Vonaði að partíin fengju að bíða aðeins Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, segir að þegar lögregla þurfi að hafa afskipti af mörgum samkvæmum sé það vísbending um að fólk sé farið að slaka á í sóttvörnum. 24.1.2021 12:19
Vonast eftir aðkomu lífeyrissjóða að Sundabraut Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mun kynna skýrslu um gerð Sundabrautar og hvernig hægt verði að fara í þær framkvæmdir. Þetta sagði Sigurður í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þegar hann var spurður um mögulega aðkomu lífeyrissjóða að stórum samgönguframkvæmdum hér á landi. 24.1.2021 11:40
Ellefu bjargað úr námu í Kína Ellefu námuverkamönnum var bjargað úr námu í Kína eftir að þeir höfðu verið fastir þar í tvær vikur. Einn er sagður hafa dáið og örlög tíu til viðbótar eru óljós. Göng sem verið var að grafa í nýrri gullnámu í Kína hrundu í sprengingu þann 10. janúar. 24.1.2021 09:57
Sprengisandur á Bylgjunni: Ríkisstjórnin, veiran, Íslandsbanki og krabbamein Það verður margt rætt í þjóðmælaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, um málefnagreining í ríkisstjórn og hvort hægt sé að flýta framkvæmdum í innviðum með þátttöku lífeyrissjóða. 24.1.2021 09:32
Týr flutti sjúkling frá Siglufirði Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð til í gær vegna sjúkraflutnings frá Siglufirði. Hvorki var hægt að flytja sjúkling landleiðina né í sjúkraflugi vegna slæms veðurs og ófærðar. 24.1.2021 09:31
Navalní segist ekki ætla að svipta sig lífi í fangelsi Tugir þúsunda Rússa komu saman við mótmæli víðsvegar um Rússlands í gær. Þar af hittust einhverjir í allt að fimmtíu gráðu frosti. Rúmlega þrjú þúsund þeirra voru handteknir af lögreglu sem mætti mótmælendum víða af hörku. 24.1.2021 08:30
Éljagangur fyrir norðan og óvissa fyrir sunnan Áfram verður éljagangur um landið norðanvert, þó dragi úr vindi í dag, sem á að vera norðaustan 8 til 15 m/s. Bjart verður með köflum á sunnanverðu landinu og frost víða 0 til 6 stig, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. 24.1.2021 07:51
Tóku höndum saman og komu sjúkrabíl í gegnum mikla ófærð Björgunarsveitarmenn frá Þórshöfn, Raufarhöfn, Húsavík auk snjómokstursmanna allt frá Þórshöfn til Akureyrar tóku á honum stóra sínum í gær þegar þeir komu sjúklingi frá Þórshöfn til Akureyri í mjög vondu veðri og mikilli ófærð. 24.1.2021 07:34
Töluvert um hávaðatilkynningar vegna samkvæma Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst mikill fjöldi tilkynninga um læti frá partíum í nótt. Þær tilkynningar virðast hafa borist frá öllum hverfum borgarinnar og allt til korter í fimm í nótt, samkvæmt dagbók lögreglu. 24.1.2021 07:17
Vildi sinn mann í ráðherrastól á síðustu metrunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, íhugaði að skipta út starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna í upphafi mánaðarins. Ætlaði hann sér að skipa annan starfandi ráðherra sem átti að hjálpa honum við að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í fyrra. 23.1.2021 23:01