Icelandair

Fréttamynd

Þögull sem gröfin

Ríkissáttasemjari er þögull sem gröfinn um framhaldið í dag þegar fulltrúar flugmanna og Icelandair funda vegna kjarasamningsviðræðna. Hann vill ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri Ís­lands­sjóða segir flug­menn taka Icelandair „í gíslingu“

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins.

Innherji
Fréttamynd

Flugöryggismál að Reykja­vík nýtist sem varavöllur Airbus

Icelandair hefur beðið í nærri tvö ár eftir því að fá samþykki flugmálayfirvalda fyrir því að nota Reykjavík sem varavöll fyrir nýjar Airbus-þotur félagsins. Í síðustu viku neyddist félagið til að skrá Glasgow sem varavöll fyrir Airbus sem þýddi að þotan þurfti að bera fjórum tonnum meira af eldsneyti yfir hafið.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair og flug­menn komnir í fjölmiðla­bann

Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Ríkissáttasemjari segir enn langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.

Innlent
Fréttamynd

Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga

„Stjórnin ber fullt traust til Boga og stjórnenda,“ segir Guðmundur Hafsteinsson, formaður stjórnar Icelandair, þegar hann er spurður út í frétt Viðskiptablaðsins þar sem haft er eftir heimildarmönnum að stjórn Icelandair standi þétt að baki Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Arf­taki 757 aftur á teikni­borði Boeing

Boeing-flugvélaframleiðandinn hefur að nýju hafið undirbúning að smíði nýrrar tegundar farþegaþotu sem ætlað er að brúa bilið í stærðarflokki flugvéla á milli 737 MAX og 787 Dreamliner. Miðað við lýsingar virðist Boeing stefna að smíði flugvélar sem svipa mun til 757-þotunnar í stærð, útliti og flugdrægi.

Erlent
Fréttamynd

Hafni hundruðum þúsunda fyrir frí­daga í fyrsta sinn frá 2014

Icelandair hafnar því að aflýsingar félagsins megi rekja til vanmannaðrar eða ófullnægjandi álagsprófaðrar flugáætlunar. Félagið segir vandann stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem hafi skyndilega hætt að selja frídaga. Félagið hafi keypt 187 frídaga í maí í fyrra, en nú hafni flugmenn hundruðum þúsunda fyrir frídaga sem hafi ekki gerst síðan 2014, þegar flugmenn voru í kjaradeilum við félagið. 

Innlent
Fréttamynd

Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir aflýsingar Icelandair á áætlunarferðum sýna að flugáætlun félagsins standist ekki álagspróf með tilliti til mönnunar. Það sé á ábyrgð Icelandair að tryggja að áætlunin sé mönnuð með sjálfbærum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Enn öðru flugi af­lýst

Vegna flugvélaskorts aflýsti Icelandair einu flugi til viðbótar þeim sjö sem aflýst var í gær og í dag. Um er að ræða flug til Stokkhólms sem átti að taka á loft klukkan 11 í dag.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair hafði betur gegn ósáttum að­dáanda Oasis

Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað.

Neytendur
Fréttamynd

Reynir á þolmörk flug­manna og svig­rúm Icelandair

Kjaradeila Icelandair og flugmanna snýst nú um það hversu langt flugmenn eigi að ganga til að liðka fyrir rekstri félagsins. Þeir gáfu verulega eftir í endurreisn Icelandair árið 2020, en félagið sækist nú eftir auknu svigrúmi til að bregðast við taprekstri, harðnandi samkeppni og breyttu flugrekstrarumhverfi. Fundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í dag snerist meðal annars um flugtíma, hvíld, vaktir og frí; veigamikil atriði í deilunni sem ráða miklu um bæði vinnuskilyrði flugmanna og framleiðni Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­menn gleyma því að þeir séu í flughermi

Flug í flughermum er orðið svo raunverulegt að flugmenn gleyma því stundum að þeir séu í sýndarveruleika, segir yfirmaður þjálfunar Icelandair. Þar fagna menn því í dag að hafa náð hundrað þúsund flugtímum í flughermum.

