefur fjölgað en eftirspurnin eftir þeim hefur einnig aukist umtalsvert.

Byrði vegna alvarlegra mannskæðra sjúkdóma tvöfaldast fyrir árið 2060
Vísindamenn áætla að árið 2060 muni 48 milljónir manna deyja á hverju ári í kjölfar alvarlegra lífsógnandi sjúkdóma.

Aðeins einstaklingsherbergi og innigarðar í nýjum meðferðarkjarna Landspítala
Nýr meðferðarkjarni við Landsspítalann sem verið er að byggja mun gjörbylta allri aðstöðu fyrir sjúklinga og starfsfólk að sögn forstjóra spítalans. Þar verða aðeins einsmannsherbergi og engir sjúkrahússgangar. Hönnunarstjóri segir mikilvægt að byrja strax að huga að nýjum Landspítala.

Tíunda hvert barn er sett á örvandi lyf
Tíunda hvert íslenskt barn á aldrinum 10-14 ára fékk ávísað örvandi lyfjum, eins og Ritalíni og Concerta í fyrra. Á síðustu tveimur árum hefur fjölgað um fjórtán prósent í hópnum og hefur hann aldrei verið stærri. Í Svíþjóð, þar sem næst mest er notað af lyfjunum, fengu nærri þrefalt færri börn ávísað lyfjunum.

Árangur lokuskiptaaðgerða svipaður hjá konum og körlum
Þrátt fyrir að konur hafi reynst vera með alvarlegri þrengsli í ósæðarloku hjartans en karlar, þá er árangur af lokuskiptaaðgerðum mjög svipaður hjá báðum kynjum og langtímalífslíkur að lokinni aðgerð sömuleiðis.

Minntust 300 ára afmælis Bjarna Pálssonar
Bjarni Pálsson var fyrstur manna til að gegna embætti landlæknis hér á landi og sáði í embættistíð sinni fræjum sem síðar áttu eftir að verða hin íslenska heilbrigðisþjónusta.

Þúsundir vita ekki að þær séu arfberar ættgengs brjóstakrabbameinsgens
Ung kona sem missti móður sína úr brjóstakrabbameini af völdum Brakkagens ákvað að láta fjarlægja brjóst sín eftir að hafa greinst með genið. Hún var tuttugu og fimm ára þegar hún fór í aðgerðina og hafði þá beðið í fimm ár. Gríðarleg fjölgun hefur orðið á slíkum aðgerðum að sögn brjóstaskurðlæknis.

Þriggja milljarða króna hjúkrunarheimili byggt á Selfossi
Íbúar í Árnessýslu hafa beðið nokkuð lengi eftir að framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi hefjist en hálfgert neyðarástand skapaðist eftir að dvalar og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri og Blesastöðum á Skeiðum var lokað fyrir nokkrum árum.

Landspítalinn greiddi 16% meira í yfirvinnu vegna manneklu
Mannekla í hópi hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum á síðasta ári olli því að laun og launatengd gjöld á spítalanum hækkuðu meira en launavísitala að sögn forstjóra spítalans. Þá réð hækkun á gengi því að lyfseðilsskyld lyf hækkuðu um tæpan fjórðung milli ára. Ársvelta spítalans hækkaði um ríflega sex milljarða króna milli 2017 og 2018.

Tvær kynslóðir af kulnun kveiktu á perunni
Persónuleg reynsla og sívaxandi vandi eru meðal ástæðna þess að hópur HR-inga hefur ákveðið að tefla fram nýstárlegri lausn við kulnun.

Matvælastofnun minnir á bann við dýraáti dýra vegna smithættu
Borgarfjarðarhreppur hefur ákveðið að fá svín til sín til að farga lífrænum úrgangi sem til fellur í bænum og éta heimilissorp í stað þess að aka því rúma 60 kílómetra til förgunar á Fljótsdalshéraði.

Sjúkrahús allra landsmanna
Ársfundur Landspítalans verður haldinn í dag.

Tæplega 600 fullorðnir bíða eftir greiningu á ADHD
Langur biðlisti er eftir þjónustu ADHD-teymis Landspítalans sem sinnir greiningu og meðferð hjá fullorðnum einstaklingum. Teymisstjóri segir þá sem séu í mestri þörf fyrir greiningu setta í forgang.

