Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu. 11.6.2024 12:06
Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu. 11.6.2024 10:41
Flugvél varaforseta Malaví týnd Flugvél sem flutti varaforseta Malaví, Saulos Chilima, og níu aðra er týnd samkvæmt tilkynningu frá skrifstofu forseta í Malaví. 10.6.2024 16:34
Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja „Ég held að „svarið“ við veseni á strákunum sé ekki að skrifa fleiri bækur um fótbolta, (ofuráhersla á bolta og óhóflegt gláp feðra mætti jafnvel rannsaka sem hluta af vandamálinu). Allavega, skólafólk mætti skoða þessa keppni fyrir næsta ár, það er mikilvægt að stækka heimsmynd krakkanna með verkefnum að þessu tagi eða útskýra af hverju þeir kjósa að taka ekki þátt.“ 10.6.2024 16:07
Krefur úrskurðarnefnd upplýsingamála um upplýsingar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá úrskurðarnefnd upplýsingamála um stöðu og fjölda mála hjá henni. Þá gagnrýnir umboðsmaður að málsmeðferðartími nefndarinnar hafi ekki verið lengri í átta ár en úrskurðum hefur einnig fækkað töluvert undanfarin ár. 10.6.2024 14:27
Lést af náttúrulegum orsökum Breski sjónvarpslæknirinn, Michael Mosley, sem fannst látinn í gær á grísku eyjunni Symi lést af náttúrulegum orsökum samkvæmt fyrstu krufningu sem var framkvæmd á líki hans í dag. 10.6.2024 13:34
Kennari hljóp til þegar Sushi læstist inni eftir skólaslit Hinn víðfrægi köttur Sushi læstist inni í Garðaskóla eftir skólaslit um helgina. Kötturinn þurfti þó ekki að dúsa lengi í skólanum en kennari í skólanum var fljótur að hlaupa til og hleypa kettinum út eftir að íbúi í bæjarfélaginu vakti athygli á kettinum á Facebook. 10.6.2024 12:53
Þrír liggja undir grun en eru líklegast komnir úr landi Mennirnir þrír sem voru handteknir á laugardaginn og yfirheyrðir vegna kynferðisbrots sem er sagt tengjast grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq sæta ekki farbanni vegna málsins. Allir þrír hafa þó stöðu sakbornings í málinu og liggja þar af leiðandi allir undir grun um kynferðisbrot. 10.6.2024 11:29
Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni „Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“ 10.6.2024 09:48
„Rétturinn til viðgerðar“ væntanlegur til landsins „Rétturinn til viðgerðar“ er væntanlegur til landsins en það mun gera neytendum auðveldara að óska viðgerða í stað þess að skipta út vörum. Viðgerðarþjónusta mun verða aðgengilegri og gegnsærri. 9.6.2024 09:00