Fréttir af flugi
1 2 3 4 5 6 7 … 144 ›
Gengi Play tók dýfu Gengi flugfélagsins Play lækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni í dag, um 5,52 prósent. Gengið hefur nú lækkað um rúm 78,08 prósent það sem af er ári. Viðskipti innlent 2.9.2024 16:55
Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan. Innlent 1.9.2024 23:00
Þegar við tölum um íslenskt flugævintýri þá er það í dag „Miðað við stærð þjóðar þá erum við með mjög marga flugmenn á Íslandi og gríðarlega mikinn flugrekstur,“ segir Sigrún Bender, flugstjóri hjá Icelandair, í viðtali í þáttaröðinni Flugþjóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 næstkomandi mánudagskvöld 2. september. Innlent 31.8.2024 12:44
Flýgur þyrlunni á myndbandinu og braut engar reglur Þyrluflugmaður segir að drónaflugmenn hafi verið að fljúga drónum sínum alltof hátt við gosstöðvarnar síðustu daga, og það skapi hættu fyrir þyrlur. Drónaflugmaður segir að það séu pottþétt einhverjir drónaflugmenn sem fljúgi of hátt, en það sé aðallega almenningur með dróna. Innlent 29.8.2024 11:09
Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Hollenska fyrirtækið Elysian hefur kynnt áform um smíði 90 sæta rafmagnsflugvélar sem þjóna á allt að 800 kílómetra löngum flugleiðum. Fyrirtækið stefnir að því að hún verði komin í farþegaflug árið 2033, eftir níu ár. Viðskipti erlent 28.8.2024 10:40
Play fjölgar áfangastöðum í Portúgal Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarflugi til borgarinnar Faro í Portúgal. Fyrsta flugið verður laugardaginn 12. apríl, í tæka tíð fyrir páska á næsta ári. Flogið verður tvisvar í viku á laugardögum og miðvikudögum til 29. október. Viðskipti innlent 28.8.2024 10:09
Fljúga átta sinnum í viku frá Reykjavík til Hornafjarðar Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug til Hornafjarðar. Um er að ræða samning til þriggja ára þar sem flogið er átta sinnum í viku á milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 28.8.2024 10:00
Þyrlur í lágflugi við eldgosið Þyrlur með ferðamenn hafa verið á flugi við eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni síðan byrjaði að gjósa á fimmtudagskvöldið. Sumar hafa hætt sér ansi nálægt gígnum. Innlent 27.8.2024 15:22
Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Breska ríkisstjórnin hefur samþykkt áætlun sem felur í sér að farþegum um London City-flugvöll fjölgar úr 6,5 milljónum á ári upp í níu milljónir farþega á ári fyrir árið 2031. Þetta gerist með því að fleiri flugferðir verða leyfðar snemma á morgnana virka daga vikunnar. Ósk um rýmkun opnunartíma vallarins á laugardögum var hins vegar hafnað. Viðskipti erlent 27.8.2024 11:11
„Þetta er eitthvað sem flugliðar vilja ekki viðurkenna“ „Mér líður eins og það sé meira hlustað á karla heldur en okkur. Til dæmis þegar við erum að segja þeim að gera eitthvað, eða biðja þau um að setjast niður eða eitthvað, þá hlusta þau meira á strákana heldur en okkur, taka þeim meira alvarlega,“ segir 26 ára íslensk kona sem starfar sem flugfreyja. Lífið 24.8.2024 11:01
Breytt upplifun farþega á leið um Akureyrarflugvöll Farþegar á leið um Akureyrarflugvöll voru í fyrsta sinn í dag innritaðir í flug í gegnum nýjan innritunarsal í flugstöðinni, bæði innanlands- og millilandafarþegar. Þetta er einn áfanginn í breytingum sem fylgja nýrri viðbyggingu fyrir millilandaflugið. Innlent 22.8.2024 21:17
Fá 34 milljóna sekt vegna vanskila á losunarheimildum Umhverfisstofnun hefur lagt rúmlega 34 milljóna króna stjórnvaldssekt á flugfélagið Nomadic Aviation Group LLC vegna vanrækslu flugrekandans á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2022. Viðskipti innlent 21.8.2024 20:13
Vala Kristín hætti sér á tvöfalt stefnumót í flugi Leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir fóru í flug með sínum heittelskuðu, Andri Jóhannssyn þyrluflugmanni og Hilmi Snæ Guðnasyni leikara í blíðviðrinu í gær. Lífið 21.8.2024 14:09
Fljúga til Álaborgar næsta sumar Flugfélagið Play mun hefja áætlunarflug til Álaborgar í júní næsta sumar. Þetta er þriðja borgin sem Play hefur flugferðir til en fyrir er flogið til Kaupmannahafnar allan ársins hring og til Billundar yfir sumarið. Viðskipti innlent 21.8.2024 10:32
Hundrað ár frá fyrsta flugi milli Íslands og Ameríku Eitthundrað ár eru um þessar mundir frá því flugvélum var í fyrsta sinn flogið milli Íslands og Ameríku. Flugvélarnar sem það gerðu voru tvær og hafa þær báðar varðveist á flugsöfnum í Bandaríkjunum. Innlent 18.8.2024 08:48
Rauðu örvarnar koma síðdegis til Keflavíkur Listflugsveit breska flughersins, Rauðu örvarnar, er væntanleg til Keflavíkurflugvallar síðdegis. Utanríkisráðuneytið segir núna að vegna flugskilyrða frá Bretlandi sé mjög ólíklegt að um verði að ræða eiginlega flugsýningu við komu sveitarinnar til Íslands. Innlent 17.8.2024 12:52
