Fréttir Fjármálastjóri Avion Group lætur af störfum Steingrímur Pétursson, fjármálastjóri Avion Group, hefur ákveðið að láta af starfi sínu og hefur hann samið um starfslok sín hjá félaginu. Steingrimur hefur verið fjármálastjóri Avion Group frá því að félagið keypti Eimskip í júní í fyrra, en áður hafði hann starfað hjá Eimskip frá árinu 2004. Viðskipti innlent 10.11.2006 12:41 Framkvæmdastjóraskipti hjá Icelandic Group Icelandic Group og Dr. Norbert Engberg framkvæmdastjóri dótturfélaganna Pickenpack H&H og Pickenpack Gelmer SAS, hafa gert með sér samkomulag um að Dr. Engberg láti af störfum. Við starfi hans taka Finnbogi Baldvinsson framkvæmdastjóri Icelandic Europe og Wolfgang Kohls framkvæmdastjóri Pickenpack H&H. Viðskipti innlent 10.11.2006 12:36 Breska leyniþjónustan rannsakar áform um 30 hryðjuverkaárásir Elísa Manningham-Buller, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, segir 30 hryðjuverkaárásir í rannsókn í Bretlandi og að leyniþjónustan fylgist með yfir 1600 einstaklingum, sem margir væru í tengslum við Al-Kæda í Pakistan. Erlent 10.11.2006 12:14 Hamas ekki í nýrri stjórn Palestínumanna Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, gaf í skyn í dag að hann myndi ekki taka sæti í þjóðstjórninni sem Hamas samtökin eru að reyna að mynda með Fatah hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta. Erlent 10.11.2006 11:19 Aðstandendur aldraðra afar ósáttir Mikil gremja ríkir meðal aðstandenda aldraðra og alzheimersjúklinga sem eru afar ósáttir við að fjármagn til fjölgunar á rýmum hjúkrunarheimila fyrir aldraða verði ekki veitt fyrr en árið 2008/2009. Ráðherra segir tímann eðlilegan og biðlista hafa styst. Á fundi í gær mótmæltu aðstandendur aldraðra ákvörðun heilbrigðisráðherra að veita ekki fjármagn strax til framkvæmdanna, en tilkynnt var síðustu helgi um fjölgun á hjúkrunarrýmum um rúmlega 170. Innlent 10.11.2006 11:05 Páfagaukar í Húsdýragarðinum Innlent 10.11.2006 10:44 Viðbygging vígð við Hlíð á Akureyri Viðbygging við hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð, á Akureyri, var vígð í gær. Innlent 10.11.2006 10:31 Sparisjóðir Keflavíkur og Ólafsvíkur sameinast Stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Ólafsvíkur hafa undirritað áætlun um samruna sparisjóðanna sem miðast reikningslega við 1. júlí 2006. Fréttablaðið greindi frá þessu í blaðinu í dag þar sem segir að stefnt sé að fullum samruna sjóðanna fyrir áramót eftir samþykki fundar stofnfjáreigenda. Viðskipti innlent 10.11.2006 10:17 Pabbar læra að flétta hár dætra sinna Vefurinn pabbar.is ásamt hárgreiðslustofunni Salarvegi 2, ætla að bjóða öllum feðrum uppá ókeypis námskeið í að flétta hár á dætrum sínum, á morgun, laugardag. Innlent 10.11.2006 10:05 Mátu alþjóðlega fjármálastarfsemi á Íslandi Skýrsla nefndar forsætisráðherra um forsendur alþjóðlegrar fjármálastarfsemi á Íslandi og samkeppnishæfni landsins á því sviði hefur nú verið birt á heimasíðu ráðuneytisins. Ennfremur eru þar reifuð þau tækifæri sem slík starfsemi skapar og fjallað um þann ávinning sem kann að hljótast af henni fyrir efnahag og atvinnulíf í landinu. Innlent 10.11.2006 10:17 Hætt að moka vegna snjóflóðahættu Innlent 10.11.2006 09:41
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Fjármálastjóri Avion Group lætur af störfum Steingrímur Pétursson, fjármálastjóri Avion Group, hefur ákveðið að láta af starfi sínu og hefur hann samið um starfslok sín hjá félaginu. Steingrimur hefur verið fjármálastjóri Avion Group frá því að félagið keypti Eimskip í júní í fyrra, en áður hafði hann starfað hjá Eimskip frá árinu 2004. Viðskipti innlent 10.11.2006 12:41
Framkvæmdastjóraskipti hjá Icelandic Group Icelandic Group og Dr. Norbert Engberg framkvæmdastjóri dótturfélaganna Pickenpack H&H og Pickenpack Gelmer SAS, hafa gert með sér samkomulag um að Dr. Engberg láti af störfum. Við starfi hans taka Finnbogi Baldvinsson framkvæmdastjóri Icelandic Europe og Wolfgang Kohls framkvæmdastjóri Pickenpack H&H. Viðskipti innlent 10.11.2006 12:36
