Leiðtogi katalónskra aðskilnaðarsinna sviptur friðhelgi Almenni dómstóll Evrópusambandsins svipti Carles Pugdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Katalóníu, friðhelgi sem Evrópuþingmaður í dag. Ákvörðunin þýðir að Puigdemont gæti verið framseldur til Spánar þar sem hann sætir ákæru. 5.7.2023 11:27
Leikkonu sem tældi konur í sértrúarsöfnuð sleppt úr fangelsi Allison Mack, fyrrverandi leikkonu, sem tældi konur í meintan sjálfshjálparhóp, var sleppt úr fangelsi í Kaliforníu í Bandaríkjunum í vikunni. Hún hlaut dóm fyrir fjárkúgun en játaði að hafa hjálpað leiðtoga hópsins að finna konur sem hann misnotaði kynferðislega. 5.7.2023 10:56
Heitasti staki dagurinn frá upphafi mælinga Bráðabirgðatölur benda til þess að mánudaginn 3. júlí hafi verið heitasti einstaki dagur á jörðinni frá því að mælingar hófust. Meðalhiti jarðar fór þá í fyrsta skipti yfir sautján gráður. Hlýindin eru að hluta til knúin af sterkum El niño-atburði í Kyrrahafinu. 5.7.2023 09:50
Samþykkja áform um að sleppa vatni frá Fukushima út í sjó Alþjóðakjarnorkumálastofnunin lagði blessun sína yfir áform japanskra stjórnvalda um að sleppa geislavirku kælivatni frá Fukushima-kjarnorkuverinu út í sjó. Vatnið er talið hafa hverfandi áhrif á umhverfi og heilsu. 4.7.2023 15:51
Ók á vegfarendur og stakk í Tel Aviv Ungur Palestínumaður ók bíl inn í hóp fólks á strætisvagnabiðstöð og stakk fólk með eggvopni í Tel Aviv í Ísrael í dag. Herskáir hópar Palestínumanna líta á hryðjuverkið sem svar við umfangsmikilli hernaðaraðgerð Ísraela á Vesturbakkanum. 4.7.2023 14:50
Segir Rússland sameinað sem aldrei fyrr Vladímír Pútín, forseti Rússlands, fullyrti að þjóð sín væri sameinuð sem aldrei fyrr þegar hann ávarpaði fjölþjóðlega ráðstefnu í dag. Sakaði hann vestræn ríki um að gera Úkraínu að óvinveittu ríki sem væri andstæða Rússlands. 4.7.2023 14:11
Eftirlitsstofnanir sýknaðar af kröfum hvalveiðiskipstjóra Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Matvælastofnun og Fiskistofu af kröfu tveggja skipstjóra hvalveiðiskipa Hvals hf. um miskabætur vegna eftirlits með veiðum þeirra í fyrra. Skipstjórarnir töldu meðal annars brotið á friðhelgi einkalífs síns með eftirlitinu. 4.7.2023 12:34
Meirihluti íbúa á móti vindmyllum í Þykkvabæ Aðeins rúmur þriðjungur íbúa í Þykkvabæ og nágrenni eru hlynntir því að nýjar vindmyllur verði reistar í stað annarra sem voru teknar niður í fyrra. Töluverður munur var á afstöðu íbúa eftir því hversu nálægt þeir búa við fyrirhugaðar vindrafstöðvar. 4.7.2023 11:20
Stoltenberg stýrir NATO áfram Jens Stoltenberg stýrir Atlantshafsbandalaginu (NATO) áfram næsta árið. Þetta er i þriðja skiptið sem framkvæmdastjóratíð Stoltenberg er framlengd hjá sambandinu en hann hefur gegnt embættinu í níu ár. 4.7.2023 10:11
Skaut fólk af handahófi á götum Fíladelfíu Vopnaður karlmaður skaut fjóra til bana og særði tvo drengi í að því er virðist handahófskenndri árás á götum Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Lögreglumenn handtóku manninn eftir að hann gafst upp. 4.7.2023 08:41