Afsögn enn ódagsett Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, oddviti flokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og verðandi bæjarstjóri, segir ekki komna fasta dagsetningu á hvenær hann muni segja sig frá þingmennsku. 31.5.2026 16:07
Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ganga lausnamiðuð inn í þær viðræður sem fram muni fara næstu vikur. Það geti þó farið svo að segja þurfi upp kjarasamningum í haust. Hún segist persónulega andsnúin inngöngu Íslands í ESB þar sem aðild sé andstæð hagsmunum verkafólks. 31.5.2026 15:12
Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Rétt fyrir klukkan sjö í morgun mældist sjálfti að stærð 2,8 rétt vestan við Húsmúla við Hellisheiðarvirkjun. Í kjölfarið hafa mælst tæplega þrjátíu litlir skjálftar. Ein tilkynning um að skjálftinn hefði fundist barst frá íbúa í Hveragerði. 31.5.2026 09:40
Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Margrét Þórhildur Danadrottning var í gær útskrifuð af sjúkrahúsi eftir fimm daga innlögn. Er það í annað skipti í mánuðinum sem drottningin þurfti að leggjast inn á sjúkrahús. 30.5.2026 16:02
Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Tilkynning barst Brunavörnum Suðurnesja klukkan 11:50 um mikinn og svartan reyk sem kæmi út um glugga á neðri hæð einbýlishúss í Vogum á Vatnsleysuströnd. 30.5.2026 14:48
Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Borgarleikhúsið hefur neyðst til að fella niður tvær sýningar af Moulin Rouge vegna veikinda í leikhópnum. „Það er einhver flensa að ganga um bæinn sem er svolítið skæð og sest í hálsinn á fólki,“ segir Egill Heiðar Anton Pálsson, Borgarleikhússtjóri, í samtali við fréttastofu. 30.5.2026 13:54
Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega. 30.5.2026 11:41
Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Öll flugumferð um alþjóðaflugvöllinn í München var stöðvuð í um klukkustund í morgun. Um klukkan níu að staðartíma tilkynntu flugmenn tveggja véla að þeir hefðu mögulega séð dróna á flugi. Flugmennirnir voru þá enn staddir á jörðu niðri. 30.5.2026 10:14
Vör ýtt úr vör Á sunnudaginn ýta Faxaflóahafnir fjölnota farþegamiðstöðinni Vör úr vör. Það féll í hlut Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, að opna Vör með borðaklippingu í dag. 29.5.2026 17:50
Eftir sumarið tekur við óvissa Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir stöðuna góða innan greinarinnar yfir sumarið og sólmyrkvann 12. ágúst vera mikla búbót. Í haust taki þó við óvissa. 29.5.2026 16:59