Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Spennan magnast vestanhafs fyrir forsetakappræður Joes Biden og Donalds Trump sem fara fram í nótt. 27.6.2024 23:49
Á sér engar málsbætur vegna hrottafenginna brota gegn eiginkonu Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisrefsingu Heiðars Arnar Vilhjálmssonar vegna grófra brota gegn eiginkonu hans. Þó að Landsréttur hafi staðfest refsinguna sem Héraðsdómur Reykjaness lagði upp með sýknar Landsréttur hann fyrir brot sem Héraðsdómur hafði sakfellt hann fyrir. 27.6.2024 23:05
Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Leiðtogar Evrópusambandsríkja hafa tilnefnt Ursulu von der Leyen til embættis forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til næstu fimm ára, en hún hefur setið eitt kjörtímabil í því embætti. 27.6.2024 22:02
Ætla að fylla Borgarnes með mörgþúsund manns Guðrún St. Guðbrandsdóttir, forseti Hinsegin Vesturlands, segir heilan helling framundan á Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands sem fer fram um helgina. 27.6.2024 21:29
Ýmir Örn fer frá N1 Ýmir Örn Finnbogason lætur af störfum sem framkvæmdastjóri N1 í dag. Hann mun jafnframt stíga úr framkvæmdastjórn Festis. 27.6.2024 20:32
Ómar fær fyrir ferðina Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta. 27.6.2024 20:24
Tveir féllu af sæþotu við Seltjarnarnes Tveir menn féllu af Sæþotu við Seltjarnarnes í kvöld. Öðrum þeirra tókst að synda í land, en hinum var bjargað af slökkviliði. 27.6.2024 19:02
Sigldu um allan Breiðafjörð vegna lítils báts með bilað stýri Tvö björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kölluð út í dag til að aðstoða fiskibáta í vandræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. 27.6.2024 18:39
Hvorugt þeirra man eftir slysinu Karlmaður hlaut í dag þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til eins árs, í Héraðsdómi Norðurlands eystra vegna ofsaaksturs í Öxnadal í byrjun nóvember árið 2020, en bíll mannsins endaði utan vegar. Ökumaðurinn og kona sem var farþegi í bílnum slösuðust, en hvorugt þeirra man eftir slysinu. 27.6.2024 17:53
Heimsóttu Dagbjörtu fyrir handtökuna: „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki farið“ Tveir menn komu á vettvang Bátavogsmálsins svokallaða áður en Dagbjört Rúnarsdóttir var handtekin en eftir að hinn látni hafði verið fluttur á brott með sjúkrabíl. Dagbjört er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana á heimili sínu í Bátavogi í september í fyrra, 26.6.2024 15:51