Byggingarfulltrúi sagði húsið sem hrundi í „mjög góðu ástandi“ Björgunarsveitar- og slökkviliðsmenn í Miami í Bandaríkjunum vonast enn eftir því að finna fólk á lífi í rústum fjölbýlishúss sem hrundi óvænt í síðustu viku. Enginn hefur þó fundist á lífi nema skömmu eftir að húsið hrundi. Enn er 151 manns saknað en búið er að finna og bera kennsl á lík tíu manns. 28.6.2021 20:29
Her Eþíópíu hörfar og ríkisstjórnin lýsir yfir einhliða vopnahléi Ríkisstjórn Eþíópíu hefur lýst yfir einhliða vopnahléi í Tigray-héraði þar sem harðir bardagar eru sagðir hafa geisað á undanförnum mánuðum. Það var gert í kjölfar þess að forsvarsmenn Frelsisfylkingarinnar, sem stjórnaði Eþíópíu á árum áður, segja að þeir hermenn þeirra hafi náð tökum á borginni Mekelle, höfuðborg héraðsins. 28.6.2021 19:06
Hraunflæðið stöðugt í tvo mánuði Hraunflæði í Fagradalshrauni mældist þrettán rúmmetrar á sekúndu á tímabilinu 11. til 26. júní. Það er hæsta talan sem hefur mælst hingað til þó munurinn sé ekki marktækur, miðað við síðustu vikur. Hraunflæðið hefur verið nánast stöðugt í tæpa tvo mánuði. 28.6.2021 17:51
Ratchet & Clank: Rift Apart - Skemmtilegt ævintýri sýnir hvað hægt er að gera með PS5 Félagarnir Ratchet og Clank þurfa enn eina ferðina að bjarga alheiminum og jafnvel nokkrum slíkum í þetta sinn. Ratchet & Clank: Rift Apart er þrusugóð viðbót við gamla seríu sem skín í Playstation 5 en leikurinn er eingöngu gefinn út á þá leikjatölvu. 9.6.2021 08:45
Hrósaði Lúkasjenka fyrir „stálhreðjar“ hans Ríkissjónvarp Hvíta-Rússlands birti í dag viðtal við blaðamanninn og aðgerðasinnann Roman Protasevíts, sem var handtekinn þegar áhöfn farþegaþotu RyanAir var þvinguð til að lenda flugvélinni í Minsk í síðasta mánuði. 3.6.2021 23:38
Eldræða dúx um þungunarrof í Texas vakti gífurlega athygli Paxton Smith, dúx Lake Highlands skólans í Texas, hætti við að halda þá ræðu sem skólastjórnendur höfðu samþykkt og hélt þess í stað ræðu um lög um þungunarrof í ríkinu íhaldssama. Eldræða hennar, þar sem hún talaði um „stríð gegn líkömum og réttindum“ hennar og annarra stúlkna og kvenna, hefur náð gífurlegri dreifingu á netinu. 3.6.2021 22:16
Lögðu ekki nóg á sig við að ná í sprengjumanninn í Nashville Lögreglan í Nashville í Bandaríkjunum hefði átt að gera meira til að ná sambandi við Anthony Q. Warner eftir að tilkynning barst árið 2019 um að hann væri að smíða sprengjur. Warner sprengdi sig og húsbíl sinn í loft upp í Nashville í desember í fyrra. 3.6.2021 21:50
Segja athugasemdir gegn bróður Áslaugar ekki eiga við rök að styðjast Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins segir Magnús Sigurbjörnsson, bróður Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, ekki hafa nýtt sér aðgang að flokksskrá flokksins fyrir prófkjör sem stendur nú yfir. Reglur hafi ekki verið brotnar. 3.6.2021 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Marek Moszczynski var í Héraðsdómi í dag metinn ósakhæfur vegna brunans á Bræðraborgarstíg. Honum er gert að sæta öryggisvistun. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. 3.6.2021 18:05
Bandaríkin ætla að gefa 80 milljónir skammta í júní Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í dag að til stæði að gefa 80 milljónir skammta bóluefna til annarra ríkja í júní. Mest allt af því mun fara til COVAX-áætlunar Sameinuðu þjóðanna en hingað til hafa ríki þar sem þörfin er mikil fengið 76 milljónir skammta í gegnum áætlunina. 3.6.2021 18:05