Innlent
Fréttamynd

Jóhannes Einars­son verk­fræðingur látinn

Jóhannes Einarsson vélaverkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Loftleiðum, Flugleiðum og Cargolux er látinn, 96 ára að aldri. Jóhannes var í hópi stjórnenda Loftleiða á mestu velgengnisárum félagsins og hefur verið nefndur faðir Cargolux vegna þess lykilhlutverks sem hann gegndi í stofnun og uppgangi þess félags.

Innlent
Fréttamynd

Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loft­leiðum

Flugáhugamenn hrukku margir í kút þegar Icelandair tilkynnti fyrir helgi að félagið myndi um næstu áramót hætta rekstri einnar ástsælustu flugvélar Íslendinga, Boeing 757-þotunnar. Flugnördar þurfa þó ekki að örvænta því líklegt er að þotan fái framhaldslíf hjá systurfélaginu Loftleiðum.

Innlent
Fréttamynd

Á­vinningur búsins vegna starf­semi Play á Möltu gæti numið hundruðum milljóna

Forgangskröfuhafar Play hafa samþykkt samkomulag sem þrotabúið hefur gert við skuldabréfaeigendur, sem halda utan um flugrekstrarleyfi á Möltu, en samkvæmt því gæti hlutdeild búsins af mögulegum endurheimtum þegar starfsemin þar kemst á flug numið um tíu prósent ef ávinningurinn reynist yfir tveir milljarðar. Frekari fjárhæðir falla í skaut þrotabúsins ef það tekst að innheimta fjármuni umfram höfuðstól skuldabréfaútboðsins.

Innherji
Fréttamynd

Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð

Ekki tókst í tæka tíð að manna flug Icelandair til Rómar í fyrramálið og hefur því verið frestað um hið minnsta einn og hálfan tíma. Icelandair hefur í síðustu vikum átt í vandræðum við að manna flugvélar.

Innlent
Fréttamynd

Varar við „al­var­legri stöðu“ sem geti haft ófyrir­sjáan­legar af­leiðingar fyrir fé­lagið

Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur.

Innherji
Fréttamynd

Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós

Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum.

Neytendur
Fréttamynd

Icelandair enn og aftur í vand­ræðum

Icelandair aflýsti í kvöld fraktflugi frá Keflavíkurflugvelli til Liege í Belgíu vegna skorts á flugmönnum. Boeing 767 fraktþotan átti að fara í loftið klukkan 20:20 í kvöld. Þetta er í þriðja sinn á rúmri viku sem ferð flugfélagsins er aflýst vegna áhafnarskorts og þá hefur öðru áætlunarflugi verið seinkað af sömu ástæðu.

Innlent
Fréttamynd

Teknar úr um­ferð fyrr en til stóð

Icelandair ætlar að hætta rekstri á Boeing 757-þotum sínum fyrr en áætlað var. Er þetta gert í ljósi yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum og snarpra verðhækkana á eldsneyti.

Innlent
Fréttamynd

Þarf Icelandair að skipta um nafn?

Undanfarnar vikur hafa birst fréttir af áhuga stjórnenda Icelandair á kaupum á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, maltnesku félagi með flugrekstrarleyfi. Ekki er um neinar getgátur að ræða. Icelandair hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis til kauphallar og undirritað viljayfirlýsingu (LOI) um verkefnið. Jafnframt hefur forstjóri félagsins nú kallað til fundar með flugmönnum og flugstjórum, reyndar í miðri kjaradeilu, til þess meðal annars að ræða þessi áform.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Icelandair ætla að færa störf frá Ís­landi

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir fyrirhuguð áform Icelandair um að kaupa nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. Hann segir áform flugfélagsins vera að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga.

Innlent
Fréttamynd

Loft­leiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu

Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur tekið að sér að fljúga áætlunarflug á lúxusþotum yfir Atlantshafið í sumar. Félagið mun einnig á sömu þotum flytja knattspyrnulandslið nokkurra þjóða á heimsmeistarakeppnina.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­lýsing Icelandair kom flatt upp á flug­menn

Yfirlýsing Icelandair þar sem fram kemur að félagið gruni flugstjóra um að hafa ráðist í óformlegar aðgerðir í kjarabaráttu kom flatt upp á Jón Þór Þorvaldsson formann Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann segir félagið hvergi bangið og munu mæta til leiks til fundar með forsvarsmönnum félagsins á morgun án gremju.

Viðskipti innlent