Hundamatur í uppáhaldi hjá æðarfugli á Akranesi Yndislegt samband hefur skapast á milli unglingsstúlku á Akranesi og fjörutíu og fimm daga æðarfugls, sem stelpan hefur tekið að sér. Fuglinn, sem heitir Dúdú elskar mest af öllu hundamat og mjölorma. 8.9.2024 20:06
14 pör eða hjón í Hrunamannahreppi eiga von á barni Sjaldan eða aldrei hefur verið ein mikil uppbygging á Flúðum eins og núna því um 70 íbúðir eru þar í byggingu. Samhliða er mikil fjölgun í sveitarfélaginu en þegar síðast var vitað eiga fjórtán pör á Flúðum og næsta nágrenni von á barni á næstu vikum. 8.9.2024 14:05
Leikskólabörn og 88 ára harmoníkuleikari Það skapaðist skemmtileg stemming í Garðabæ í gær þegar leikskólabörn heimsóttu 88 ára gamlan harmoníkuleikara í nágrenni leikskólans og sungu nokkur hressileg lög með honum. 7.9.2024 20:05
Rausnarskapur Kiwanisklúbbsins Ölvers í Þorlákshöfn Skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar á ekki orð yfir rausnarskap félaga í Kiwanisklúbbnum Ölver í bæjarfélaginu, sem bauð nemendum í 8. og 9. bekk í vikunni í dagsferð í Landmannalaugar. Boðið var upp á fjölbreyttar veitingar í ferðinni, sem voru allar í boði klúbbsins, auk rútuferðarinnar. 7.9.2024 15:05
Nýtt fimleikahús óskast á Selfossi Yfirþjálfari fimleikadeildarinnar á Selfossi skorar á bæjaryfirvöld í Árborg að byggja nýtt fimleikahús þar sem núverandi hús sé orðið allt of lítið og lélegt fyrir deildina. Níu stelpur úr fimleikunum er á leiðinni til Azerbaijan til að taka þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum. 6.9.2024 20:05
Allir í jólaskapi í Jólagarðinum Það styttist og styttist til jóla en það er þó sennilega engin komin í jólaskap nema þá kannski starfsfólk Jólagarðsins i Eyjafirði, sem eru að vinna í kringum jólin allt árið við móttöku á gestum og þarf því að vera í jólaskapi. 3.9.2024 20:07
Mikil fagnaðarlæti vegna hænu í Hveragerði Mikil gleði braust út á heimili mæðgna í Hveragerði í vikunni þegar hænan Sóley skilaði sér heim eftir að hafa verið týnd í átta daga. Mæðgurnar voru búnir að gefa það upp bátinn að Sóley fyndist á lífi en það ótrúlega gerðist, hún kom sprelllifandi heim. 1.9.2024 20:06
Verður veturinn nýja ferðamannatímabilið í Fjallabyggð? Mannlíf og atvinnulíf blómstrar, sem aldrei fyrr í Fjallabyggð þessi misserin enda hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið að gera í sveitarfélaginu og nú. Bæjarstjórinn spáir því að veturinn verði nýja ferðamannatímabilið í sveitarfélaginu vegna góðrar skíðaaðstöðu. 1.9.2024 15:06
15 fatlaðir starfsmenn hættir á Múlalundi Miklar breytingar eiga sér nú stað á starfsemi Múlalundar á Reykjalundi í Mosfellsbæ því þar er fólk með fötlun að missa vinnuna og einhverjir eru að hverfa til annarra starfa. Fimmtán fatlaðir starfsmenn voru kvaddir í gær, þar af einn starfsmaður, sem hefur unnið á Múlalundi í 38 ár. 31.8.2024 20:05
Fyrsti Hjallastefnuleikskólinn á Selfossi Mikil ánægja er á Selfossi með nýjan leikskóla en það er Hjallastefnuleikskóli, sá fyrsti í bæjarfélaginu. Hefðbundin leiktæki, sem voru á lóðinni hafa öll verið fjarlægð en í staðinn hefur lóðinni verið breytt í opinn efnivið og náttúrulegt umhverfi barna eins og tíðkast í Hjallastefnuleikskólum. 31.8.2024 14:04