Breska leyniþjónustan rannsakar áform um 30 hryðjuverkaárásir Elísa Manningham-Buller, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, segir 30 hryðjuverkaárásir í rannsókn í Bretlandi og að leyniþjónustan fylgist með yfir 1600 einstaklingum, sem margir væru í tengslum við Al-Kæda í Pakistan. Erlent 10.11.2006 12:14
Hamas ekki í nýrri stjórn Palestínumanna Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, gaf í skyn í dag að hann myndi ekki taka sæti í þjóðstjórninni sem Hamas samtökin eru að reyna að mynda með Fatah hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta. Erlent 10.11.2006 11:19
Aðstandendur aldraðra afar ósáttir Mikil gremja ríkir meðal aðstandenda aldraðra og alzheimersjúklinga sem eru afar ósáttir við að fjármagn til fjölgunar á rýmum hjúkrunarheimila fyrir aldraða verði ekki veitt fyrr en árið 2008/2009. Ráðherra segir tímann eðlilegan og biðlista hafa styst. Á fundi í gær mótmæltu aðstandendur aldraðra ákvörðun heilbrigðisráðherra að veita ekki fjármagn strax til framkvæmdanna, en tilkynnt var síðustu helgi um fjölgun á hjúkrunarrýmum um rúmlega 170. Innlent 10.11.2006 11:05
Viðbygging vígð við Hlíð á Akureyri Viðbygging við hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð, á Akureyri, var vígð í gær. Innlent 10.11.2006 10:31
Sparisjóðir Keflavíkur og Ólafsvíkur sameinast Stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Ólafsvíkur hafa undirritað áætlun um samruna sparisjóðanna sem miðast reikningslega við 1. júlí 2006. Fréttablaðið greindi frá þessu í blaðinu í dag þar sem segir að stefnt sé að fullum samruna sjóðanna fyrir áramót eftir samþykki fundar stofnfjáreigenda. Viðskipti innlent 10.11.2006 10:17
Pabbar læra að flétta hár dætra sinna Vefurinn pabbar.is ásamt hárgreiðslustofunni Salarvegi 2, ætla að bjóða öllum feðrum uppá ókeypis námskeið í að flétta hár á dætrum sínum, á morgun, laugardag. Innlent 10.11.2006 10:05
Mátu alþjóðlega fjármálastarfsemi á Íslandi Skýrsla nefndar forsætisráðherra um forsendur alþjóðlegrar fjármálastarfsemi á Íslandi og samkeppnishæfni landsins á því sviði hefur nú verið birt á heimasíðu ráðuneytisins. Ennfremur eru þar reifuð þau tækifæri sem slík starfsemi skapar og fjallað um þann ávinning sem kann að hljótast af henni fyrir efnahag og atvinnulíf í landinu. Innlent 10.11.2006 10:17
Verðbólga mælist 7,3% Vísitala neysluverðs hefur lækkað um 0,04% frá síðasta mánuði og jafngildir það 7,3% verðbólgu á ársgrundvelli, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Þetta er í takt við spár greiningardeilda bankanna, sem spáðu því að verðbólga myndi mælast á bilinu 7,2 til 7,4%. Innlent 10.11.2006 09:00
Réttindi samkynhneigðra aukin í Mexíkóborg Þingið í Mexíkóborg lögleiddi í dag borgaralega hjónavígslu samkynhneigðra. Í Mexíkó er næstmesti fjöldi kaþólikka og mómæltu margir þessum nýju lögum. Erlent 9.11.2006 23:50
Björgunarsveitir á suðvesturhorninu í viðbragðsstöðu Björgunarsveitir í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins sem á að ganga yfir suðvesturhluta landsins í nótt og í fyrramálið. Bílar frá þeim keyra sem stendur um hverfi og aðstoða fólk við að tryggja lausa hluti. Eitthvað er um að þau hafi líka fest niður hluti á byggingarsvæðum, svo sem stillasa. Innlent 9.11.2006 23:26
Methagnaður hjá Disney Bandaríski afþreyingarisinn Disney skilaði methagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 782 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 53 milljarða íslenskra króna og hefur hann aldrei verið meiri. Hagnaðurinn er að mestu tilkominn vegna góðrar aðsóknar á kvikmyndir undir merkjum Disney og í Disneygarðana. Viðskipti erlent 9.11.2006 23:01
Yfirmaður MI5, bresku leyniþjónustunnar, varar við hryðjuverkaógninni Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, Lafði Eliza Manningham-Buller, skýrði frá því í ræðu í morgun að vitað væri um allt að 30 áætlanir um hryðjuverk í Bretlandi. Fréttavefur BBC skýrir frá þessu. Erlent 9.11.2006 22:58
Kjörsókn í bandarísku þingkosningunum ekki verið meiri síðan 1982 Talið er að um 83 milljónir, eða um 40,4% kjósenda, hafi kosið í þingkosningum í Bandaríkjunum þann 7. nóvemeber síðastliðinn. Þetta er aukning frá þingkosningunum 2002 en þá kusu um 39,7% kjósenda. Erlent 9.11.2006 22:39