Randy er litríkasti gaurinn í hinni geggjuðu Pittsburgh Randyland er án efa litríkasta kennileiti Pittsburgh, sumir segja í öllum Bandaríkjunum. Það er heimili listamannsins og sérvitringsins Randy Gilson og þykir svo sérstakt að það er orðið eitt vinsælasta aðdráttarafl borgarinnar. Lífið 17.8.2024 09:09
Flugfélagið Ernir svipt flugrekstrarleyfi Samgöngustofa hefur svipt Flugfélagið Erni flugrekstrarleyfi sínu. Stjórnarformaður segir að það hafi staðið til í nokkurn tíma að leggja niður flugstarfsemi félagsins og færa hana inn í Mýflug. Síðarnefnda flugfélagið á meirihluta í Erni ásamt Jóhannesi Kristinssyni fjárfesti. Innlent 16.8.2024 16:22
Hlé vegna gagna frá ChatGPT Gera þurfti stutt hlé á aðalmeðferð í þætti Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að verjandi Péturs Jökuls lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin voru fengin af gervigreindarsíðunni ChatGPT. Innlent 16.8.2024 09:34
Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Rauðu örvarnar, listflugsveit breska flughersins, hefur viðdvöl á Íslandi um helgina á leið sinni vestur yfir Atlantshaf. Áformað er að sveitin leiki listir sínar yfir Keflavíkurflugvelli síðdegis á laugardag, þótt flugsýning hérlendis sé ekki á formlegri dagskrá sveitarinnar. Innlent 15.8.2024 23:25
Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Starfsmaður Marel lést í flugslysi í Brasilíu á föstudag. Starfsmaðurinn var frá Brasilíu og var búsettur þar. Það staðfestir Kristinn Daniel Lee Gilsdorf upplýsingafulltrúi Marel í samtali við fréttastofu. Erlent 12.8.2024 13:28
Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Íslenskir þyrluflugmenn hafa áhyggjur af öryggi og eftirliti með erlendum ferðaþjónustufyrirtækjum sem sinna þyrluflugi hérlendis. Nokkuð er um að öryggisáætlunum sé ábótavant, bæði hjá íslenskum og erlendum fyrirtækjum að sögn sérfræðings hjá Ferðamálastofu. Innlent 11.8.2024 15:08
Sextíu og einn látinn eftir flugslysið í Brasilíu Allir sem voru um borð í flugvélinni sem brotlenti í Vinhedo í Sau Paulo héraði í Brasilíu eru látnir. Mildi þykir að enginn hafi slasast sem var á jörðinni, en vélin brotlenti í íbúabyggð þar sem aðeins eitt hús varð fyrir skemmdum. Erlent 10.8.2024 12:17
Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Flugvél með 62 innanborðs, 58 farþegum og fjórum starfsmönnum, brotlenti í dag í Sao Paulo í Brasilíu. Á myndbandi sem er í dreifingu má sjá hvernig vélin hringsnerist á hraðri leið til jarðar. Erlent 9.8.2024 18:16
Blöskrar græðgi á kostnað gæða Flugrekstrarstjóri HeliAir Iceland segir atvik þar sem þyrla lenti á malarbílastæði og olli að líkindum skemmdum á bíl dæmi um það þegar menn hugsi aðeins um gróða en ekki gæði. Innlent 8.8.2024 22:02
Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Sverrir Tryggvason varð fyrir því óláni í vikunni að flugmaður þyrlu ákvað að lenda á malarplani á Suðurnesjum þar sem bílnum hans var lagt. Hann segir grjótkast undan þyrlunni hafa valdið miklum skemmdum á bílnum, en fyrirtækið á bak við þyrluna neitar að borga tjónið, og segir ekki ljóst hvort skemmdirnar séu vegna þyrlunnar. Innlent 8.8.2024 15:33
„Komin í hóp fullorðnu félaganna“ Viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play á aðalmarkaði í Kauphöll hófust í morgun. Forstjóri félagsins segir skráningu þess á aðalmarkað vera þroskamerki fyrir félagið. Breytingar verða gerðar á leiðakerfi félagsins í haust sem fela meðal annars í sér fækkun ferða til Ameríku. Viðskipti innlent 8.8.2024 14:20
Play mætt á aðalmarkað Kauphallar Í dag hefjast viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play á aðalmarkaði í Kauphöll, Nasdaq Iceland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöll en Fly Play hf. er 25. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nastaq Nordic í ár að því er segir í tilkynningunni. Viðskipti innlent 8.8.2024 10:22
Icelandair flutti ellefu prósent færri ferðamenn til landsins í júlí Þrátt fyrir að Icelandair hafi flutt metfjölda farþega í júlí, umsvifamesti mánuður félagsins að jafnaði á hverju ári, vegna aukningar í tengifarþegum milli Evrópu og Bandaríkjanna þá var áfram samdráttur í ferðum til Íslands en sú þróun hefur haft neikvæð áhrif á einingatekjurnar. Á fyrstu sjö mánuðum ársins hefur ferðamönnum sem komu til landsins með Icelandair fækkað um ríflega níutíu þúsund á milli ára. Innherji 6.8.2024 17:45
Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Eitthundrað ár eru í dag, 2. ágúst, frá því flugvél var í fyrsta sinn flogið yfir úthafið til Íslands. Flugmaðurinn sem það afrekaði var Svíinn Erik H. Nelson, sem orðinn var bandarískur ríkisborgari, en flugið var hluti af hnattflugi bandaríska flughersins, fyrsta flugi sögunnar umhverfis Jörðina. Innlent 2.8.2024 16:07
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent