Svarta ekkjan í hart við Disney Leikkonan Scarlett Johansson hefur höfðað mál gegn Disney vegna dreifingar kvikmyndarinnar um Svörtu ekkjuna. Hún segir ákvörðun Disney að hafa birt myndina einnig á streymisveitunni Disney+ vera brot á samningi hennar við Marvel. 29.7.2021 21:02
Meira en tuttugu skjálftar í Kötlu Jarðskjálfti að stærð 3,2 mældist á skjálftamælum Veðurstofu Íslands við Kötlu í kvöld. Þó nokkrir eftirskjálftar hafa mælst í kjölfarið. 29.7.2021 20:19
Boris í basli með regnhífar Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, lenti í vandræðum með regnhlíf á afhjúpun minnisvarða í London í gær. Vindur krækti í regnhlífina eftir að hann átti í erfiðleikum með að opna hana svo nærstaddir hlógu að forsætisráðherranum. 29.7.2021 19:08
Hreyflar nýrrar einingar fóru óvænt í gang og færðu geimstöðina af réttri sporbraut Eftir að ný rússnesk eining var tengd við Alþjóðlegu geimstöðina í dag, kviknaði óvænt á hreyflum einingarinnar svo geimstöðin færðist úr stöðu sinni á braut um jörðu. Hreyflarnir voru í gangi í nokkrar mínútur og voru hreyflar annarra eininga geimstöðvarinnar notaðir til að vega upp á móti hinum. 29.7.2021 18:40
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hlutfall bólusettra sem veikjast alvarlega eftir að hafa smitast af kórónuveirunni er það sama hér á landi og í Ísrael eða eitt prósent. Fjallað verður um þróun fjórðu bylgjunnar í kvöldfréttum Stöðvar 2, rætt við sóttvarnayfirvöld og staðan tekin á Landspítalanum. 29.7.2021 18:01
Shakira mögulega á leið fyrir dómara fyrir skattsvik Shakira, tónlistarkonan heimsfræga frá Kólumbíu, er í basli á Spáni, þar sem hún býr. Dómari í Barcelona komst að þeirri niðurstöðu eftir þriggja ára rannsókn að nægar vísbendingar séu fyrir því rétta yfir Shakiru fyrir að hafa komið 14,5 milljónum evra undan skatti. 29.7.2021 17:51
Þingmenn deila vegna grímuskyldu: „Hann er svo mikill fáviti“ Miklar deilur áttu sér stað í þinghúsi Bandaríkjanna í dag eftir að grímuskyldu var komið á í fulltrúadeildinni aftur, að ráðleggingu læknis þingsins. Repúblikanar hafa fordæmt ákvörðunina og margir þingmenn hafa neitað að vera með grímur, þó þeim hafi verið hótað sektum. 28.7.2021 23:06
Hafa áhyggjur af auknum árásum á almenna borgara Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af fregnum af auknum árásum á almenna borgara í Afganistan. Sameinuðu þjóðirnar segja þær árásir hafa náð nýjum hæðum að undanförnu samhliða stórri sókn Talibana, sem hafa lagt undir sig stóran hluta landsins síðustu mánuði. 28.7.2021 22:31
Bassaleikari ZZ Top er dáinn Dusty Hill, bassaleikari hljómsveitarinnar víðfrægu ZZ Top er dáinn. Hann var 72 ára gamall og lést í svefni á heimili sínu í Houston í Bandaríkjunum. 28.7.2021 21:23
Joey Jordison trommari Slipknot er dáinn Joey Jordison, trommari og einn stofnenda hljómsveitarinnar Slipknot, er dáinn. Hann var 46 ára gamall og er sagður hafa dáið friðsamlega í svefni. Dánarorsök liggur ekki fyrir. 27.7.2021 23:10