Landhelgisgæslan
1 2 3 4 5 6 … 37 ›
Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Rétt fyrir klukkan átta í morgun bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð um eld um borð í litlum fiskibát um tuttugu sjómílum norður af Flateyri. Einn var um borð í bátnum en hann var óhultur þegar aðstoð barst. Innlent 11.8.2026 16:32
Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins. Innlent 10.8.2026 12:55
TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Landhelgisgæslan hefur hafið eftirgrennslan um lítinn skemmtibát, sem siglt var út á Sundin í morgun, þar sem áhöfn hans hefur ekki látið vita af sér. Ekkert bendir til þess að báturinn sé sokkinn en eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF hefur verið ræst út til að svipast um eftir bátnum. Innlent 10.8.2026 11:41
Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Björgunarfélag Árborgar var kallað út í gær um klukkan 21 vegna slasaðs einstaklings við Háafoss. Björgunarfélagið segir björgun hafa reynst mjög krefjandi vegna böruburðar. Ekkert símasamband er þar sem maðurinn fannst. Innlent 10.8.2026 10:42
Sækja slasaðan mann að Háafossi Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur nú í átt að Háafossi, innst í Þjórsárdal, þar sem ferðamaður slasaðist. Innlent 9.8.2026 22:51
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið á miðhálendinu. Innlent 9.8.2026 11:05
Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur nú til móts við sjúkrabíl sem flytur slasaðan mann eftir hestaslys sem varð austur við Kirkjubæjarklaustur. Innlent 8.8.2026 20:09
Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Flugsveit belgíska hersins kemur til landsins í lok vikunnar til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Þotugildra verður sett upp á Akureyrarflugvelli. Innlent 7.8.2026 06:45
Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tvöfalda þyrfti flota Landhelgisgæslunnar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera að mati yfirflugsstjóra gæslunnar. Yfirvöld hafi verið jákvæð fyrir slíkri stækkun en nú reyni á efndir. Mikil aukning varð á útköllum hjá gæslunni í sumar,. Innlent 6.8.2026 22:01
Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landhelgisgæslan heiðruðu Ómar Ragnarsson í dag með dagsferð á Sauðárflugvöll á hálendi Austurlands. Ómar kom flugvellinum á kortið í baráttu sinni fyrir náttúruvernd á Austurlandi og gegn Kárahnjúkavirkjun. Ómar segir brýnt að viðhalda flugbrautum þar og auka vitneskju um völlinn, öryggisins vegna. Innlent 5.8.2026 19:29
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss nærri Fosshóli í Þingeyjasveit. Ökumaðurinn ók fram af fjögurra metra hengju. Innlent 5.8.2026 12:44
Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Skipverji á Bandero segir aðstæður um borð ómannsæmandi. Lítið hafi verið um mat síðustu daga og áhafnarmeðlimir neyðst til að ganga örna sinna í vaska um borð. Aðstoðarlögreglustjóri segir að öllum skipverjum verði gert kleift að ganga frá borði. Innlent 4.8.2026 19:33
„Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Forstjóri Útlendingastofnunar segir að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann áhafnar Bandero, sem hefur ekki farið lönd né strönd síðan á fimmtudag, muni liggja fyrir í þessari viku. Andmælaréttur skipverja er liðinn og er nú unnið að því að ákveða örlög þeirra. Innlent 4.8.2026 12:13
Knapi datt af baki Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna slyss á hestbaki. Innlent 2.8.2026 20:13
Slasaðist á fæti uppi á hálendi Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. Innlent 1.8.2026 13:40
Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.8.2026 11:23
Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna manns sem hafði slasast alvarlega á fæti eftir fall í Vestmannaeyjum. Innlent 1.8.2026 08:15
Paul Watson afar ánægður með handtökuna Paul Watson fer ekki í grafgötur með að helsti tilgangur aðgerða Bandero er að ná athygli heimsins. Myndavélarnar eru hans helsta vopn og það að Gæslan hafi ráðist til uppgöngu gráir fyrir járnum skaffaði honum myndefnið sem hann þurfti. Innlent 31.7.2026 16:57
Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir aðgerðir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi sem beindust að Bandero, sem hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi, ekki snúast um afstöðu fólks til hvalveiða, heldur um öryggi þeirra sem sækja sjóinn við Íslandsstrendur. Innlent 31.7.2026 14:39
Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Skipstjóri Bandero neitaði fyrirmælum Landhelgisgæslunnar um að stöðva skipið, svara í talstöð og senda frá sér staðsetningarmerki og sendi gæslan því varðskipið Freyju og þyrlu á vettvang. Á mögnuðu myndbandi sem var tekið um borð í Bandero má sjá þegar smábátar elta skipið uppi og sérsveitarmenn klifra um borð. Innlent 31.7.2026 12:18
Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ „Þarna unnu menn eins og einn maður,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, um aðgerð gæslunnar í samstarfi við sérsveitina við það að taka yfir skipið Bandero eftir að það hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi. Að hans sögn gekk aðgerðin, sem var erfið, skínandi vel. Innlent 31.7.2026 12:09
Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Landhelgisgæslan fylgdi Bandero, skipi aðgerðarsinna Paul Watson-samtakanna, til Sundahafnar í nótt. Vísir fylgist með gangi mála í beinni útsendingu og í vakt hér að neðan. Innlent 31.7.2026 08:41
Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Skipstjóri þess var handtekinn. Innlent 30.7.2026 23:32
Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Paul Watson hvalaverndunarsinni hvers skip, Bandero, stefndi í dag að hvalveiðiskipinu Hval 9 þannig að Landhelgisgæslan greip inn í, segir að honum sé sama þó áhöfn skips hans yrði handtekin og réttað yfir þeim hér á landi. Slíkt myndi einungis auka athyglina á málefninu sem hann berst fyrir. Innlent 30.7.2026 22:43
Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Bandero, skipið sem hefur undanfarnar vikur verið undan lögsögu Íslands og er í eigu Paul Watson-samtakanna, er nú að reyna að stöðva hvalveiðiskipið Hval 9. Innlent 30.7.2026 18:18
Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Lögreglan, sjúkraflutningamenn og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í dreifbýli Hellu vegna vinnuslyss. Innlent 28.7.2026 12:50
Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Áfram siglir áhöfn hvalavina og aðgerðarsinna um borð í Bandero um utan tólf mílna lögsögunni og reynir að hafa uppi á hvalveiðiskipum Hvals hf. Skipverjar saka Kristján Loftsson um að setja þrýsting á Landhelgisgæsluna að hún beiti sér af óþörfu. Innlent 28.7.2026 12:01
Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Landhelgisgæslan flaug eftirlitsflug nærri Bandero, skipi í eigu Paul Watson-samtakanna, og kallaði til skipsins. Ekkert svar kom frá skipverjum. Innlent 27.7.2026 23:40
Brotlenti í djúpu gili Aðstæður voru erfiðar þegar maður sem hrapaði í svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag var sóttur af Landhelgisgæslunni. Hann hafði brotlent í djúpu gili. Hann var með meðvitund þegar hann fannst. Innlent 27.7.2026 16:28
Flugmaðurinn er fundinn Björgunarsveitir og þyrla landhelgisgæslunnar voru kallaðar út til leitar og björgunar eftir að flugmanni svifvængs hlekktist á og hann varð viðskila við samferðamenn sunnan Mýrdalsjökuls. Hann hefur nú verið fluttur á Landspítalann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku. Innlent 27.7.2026 12:57