Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. 17.10.2024 10:22
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. 16.10.2024 11:22
Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir vera að stofna nýtt herfylki sem skipað verður allt að þrjú þúsund mönnum frá Norður-Kóreu. Kim Jon Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur heitið Vladimír Pútín, kollega sínum, fullum stuðningi vegna innrásar Rússa í Úkraínu. 15.10.2024 14:14
Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Kosningafundur Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í Pennsylvaníu í gær breyttist í einhverskonar diskótek eftir að huga þurfti að tveimur áhorfendum í salnum. Í stað þess að svara spurningum úr sal, eins og til stóð, lét Trump spila tónlist í tæpar fjörutíu mínútur á meðan hann stóð á sviðinu og vaggaði sér. 15.10.2024 11:40
Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur sakað ríkisstjórn Indlands um aðild að glæpum, ofbeldi og morðum í Kanada. Hann sakaði Indverja um að hafa gert „grundvallar mistök“ og að aðgerðir þeirra væru alfarið óásættanlegar. 15.10.2024 10:41
Until Dawn: Flott endurgerð á hryllilegum leik Hryllingsleikurinn Until Dawn, frá 2015, hefur verið endurgerður. Þó hann sé níu ára gamall hefur upprunalegi leikurinn verið vinsæll meðal hryllingsleikja þar sem hann gefur spilurum möguleika á að hafa mikil áhrif á söguna. Endurgerðin gerir þó mikið fyrir útlit leiksins og hann lítur merkilega vel út. 15.10.2024 09:07
Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Taugaeitrið sem rússneskir útsendarar höfðu komið fyrir í ilmvatnsflösku og skilið eftir á glámbekk í Bretlandi árið 2018, eftir að þeir reyndu að ráða njósnarann Sergei Skripal af dögum, var í nægjanlegu magni til að drepa þúsundir manna. Hin 44 gamla Dawn Sturgess dó eftir að hún sprautaði því sem hún hélt að væri ilmvatn á sig. 15.10.2024 08:01
GameTíví: Jökull leiðir strákana til sigurs Það verður gestagangur hjá GameTíví í kvöld. Jökull Elísabetarson mun meðal annars mæta og leiða strákana til sigurs í Warzone. 14.10.2024 19:31
Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar. 14.10.2024 15:29
Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist mögulega vilja siga þjóðvarðliði ríkisins eða bandaríska hernum, gegn „innri óvinum“. Fólki sem hann lýsti um helgina sem „öfga-, vinstri geðsjúklingum“ en slíka orðræðu hefur hann ítrekað notað um pólitíska andstæðinga sína. 14.10.2024 14:01
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti