Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Alþingi samþykkti frumvarp til laga um nýja stofnun fyrir fólk sem þarf að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn. Þessi hópur hefur hingað til fallið milli skips og bryggju í kerfinu, hafa þótt ógn við velferð annarra en ekki verið hægt að vista hann til frambúðar innan fangelsa. 19.6.2026 16:43
Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. Sjá mátti tvo áhafnarmeðlimi hlúa að Hólmsteini þegar skipið sigldi inn Hvalfjörðinn. 19.6.2026 14:47
Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Tónlistarhátíðin Bergmál fer fram á Þingvöllum á morgun, laugardag. Ferðamenn reka upp stór augu við sjónina en búið er að stilla upp tjöldum, tugum kamra, risastóru sviði og hljóðprufur eru hafnar. 19.6.2026 13:54
„Það verða engir konungar“ Mikill stjörnufans var á opnunarhátíð safns tileinkað forsetatíð Baracks Obama í Chicago í dag. Allir núlifandi fyrrum forsetar Bandaríkjanna sóttu viðburðinn og stjörnur á borð við Christinu Aguilera, Stevie Wonder, John Legend og Jennifer Hudson komu fram. Núverandi forseti, Donald Trump, var ekki á boðslistanum. 19.6.2026 00:18
Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu þegar hann færði Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón, til í starfi í kjölfar kvartana undirmanns. Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur en það var ríkislögmaður sem áfrýjaði dómnum. Ríkið þarf að greiða Margeiri tvær milljónir í miskabætur og eina og hálfa milljón í málskostnað. 18.6.2026 23:12
Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl. 18.6.2026 21:06
Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur fram tillögu um að nítján manns verði veittur ríkisborgararéttur. Alls tók nefndin fyrir 166 umsóknir. Alþingi hefur heimild til að veita ríkisborgararétt með lögum og er tillagan tekin til atkvæðagreiðslu í lok þingvetrar. 18.6.2026 18:48
Trump undirritaði samkomulag við Írani Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist hafa undirritað samkomulag við Íran. Samkomulagið, sem inniheldur fjórtán atriði, var undirritað af forsetanum í Versölum nú í kvöld. Trump er staddur þar í Frakklandi í tilefni af ráðstefnu G7-ríkjanna, stærstu efnahagsvelda heimsins. 18.6.2026 00:08
Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Landsmenn um allt land héldu upp á áttatíu og tveggja ára afmæli Lýðveldisins Íslands í dag. Viktor Freyr Arnarson, ljósmyndari Vísis, fangaði stemninguna á Akureyri. 17.6.2026 23:11
Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, er látin þrjátíu og fimm ára að aldri. TMZ greinir frá því að hún hafi fyrr í þessum mánuði lagst inn á sjúkrahús vegna vannæringar. Haft er eftir kærasta hennar að dánarorsökin hafi verið blóðsýking í kjölfar heilahimnubólgu sem leitt hafi til fjöllíffærabilunar. 17.6.2026 22:55