Íranir búa sig undir árásir landherliðs Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum. 29.3.2026 14:41
Ársæll hættur sem skólameistari Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum. 29.3.2026 13:12
„Fólk er bara að vinna minna“ Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu. 29.3.2026 12:24
Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Yfir hundrað björgunarsveitarmenn voru ræstir út í ýmis verkefni vegna óveðursins sem skall á suðvesturhluta landsins í gær. Nokkuð var um foktjón á Suðurnesjum, Akranesi og Hvammstanga. 29.3.2026 10:10
Falinn gjóður vann Músíktilraunir Hljómsveitin Falinn gjóður stóð uppi sem sigurvegari Músíktilrauna 2026. Í öðru sæti var djasstríóið Brenninetla og í þriðja sæti var tónlistarkonan Lára. 28.3.2026 23:56
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 28.3.2026 23:41
Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Framboðslisti Okkar Hveragerðis var kynntur á átta ára afmæli bæjarmálafélagsins í dag. Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðisbæjar er bæjarstjóraefni listans. 28.3.2026 22:24
Sameining hreppanna tveggja samþykkt Árneshreppur og Kaldrananeshreppur munu sameinast en íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu sameiningu í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. 28.3.2026 21:13
Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Lokað hefur verið fyrir umferð um vegi í kringum höfuðborgarsvæðið vegna óveðurs sem ríður yfir landið. Þung færð er um helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins og víða sitja bílar fastir. 28.3.2026 20:06
Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Lögregla telur framburð mannsins, sem grunaður er um að hafa stungið annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, ótrúverðugan en rökstuddur grunur er um að hann hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Blóðug skóför og DNA hins grunaða á hnífum sem fundust á vettvangi auk lokaniðurstöðu krufningar eru meðal gagna sem benda til sektar hins grunaða. 28.3.2026 19:23