Lífið

Kristján Þór og Gunna Dís hætt saman

Samúel Karl Ólason skrifar
Kristján Þór og Gunna Dís fluttu norður þegar hann varð sveitastjóri í Norðurþingi.
Kristján Þór og Gunna Dís fluttu norður þegar hann varð sveitastjóri í Norðurþingi.

Kristján Þór Magnússon og Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem fjölmiðlakonan Gunna Dís, eru sögð vera að skilja. Kristján Þór er sveitarstjóri í Norðurþingi en Gunna Dís er á leið til Reykjavíkur aftur.

Smartland segir frá því að Kristján Þór hafi tilkynnt samstarfsmönnum sínum í dag að „breytingar væru að verða á hans högum“.

Kristján sagðist hlakka til að mæta aftur til starfa um áramótin. Hann hefur verið í leyfi frá störfum um nokkuð skeið.

Þá segir að Gunna Dís, sem naut vinsælda í morgunþáttunum Virkum morgnum á Rás 2 auk þess að stýra spurningaþáttunum Útsvari, ætli að flytja aftur til höfuðborgarsvæðisins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.