Sterkur Bandaríkjadalur setur þrýsting á afurðaverð til Evrópu Minnkandi kaupmáttur í Evrópu samfara styrkingu Bandaríkjadalsins hefur haft nokkur áhrif á markaði fyrir sjávarafurðir, að sögn viðmælenda Innherja. Vöruútflutningur Íslands í Bandaríkjadal er töluvert veigameiri en í evrum, þrátt fyrir að stór hluti kaupenda sé staðsettur í Evrópu. 12.10.2022 07:15
AGS: Verðbólga á heimsvísu nálgast hæsta gildi Verðbólga á heimsvísu mun ná hámarki síðar á þessu ári í 8,8 prósentum og síðan lækka til baka á næsta ári og mælast þá að meðaltali um 6,5 prósent. Verðlagshækkanir verða hins vegar þrálátari og langdregnari en áður var talið. 11.10.2022 14:01
Framkvæmdastjóri ON: Aukin raforkuframleiðsla ekki á teikniborðinu Orka náttúrunnar (ON) hefur ekki í hyggju að byggja upp nýjar jarðvarmavirkjanir eða auka raforkuframleiðslu sína. Fjárfestingar í virkjunum ON munu fyrst og fremst miða að því að viðhalda núverandi orkuframleiðslu. Þetta segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. 11.10.2022 07:01
Icelandair og ISAVIA leggjast gegn álagningu varaflugvallagjalds Ef íslenskir flugrekendur sem gera út frá Keflavíkurflugvelli þurfa að sæta gjaldtöku vegna uppbyggingar varaflugvalla dregur úr samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga sem bjóða upp á flug yfir Atlantshafið. 10.10.2022 14:22
Kim Kardashian nær sáttum við fjármálaeftirlit Bandaríkjanna Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur náð sáttum við bandaríska fjármálaeftirlitið (SEC) vegna auglýsinga á samfélagsmiðlum hennar um fjárfestingar í rafmyntaafurðum. SEC féll frá ákæru eftir að Kardashian náði samkomulagi um greiðslu upp á 1,26 milljónir dollara, eða sem nemur ríflega 180 milljónum króna. 3.10.2022 14:00
Dregið úr álframleiðslu í Noregi Norski álframleiðandinn Norsk Hydro mun draga úr álframleiðslu í það minnsta tímabundið vegna minnkandi eftirspurnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. 28.9.2022 15:01
Forstjóri Brims kallar eftir nýrri aðferðafræði við útreikninga á kvótaþaki Forsendur fyrir útreikningi á samanlögðum aflheimildum einstakra sjávarútvegsfyrirtækja eru óskilvirkar vegna þess forsendur þorskígildisstuðla eru rangar og hafa verið í langan tíma. Þetta er mat Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims. 28.9.2022 11:24
Peningaprentun fór úr böndunum í heimsfaraldri Erfið staða efnahagsmála í Evrópu er ekki eingöngu vegna orkuskorts heldur einna helst afleiðing mikillar peningaprentunar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum frá vormánuðum 2020. Þetta er mat Lars Christensen, hagfræðings. 27.9.2022 10:01
Spá mesta hagvexti síðustu fimmtán ára Hagvöxtur á Íslandi verður 7,3 prósent á árinu 2022 ef marka má spá greiningardeildar Íslandsbanka sem kynnt verður síðar í dag. Svo mikill hagvöxtur hefur ekki verið hér á landi í fimmtán ár. 26.9.2022 05:01
Fjárfesta þurfi fyrir 584 milljarða evra í raforkukerfi Evrópu Svo meginland Evrópu geti staðið á eigin fótum í orkumálum og þurfi ekki að kaupa jarðgas af Rússum þarf að fjárfesta um 584 milljörðum evra í í flutnings- og dreifikerfi raforku. Þetta eru frumniðurstöður rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur látið vinna. 25.9.2022 13:12
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent