Ekkert skrýtið að finna leikmenn fyrir eitt lið en þjálfa annað Gunnar Magnússon er að verða búinn að fullmóta sinn fyrsta leikmannahóp sem þjálfari Aftureldingar í handbolta þrátt fyrir að síðasta tímabili hans sem þjálfari Hauka sé ekki formlega lokið. 30.3.2020 22:30
Baldur um grun um veðmálasvindl: Hafði enga trú á að þetta væri til staðar Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, segist ekki hafa haft neina trú á því að grunur um að leikmenn liðsins ættu þátt í veðmálasvindli í vetur væri á rökum reistur. 30.3.2020 22:00
Formaður hjá KR segir íþróttafólk eiga að njóta bótaúrræða hins opinbera Formaður knattspyrnudeildar KR segist „vinna eftir þeirri reglu“ núna að íþróttafélög greiði sínum starfsmönnum 25% launa og ríkið 75%, í samræmi við þau úrræði sem stjórnvöld hafi boðið upp á. 30.3.2020 21:00
Berglind segir ÍR-ingum að skoða jafnréttisstefnu sína Berglind Hrund Jónasdóttir, markvörður Stjörnunnar í fótbolta og uppalinn ÍR-ingur, harmar þá ákvörðun síns gamla félags að leggja niður kvennalið ÍR í handbolta. 30.3.2020 20:00
„Til hvers að bíða með svona erfiða ákvörðun?“ Formaður KKÍ er ósammála því að réttast hefði verið að bíða með að taka ákvörðun um það hvort og þá hvaða lið féllu úr Domino's-deildunum og hvaða lið færu upp úr 1. deild. 30.3.2020 19:34
Grealish skammast sín | Sagður geta gleymt landsliðssæti Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, segist skammast sín mjög eftir að hann braut útgöngubann í Bretlandi, skellti sér í partý og ók svo bifreið sinni á tvo kyrrstæða bíla. 30.3.2020 19:00
Stór UEFA-fundur um dagsetningar leikja og samningamál leikmanna | Mótanefnd KSÍ bíður átekta Knattspyrnusamband Evrópu mun á miðvikudaginn kynna fyrir aðildarsamböndum sínum hugmyndir tveggja starfshópa varðandi það hvenær leikir í mótum á vegum sambandsins verði spilaðir. 30.3.2020 18:00
Ísland í undankeppni EM í e-fótbolta í dag | Viðar og Arnór byrja frammi Það verður ekkert EM í fótbolta í sumar og karlalandsliðið í fótbolta spilar á ný í fyrsta lagi 4. júní, í EM-umspilinu við Rúmeníu. Hins vegar verður landsliðið í e-fótbolta á ferðinni í dag, í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport, nýjum heimavelli rafíþrótta. 23.3.2020 07:00
Á dagskrá í dag: Kraftaverkið í Istanbúl og undankeppni EM í e-fótbolta Það er mikið af dagskrárefni í boði á Stöð 2 Sport og hliðarstöðvum í dag þrátt fyrir það ástand sem hefur skapast í íþróttaheiminum af völdum kórónuveirunnar. 23.3.2020 06:00
Varaði Ólaf, Teit og félaga við að skrifa undir | „Lygar og blekkingaleikur“ Sænska handknattleiksstórveldið Kristianstad hugðist frá og með morgundeginum byrja að nýta sér neyðarúrræði stjórnvalda til að stórlækka launakostnað sinn vegna leikmanna. 22.3.2020 23:00