Skoða viðskipti Trump við erlend ríki í samhengi við leyniskjöl Alríkissaksóknarar sem rannsaka leyniskjöl sem Donald Trump hafði með sér þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna stefndu fyrirtæki hans um upplýsingar um viðskiptatengsl við sjö erlend ríki. Rannsóknin kann því að beinast að því hvort að Trump hafi nýtt sér skjölin í viðskiptum sínum á erlendri grundu. 23.5.2023 11:01
Ekki lagastoð til að stöðva hvalveiðar í sumar Matvælaráðherra ítrekaði að hann teldi hendur sínar bundnar í að stöðva veiðar á langreyðum í sumar á fundi þingnefndar í morgun. Engin lagastoð væri fyrir því að afturkalla gildandi veiðileyfi. Enginn ákvörðun hafi verið tekin um veiðar á næsta ári en við blasi að endurskoða þurfi lög um hvalveiðar almennt. 23.5.2023 09:55
Meirihluti gerenda og þolenda heimilisofbeldis yngri en 36 ára Rúmlega helmingur þeirra sem beitti og varð fyrir heimilisofbeldi á fyrsta fjórðungi ársins var yngri en 36 ára samkvæmt tölum lögreglunnar. Afgerandi meirihluti gerenda var karlar og konur yfirleitt þolendur. 22.5.2023 15:38
Enn bætist í hóp frambjóðenda hjá repúblikönum Tíundi frambjóðandinn bætist við í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar á næsta ári þegar Tim Scott, öldungadeildarþingmaður flokksins, lýsir formlega yfir framboði sínu í dag. Fastlega er búist við því að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og helsti áskorandi Donalds Trump, kynni sitt framboð í vikunni. 22.5.2023 13:59
Náða blaðamanninn sem var tekinn úr Ryanair-vél Hvítrússnesk stjórnvöld náðuðu í dag Raman Pratasevitsj, blaða- og andófsmann, sem var handtekinn eftir að flugvél Ryanair sem hann ferðaðist í var neydd til að lenda í Minsk árið 2021. Pratasevitsj hafði verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ýmis meint brot. 22.5.2023 12:02
Leki stöðvar sjónvarpsútsendingar Ríkisútvarpsins Sjónvarpsútsendingar Ríkisútvarpsins liggja niðri eftir að rafmagni sló út vegna vatnsleka. Útvarpsstjóri segir skemmdirnar minniháttar og að útsending eigi að komast fljótt í loftið aftur. 22.5.2023 10:11
Epstein sagður hafa hótað Bill Gates Jeffrey Epstein, látni auðkýfingurinn og kynferðisbrotamaðurinn, er sagður hafa hótað Bill Gates, stofnanda tæknirisans Microsoft, með upplýsingum um framhjáhald Gates með rússneskum briddsspilara fyrir nokkrum árum. Ljóstrað hefur verið upp um tengsl Epstein við fjölda áhrifamanna að undanförnu. 22.5.2023 09:16
Farið fram á nauðungarsölu á heimili borgarfulltrúa Skatturinn hefur óskað eftir nauðungarsölu á heimili Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, í Vesturbæ Reykjavíkur, Kjartan segir að beiðnina megi rekja til skattskuldar sem varð til á meðan hann var utan borgarstjórnar. 19.5.2023 15:23
Farið fram á að skipverjinn á Sighvati verði talinn látinn Sambýliskona manns sem er talinn af eftir að hann féll útbyrðis af línuskipinu Sighvati GK-57 í desember hefur höfðað mál um að hann skuli teljast látinn. Skipverjinn fannst aldrei þrátt fyrir nokkurra daga leit. 19.5.2023 14:10
Lést þegar hann féll í fjöruna við Arnarstapa Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri lést þegar hann féll fram af björgum við Arnarstapa á Snæfellsnesi í gær. Ekki tókst að komast að manninum fyrr en tæpri klukkustund eftir að tilkynning barst vegna erfiðra aðstæðna á slysstað. 19.5.2023 10:44