Senegal Afríkumeistari Senegal varð í kvöld Afríkumeistari í knattspyrnu eftir sigur á Egyptalandi í vítaspyrnukeppni. Segja má að markverðir beggja liða hafi stolið sviðsljósinu en staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. 6.2.2022 22:15
Asensio hetja Real Madríd Real Madríd jók forskot sitt á toppi La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, með naumum 1-0 sigri á Granada í síðasta leik dagsins. Marco Asensio var hetja heimamanna en hann skoraði eina mark leiksins. 6.2.2022 22:00
París valtaði yfir meistarana og jók forskot sitt á toppnum París Saint-Germain vann 5-1 útisigur á meisturum Lille í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 6.2.2022 21:50
Nýju mennirnir tryggðu Juventus sigur Juventus vann 2-0 sigur á Hellas Verona í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Nýju menn liðsins voru báðir á skotskónum. 6.2.2022 21:40
„Mjög erfitt í lokin, þurfti að einbeita mér að detta ekki“ Snorri Einarsson náði besta árangri Íslendings í skíðagöngu á Vetraólympíuleikum í morgun er hann hafnaði í 29. sæti í 30 kílómetra skiptigöngu, hann segir það mikinn léttir að hafa byrjað leikana svona vel. Snorri ræddi við Stöð 2 og Vísi að göngunni lokinni. 6.2.2022 21:01
Boreham Wood áfram eftir óvæntan sigur á Bournemouth Boreham Wood er síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum FA bikarsins. Liðið vann einkar óvæntan 1-0 útisigur á B-deildarliði Bournemouth. 6.2.2022 20:30
Dagný lék allan leikinn í góðum sigri West Ham West Ham United lagði Aston Villa 2-1 í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á Englandi í dag. Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn á miðju West Ham. 6.2.2022 20:06
Engin gaf fleiri stoðsendingar en Martin í frábærum sigri Valencia Martin Hermannsson og félagar Valencai unnu frábæran útisigur á Real Madríd í ACB-deildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 93-94. Þá lék Ægir Þór Steinarsson með Acunsa Gipuzkoa er liðið vann þægilegan sigur á Real Valladolid. 6.2.2022 19:41
Þjálfari Forest í skýjunum: „Frábær dagur fyrir alla“ Steve Cooper, þjálfari Nottingham Forest, var eðlilega hæstánægður eftir magnaðan 4-1 sigur sinna manna á ríkjandi bikarmeisturum Leicester City í 32-liða úrslitum FA-bikarsins í dag. 6.2.2022 18:46
Bikarmeistarar Leicester úr leik eftir afhroð í Skírisskógi Nottingham Forest frá Skírisskógi gerði sér lítið fyrir og pakkaði bikarmeisturum Leicester City saman í 32-liða úrslitum FA-bikarsins. Lokatölur í Nottingham 4-1 heimamönnum í vil. 6.2.2022 18:01