Landhelgisgæslan

Fréttamynd

Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiski­bát

Rétt fyrir klukkan átta í morgun bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð um eld um borð í litlum fiskibát um tuttugu sjómílum norður af Flateyri. Einn var um borð í bátnum en hann var óhultur þegar aðstoð barst.

Innlent
Fréttamynd

Báturinn fannst eftir nokkuð um­fangs­mikla leit

Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins.

Innlent
Fréttamynd

TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum

Landhelgisgæslan hefur hafið eftirgrennslan um lítinn skemmtibát, sem siglt var út á Sundin í morgun, þar sem áhöfn hans hefur ekki látið vita af sér. Ekkert bendir til þess að báturinn sé sokkinn en eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF hefur verið ræst út til að svipast um eftir bátnum.

Innlent
Fréttamynd

Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar

Björgunarfélag Árborgar var kallað út í gær um klukkan 21 vegna slasaðs einstaklings við Háafoss. Björgunarfélagið segir björgun hafa reynst mjög krefjandi vegna böruburðar. Ekkert símasamband er þar sem maðurinn fannst. 

Innlent
Fréttamynd

Vilja hefja einn stærsta flug­völl landsins til vegs og virðingar

Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landhelgisgæslan heiðruðu Ómar Ragnarsson í dag með dagsferð á Sauðárflugvöll á hálendi Austurlands. Ómar kom flugvellinum á kortið í baráttu sinni fyrir náttúruvernd á Austurlandi og gegn Kárahnjúkavirkjun. Ómar segir brýnt að viðhalda flugbrautum þar og auka vitneskju um völlinn, öryggisins vegna.

Innlent
Fréttamynd

Skip­verjar gangi örna sinna í vaska og lög­maðurinn fullur

Skipverji á Bandero segir aðstæður um borð ómannsæmandi. Lítið hafi verið um mat síðustu daga og áhafnarmeðlimir neyðst til að ganga örna sinna í vaska um borð. Aðstoðarlögreglustjóri segir að öllum skipverjum verði gert kleift að ganga frá borði.

Innlent
Fréttamynd

„Ekki skemmti­legt fyrir starfs­fólk“

Forstjóri Útlendingastofnunar segir að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann áhafnar Bandero, sem hefur ekki farið lönd né strönd síðan á fimmtudag, muni liggja fyrir í þessari viku. Andmælaréttur skipverja er liðinn og er nú unnið að því að ákveða örlög þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Knapi datt af baki

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna slyss á hestbaki.

Innlent
Fréttamynd

Slasaðist á fæti uppi á há­lendi

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­heyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæslu­varð­hald

Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Paul Watson afar á­nægður með hand­tökuna

Paul Watson fer ekki í grafgötur með að helsti tilgangur aðgerða Bandero er að ná athygli heimsins. Myndavélarnar eru hans helsta vopn og það að Gæslan hafi ráðist til uppgöngu gráir fyrir járnum skaffaði honum myndefnið sem hann þurfti.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei liðið að öryggi sjó­manna sé ógnað

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir aðgerðir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi sem beindust að Bandero, sem hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi, ekki snúast um afstöðu fólks til hvalveiða, heldur um öryggi þeirra sem sækja sjóinn við Íslandsstrendur.

Innlent
Fréttamynd

Myndi glaður sjá réttar­höld yfir skip­verjum Bandero

Paul Watson hvalaverndunarsinni hvers skip, Bandero, stefndi í dag að hvalveiðiskipinu Hval 9 þannig að Landhelgisgæslan greip inn í, segir að honum sé sama þó áhöfn skips hans yrði handtekin og réttað yfir þeim hér á landi. Slíkt myndi einungis auka athyglina á málefninu sem hann berst fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Bandero hrellir Hval 9

Bandero, skipið sem hefur undanfarnar vikur verið undan lögsögu Íslands og er í eigu Paul Watson-samtakanna, er nú að reyna að stöðva hvalveiðiskipið Hval 9.

Innlent
Fréttamynd

Saka Kristján um að beita Land­helgis­gæslunni fyrir sig

Áfram siglir áhöfn hvalavina og aðgerðarsinna um borð í Bandero um utan tólf mílna lögsögunni og reynir að hafa uppi á hvalveiðiskipum Hvals hf. Skipverjar saka Kristján Loftsson um að setja þrýsting á Landhelgisgæsluna að hún beiti sér af óþörfu.

Innlent
Fréttamynd

Brot­lenti í djúpu gili

Aðstæður voru erfiðar þegar maður sem hrapaði í svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag var sóttur af Landhelgisgæslunni. Hann hafði brotlent í djúpu gili. Hann var með meðvitund þegar hann fannst.

Innlent
Fréttamynd

Flug­maðurinn er fundinn

Björgunarsveitir og þyrla landhelgisgæslunnar voru kallaðar út til leitar og björgunar eftir að flugmanni svifvængs hlekktist á og hann varð viðskila við samferðamenn sunnan Mýrdalsjökuls. Hann hefur nú verið fluttur á Landspítalann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku.

Innlent