Geðheilbrigðisþjónusta aukin í fangelsum landsins
Sjúkratryggingar Íslands auglýsa eftir tilboðum vegna geðheilbrigðisþjónustu við fanga í fangelsum landsins. Umsóknarfrestur rennur út eftir ellefu daga. Forstjóri Sjúkratrygginga segir að verkefnið nái til allra fangelsa landsins og vonar að hægt verði að ganga frá samningum í byrjun sumars.

Almenningur fær ekki réttar upplýsingar um innihald matvæla
Mælingar á innihaldsefnum íslenskra matvæla hafa ekki verið framkvæmdar í áratug.

Frjálslyndasta löggjöf um þungunarrof á Norðurlöndum
Ný lög um þungunarrof á Íslandi eru þau frjálslyndustu sem nú gilda á Norðurlöndum. Dósent í stjórnmálafræði sem stutt hefur frumvarpið segir athyglisvert hve skýr munur var á afstöðu andstæðinga frumvarpsins eftir kyni.

Greinilegur kynslóðamunur á afstöðu til þungunarrofs
Ný lög um þungunarrof voru samþykkt á Alþingi í gær. Frá og með september hafa konur fullt ákvörðunarvald um hvort þær ala barn fram að lokum 22. viku meðgöngu.

Offita óléttra kvenna vaxandi vandamál
Fjöldi þungaðra kvenna sem greinast með meðgöngusykursýki hefur þrefaldast á fjórum árum. Á sama tíma hefur fjölgað mikið í hópi barnshafandi kvenna í mikilli offitu. Yfirljósmóðir á Landspítalanum hefur miklar áhyggjur af þróuninni og segir mikilvægt að grípa inn í áður en konur verði ófrískar.

Aldrei fleiri lyfjatengd andlát
Þrjátíu og níu manns dóu vegna lyfjaeitrunar í fyrra, fleiri en nokkru sinni fyrr á einu ári. Flestir létu lífið vegna morfínskyldra lyfja og eru vísbendingar um að meira sé flutt ólöglega til landsins nú en áður. Þróunin er stórhættuleg að mati lyfjateymis embættis landlæknis.

Fæðingalæknir segir fyrirburamyndir Ingu ósmekklegar og teknar úr samhengi
Inga Sæland formaður Flokks fólksins segist vonast til þess að sendingin fresti framgangi þungunarrofsfrumvarps heilbrigðisráðherra.

Gamlingjar ekki eins spenntir fyrir getnaðarvarnarpillu og yngri karlar
Rúmur helmingur karlmanna jákvæðir gagnvart getnaðarvarnarpillu.

Segir Landspítalann hafa tekið við slæmu búi eftir einkarekstur
Pétur H. Hannesson, yfirlæknir á röntgendeild Landspítala, segir það af og frá að ástæður þess að biðtími eftir þjónustu við krabbameinsleit hafi lengst séu þær að þjónustan hafi flust til Landspítala.

Segir umræðu um þungunarrof á Alþingi engum til sóma
Fyrrverandi forsætisráðherra leggur til að fresta afgreiðslu frumvarpsins.

Lágmarksaldur í ófrjósemisaðgerð lækkar
Lágmarksaldur til að fara í ófrjósemisaðgerð var lækkaður úr 25 árum í 18 ár með lögum sem samþykkt voru á Alþingi í gær. Fjöldi karla sem fara í aðgerðina hefur meira en tvöfaldast frá áramótum en læknir segir þá flesta komna yfir þrítugt.

Aðeins fimm daga bið eftir greiningu hjá Krabbameinsfélaginu
Aðeins fimm daga tekur að lesa úr röntgenmyndum í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir það í takt við evrópskar leiðbeiningar þar um.

Bein útsending: Hart tekist á um þungunarrof á Alþingi
Óli Björn Kárason, bað um að þriðju umræðu um þungunarrofsfrumvarpið yrði frestað.

Frumvarp um þungunarrof gæti orðið að lögum í dag
Frumvarp heilbrigðisráðherra um þungunarrof gæti orðið að lögum í dag, en með frumvarpinu verður konum heimilt að undirgangast þungunarrof allt fram á 22. viku meðgöngu.

Áfram fylgst náið með brjóstapúðum
Ekki er talin þörf á því að grípa til sérstakra aðgerða vegna kvenna sem eru með brjóstapúða sem tengdir hafa verið við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein. Enginn dæmi eru um að kona hafi greinst með eitilfrumukrabbamein tengt brjóstapúðum hér á landi.