Ný skýrsla um vatnsmál í Afríku dregur upp dökka mynd Samkvæmt nýrri skýrslu sem þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér í dag er nauðsynlegt að eyða mun meiri fjármunum en nú er gert í hreinsun vatns. Skýrslan segir einnig að mun fleiri láti lífið úr sjúkdómum sem berast með óhreinu vatni heldur en af HIV/AIDS og malaríu samanlagt. Erlent 9.11.2006 22:18
Björgunarsveitir í viðbragsstöðu Björgunarsveitir á suðvesturlandi eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins sem á að ganga yfir í nótt. Veður er þegar byrjað að versna og hefur Lögreglan í Reykjavík kallað út svæðisstjóra til þess að undibúa nóttina. Innlent 9.11.2006 22:08
Eldur á tjaldsvæði Akraness Klukkan tuttugu mínútur yfir átta í kvöld fékk lögreglan á Akranesi tilkynningu um eld í aðstöðu á tjaldsvæði bæjarins. Logaði glatt þegar slökkvilið bar að garði en um rúman hálftíma tók að ráða niðurlögum eldsins. Innlent 9.11.2006 22:02
Hagnaður Actavis 715 milljónir króna Hagnaður lyfjafyrirtækisins Actavis dróst nokkuð saman á þriðja fjórðungi ársins samanborið við síðast ár. Helsta ástæðan er kostnaður vegna yfirtökuferlis í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva. Hagnaður Actavis nam 8,2 milljónum evra eða tæpar 715 milljónir króna samanborið við 23,3 milljónir evra, jafnvirði 2 milljarða króna. Viðskipti innlent 9.11.2006 21:33
Fólk beðið að tryggja lausahluti Björgunarsveitin Ársæll, sem starfar á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, og Lögreglan í Reykjavík vilja koma því á framfæri við fólk að binda niður garðhúsgögn, trampólín og allt annað lauslegt sem gæti tekist á loft í veðrinu sem á að ganga yfir í fyrramálið. Minnt er á fólk þarf að borga fyrir þær skemmdir sem hljótast af eigum þeirra. Innlent 9.11.2006 21:21
Erfðabreyttur vírus sem krabbameinslyf? Erfðabreyttur vírus getur sýkt og drepið krabbameinsfrumur í heila fólks án þess að skaða heilbrigðar frumur. Þetta kom fram í nýjum rannsóknum sem voru birtar í dag. Erlent 9.11.2006 20:57
Allen viðurkennir ósigur George Allen, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Virgínufylki viðurkenndi rétt í þessu ósigur sinn í kosningunum sem fram fóru þann 7. nóvember síðastliðinn. Erlent 9.11.2006 20:17
Nýtt bænahús gyðinga opnar í Munchen Nýtt bænahús gyðinga opnaði í Munchen í Þýskalandi í dag, 68 árum eftir að Adolf Hitler lét rífa niður bænahúsið sem stóð þar áður. Litið er á byggingu bænahússins sem staðfestingu á fjölgun gyðingasamfélagsins í Munchen en nasistar hreinsuðu borgina af gyðingum á valdatíma sínum. Erlent 9.11.2006 20:05
Vegagerðin varar við grjóthrunni Mikið grjóthrun er í Hvalnes- og Þvottárskriðum og er fólk vinsamlegast beðið um að vera ekki á ferð á þessum slóðum að ástæðulausu. Innlent 9.11.2006 19:52
Demókratar nær öruggir um sigur Allt bendir til að demókratar hafi náð meirihluta í báðum deildum í bandarísku þingkosningunum, í fyrsta sinn í tólf ár. George Bush forseti hefur rétt út sáttahönd til leiðtoga þeirra og kveðst nú opinn fyrir öllum hugmyndum um hernaðinn í Írak. Erlent 9.11.2006 19:08
Fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna í prófkjörum hugsanlega bönnuð Fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna í prófkjörum verða bönnuð nái tillaga þingnefndar um málefnið fram að ganga. Verði tillögurnar samþykktar mun bannið taka gildi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Innlent 9.11.2006 18:56
Olmert segir að mistök hafi verið gerð Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að um "tæknileg mistök" hafi verið að ræða þegar stórskotaliðsárás var gerð á bæinn Beit Hanoun á Gazaströndinni sem kostaði átján lífið, þar af tíu börn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræddi árásina á fundi sínum í dag. Erlent 9.11.2006 19:06
Palestínumenn hrópa á hefnd Tugir þúsunda Palestínumanna grétu og hrópuðu á hefnd þegar þeir fylgdu þeim sem létust í árásum Ísraela á Beit Hanoun til grafar í dag. Alls létust 18 óbreyttir borgara í árásinni sem Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kallaði "tæknileg mistök". Erlent 9.11.2006 18:42